Author Archives: egilsstadakirkja
Fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 4. október er fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju kl.11. Biblíusaga, kirkjubrúður og mikill söngur. Kaffi og kökur í
safnaðarheimili eftir stundina.
Verið velkomin
Sunnudagaskóli í Seyðisfjarðarkirkju

Sunnudagaskóli verður í Seyðisfjarðarkirkju sunnudaginn 27. september kl 11.
Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt góðum leiðtogum.
Biblíusaga, kirkjubrúður, leikur og mikill söngur.
Ávextir, djús og litamyndir eftir stundina.
Verið velkomin
Messa og sunnudagskóli í Seyðisfjarðarkirkju
Þann 20. septbember verður messa í Seyðisfjarðarkirkju kl 11. Kór kirkjunnar undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur leiðir almennan safnaðarsöng. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson. Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama tíma. Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt hópi góðra leiðtogar. Bibilíusaga, kirkjubrúður o
g mikill söngur.
Eftir stundina er kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar, tekið verður við frjálsum framlögum til hjálparstarfs á Sýrlandi og Jórdaníu.
Verið velkomin.
Sunnudagurinn 20. september – Egilsstaðakirkja
Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju kl. 10:30 – Hreyfisöngvarnir og kirkjuleikfimin á sínum stað!
Kvöldmessa í léttum dúr í Egilsstaðakirkju kl. 20:00.
Gengið til kirkju frá Egilsstaðakirkjugarði kl. 19:30 í tilefni af Hreyfiviku.
Kirkjukórinn leiðir okkur í léttum sálmum, Torvald Gjerde við flygilinn og sr. Þorgeir Arason þjónar.
Vöfflukaffi eftir messu og tekið við frjálsum framlögum til hjálparstarfs á Sýrlandi og Jórdaníu.
Allir velkomnir!
Messa og haustsúpa í Egilsstaðakirkju
Messa í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 13. september kl. 18:00. Haustsúpa í safnaðarheimilinu eftir stundina. Sr. Þorgeir Arason þjónar, Kór Egilsstaðakirkju leiðir sönginn og organisti er Torvald Gjerde.
Frjáls framlög til hjálparstarfs á Sýrlandi og Jórdaníu, en biskup Íslands hefur hvatt söfnuði Þjóðkirkjunnar til að efna til samskota í kirkjum landsins sunnudagana 13. september og 20. september nk. til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar í starfsemi sinni innan ACT – Alliance í þessum löndum.
Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Dyngju sama dag kl. 17:00.
Allir velkomnir!
Atvinna í boði í KMA
Kirkjumiðstöð Austurlands auglýsir eftir starfkrafti til að sjá um eldhús, matseld og létt þrif.
Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.
Óreglulegur vinnutími.
Jákvætt hugarfar og þægilegt viðmót skilyrði. Verður að geta starfað sjálfstætt.
Skemmtilegur vinnustaður og got samstarfsfólk.
Frekari upplýsingar veitir Davíð Þór Jónsson, héraðsprestur, í netfanginu david.thor.jonsson@kirkjan.is
Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju
Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju byrjar aftur 13. september
og verður alla sunnudaga í vetur í kirkjunni kl. 10:30 (ATH! Breyttur tími)
Smellið hér til að sjá glænýtt og fjörugt kynningarmyndband sunnudagaskólans!
Saga, hreyfisöngvar, brúður, bænir og kirkjuleikfimi!
Djús, ávextir og litastund í lok hverrar samveru, sem er um klukkustund að öllu meðtöldu.
Sunnudagaskólinn er sérstaklega sniðinn að þörfum yngstu barnanna (leikskóla og yngstu grunnskólabarna) en allir eru alltaf velkomnir, stórir og smáir. Að sjálfsögðu fylgir enginn kostnaður þátttöku.
Í upphafi vetrar fá börnin hæðarmæli (plakat) sem hægt er að hengja upp heima og safna svo nýjum límmiða á plakatið á hverjum sunnudegi vetrarins.
Leiðtogar í vetur verða Dagmar Ósk Atladóttir, Guðný Jónsdóttir, Torvald Gjerde við píanóið, sr. Þorgeir, Aðalheiður Ósk og Elísa Petra auk þess sem fermingarbörnin eru til aðstoðar.
Kirkjur Íslands – Málstofa og opnun sýningar á Egilsstöðum
Í tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið tuttugasta og fjórða og fimmta – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar á Egilsstöðum laugardaginn 5. september kl. 15:00. Málstofan fer fram í húsnæði Austurbrúar við Tjarnargötu 39 en sýningin er sett upp í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.
Friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi.
Dagskrá:
1. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og ritstjóri:
Kirkjur Íslands.
2. Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra:
Kirkjustaðir í Múlaprófastsdæmi.
3. Pétur H. Ármannsson arkitekt hjá Minjastofnun Íslands:
Friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi.
4. Lilja Árnadóttir safnvörður munasafns Þjóðminjasafns Íslands:
Nokkrir gripir, fornir og nýir, í kirkjum í Múlaprófastsdæmi.
5. Guðlaug Vilbogadóttir sérfræðingur hjá Minjastofnun Íslands:
Minningarmörk í Múlaprófastsdæmi.
Að málstofunni lokinni mun séra Davíð Baldursson prófastur opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk ,sem byggir á ritverkinu, í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.
Fundarstjóri er Rúnar Leifsson minjavörður Austurlands.
Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 28 bindi og útgáfunni ljúki 2016.
Að útgáfunni standa Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.
Verið velkomin til málstofu og opnunar sýningar laugardaginn 5. september klukkan 15:00 að Austurbrú, Tjarnarbraut 39, Egilsstöðum, og síðar í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.
Stjörnustund í Egilsstaðakirkju
Mánudaginn 1. september hefst Stjörnustund aftur í Egilsstaðakirkju og verða samverur alla mánudaga kl. 17:00-18:30.
Stjörnustund er kristið frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk. Í hverri viku bröllum við eitthvað skemmtilegt eins og sjá má á dagskránni að neðan og helgistund með söng og biblíusögu er fastur liður. Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu, nema annað sé auglýst sérstaklega. Hressing í upphafi hvers fundar.
Umsjón hafa Snjólaug og Dagbjört ásamt frábærum aðstoðarleiðtogum.
Upplýsingar og skráning hjá sóknarpresti í síma 847-9289 eða með tölvupósti: thorgeir.arason@kirkjan.is. Það er þó ekki þörf á að skrá sig fyrir fyrsta fundinn, nóg að mæta og prófa 🙂
Dagskrá haustönn 2015:
7. september – Kynning og Leikir
14. september – Blöðrubrjálæði
21. september – Spilafundur, koma með spil að heiman
28. september – útifundur, fótbolti og leikir
5. október – Æfing fyrir hæfileikasýningu
12. október – HÆFILEIKASÝNING til styrktar fósturbarni kirkjunnar á Indlandi (500 kr. aðgangseyrir)
19. október – VETRARFRÍ
26. október – Föndurstund
2. nóvember – Jól í skókassa
9. nóvember – Nammispurningakeppni
16. nóvember – Ratleikur
23. nóvember – Fáránleikar
30. nóvember – Jólafundur
Kirkjuskólinn byrjar aftur á Borgarfirði
Kirkjuskólinn á Borgarfirði byrjar aftur mánudaginn 31. ágúst kl. 13:30-14:30
Saga og söngvar, bænir og brúður í Bakkagerðiskirkju.
Svo eru það leikir og hressing í Heiðargerði.
Leikskólabörnin geta gengið til kirkju með presti kl. 13:00.
Svo hittumst við annan hvorn mánudag í vetur.
Allir velkomnir!
Þorgeir Arason, sóknarprestur


