Author Archives: egilsstadakirkja
Guðsþjónusta og upphaf fermingarstarfanna
Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00.
Félagar úr kirkjukórnum leiða létta sálma við undirleik Torvalds Gjerde
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna.
Allir velkomnir!
Guðsþjónustan markar upphaf fermingarstarfa vetrarins á Héraði og hefur öllum unglingum á svæðinu, sem fæddir eru árið 2002, og forráðamönnum þeirra, verið sent bréf þar sem þau eru boðin sérstaklega velkomin til kirkju þennan dag.
Að lokinni guðsþjónustu fer fram skráning fermingarbarnanna og tilhögun starfsins í vetur kynnt stuttlega fyrir væntanlegum fermingarbörnum og foreldrum/forráðamönnum. Dagskrá lokið ekki seinna en kl. 12:30.
Þau sem ekki geta mætt í Egilsstaðakirkju á sunnudaginn en vilja skrá sig í fermingarundirbúning eru vinsamlegast beðin að hafa samband við sóknarprest Egilsstaðaprestakalls (netfang: thorgeir.arason@kirkjan.is, sími: 471-2724 / 847-9289) og láta vita af forföllum.
Kirkjubæjarkirkja 30. ágúst
Messað verður í Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu sunnudaginn 30. ágúst kl. 14:00.
Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna leiðir söng undir stjórn Magnúsar Magnússonar organista. Magnús leikur nú við sína síðustu messu í kirkjunni og verður þökkuð þjónustan.
Sr. Þorgeir Arason þjónar.
Kaffisala kvenfélagsins í Tungubúð eftir messu.
Allir velkomnir!
Ljóðamessa í Egilsstaðakirkju á sunnudagskvöld
Sunnudaginn 26. júlí kl. 20:00, verður haldin ljóðamessa í Egilsstaðakirkju. Séra Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.
Kór og organisti verða í hvíld, en í staðinn verður hið talaða orð, skáldskapurinn, í brennidepli. Messan verður með hefðbundnu sniði að því undanskildu að í stað sálmasöngs lesa austfirsk skáld frumsamin ljóð með andlegu og trúarlegu ívafi. Skáldin sem leggja hönd á plóg í ljóðamessunni eru Arnar Sigbjörnsson, Hulda Sigurdís Þráinsdóttir, Ingunn Snædal, Sigurður Ingólfsson og Stefán Bogi Sveinsson.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og vonast aðstandendur til að sem flestir láti sjá sig.
Klyppstaðarkirkja í Loðmundarfirði
Árleg messa í Klyppsstaðarkirkju í Loðmundarfirði fer að þessu sinni fram sunnudaginn 19. júlí kl. 14:00. Þangað eru allir velkomnir.
Athugið að til kirkjunnar þarf að áætla um 1,5 klst. akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.
Kirkjan á Klyppstað í Loðmundarfirði er látlaus og formfögur timburkirkja, reist árið 1895. Yfirsmiður var Jón Baldvin Jóhannesson, bóndi í Stakkahlíð.
Klyppstaður fór í eyði 1962 og önnur byggð í Loðmundarfirði lagðist af upp úr 1970. Kirkjan stendur enn og voru miklar endurbætur gerðar á henni á árunum 1976-1986 og árið 1990 var hún friðuð. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs tók kirkjuna undir sinn verndarvæng árið 2010 og var hún máluð að utan það sumar.
Síðustu tónlistarstundir sumarsins

Vallaneskirkja
Nú eru tvær tónlistarstundir eftir þetta sumarið af hinni metnaðarfullu röð stuttra sumartónleika sem Torvald Gjerde stýrir í Egilsstaða- og Vallaneskirkjum:
2. júlí í Egilsstaðakirkju kl. 20.00
Björgvin gítarkvartett frá Noregi
Öystein Magnús Gjerde frá Fellabæ er einn þeirra
5. júlí í Vallaneskirkju kl. 20.00
Erla Dóra Vogler frá Egilsstöðum, mezzósópran
Torvald Gjerde, organisti, harmoníum/harmonikka
Aðgangseyrir er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara, athugið enginn posi á staðnum.
Tónlistarstundirnar 2015 njóta stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands og viðkomandi kirkna.
Skógarmessa á Egilsstöðum og kvöldmessa á Eiðum 5. júlí
Sunnudaginn 5. júlí verða tvær guðsþjónustur í Egilsstaðaprestakalli:
Sunnudagur 28. júní
Sumarmessa í Eiríksstaðakirkju kl. 14.
Prestur sr. Þorgeir Arason. Organisti og söngstjóri Jón Ólafur Sigurðsson.
Allir velkomnir.
Eiríksstaðakirkja er lítil steinkirkja á Efra-Jökuldal, reist að mestu árið 1913 en vígð 21. júní 1914 af sr. Haraldi Þórarinssyni. Kirkjan er með elstu steinhúsum á Héraði og elsta steinsteypta kirkja prestakallsins.
Tónlistarstund í Egilsstaðakirkju kl. 20.
Fram koma hljóðfæranemar frá Egilsstöðum:
Sigurlaug Björnsdóttir, flauta
Ása Jónsdóttir, fiðla
Bríet Finnsdóttir, fiðla/lágfiðla
Suncana Slamnig kennari, píanó.
Aðgangseyrir er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara, athugið enginn posi á staðnum.
Tónlistarstundir 2015 í Egilsstaða- og Vallaneskirkju
Tónlistarstundir verða í sumar líkt og undanfarin sumur í Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju.
Um er að ræða fjölbreytta dagskrá með ýmsum listamönnum af Héraði og lengra að. Allir velkomnir.
Aðgangseyrir er kr. 1.500 og kr. 1.000 fyrir nema, öryrkja og eldri borgara, athugið enginn posi á staðnum.
18. júní í Egilsstaðakirkju kl. 20.00
Kór Egilsstaðakirkju
Torvald Gjerde, organisti kirkjunnar, stjórnandi
21. júní í Vallaneskirkju kl. 20.00
Hjalti Jónsson, tenór
Lára Sóley Jóhannsdóttir, fiðla
23. júní í Egilsstaðakirkju kl. 20.00
Ingveldur Ýr Jónsdóttir, mezzósópran
Guðríður St. Sigurðardóttir, píanó
28. júní í Egilsstaðakirkju kl. 20.00
Hljóðfæranemar frá Egilsstöðum
Sigurlaug Björnsdóttir, flauta
Ása Jónsdóttir, fiðla
Bríet Finnsdóttir, fiðla/lágfiðla
Suncana Slamnig kennari, píanó
2. júlí í Egilsstaðakirkju kl. 20.00
Björgvin gítarkvartett frá Noregi
Öystein Magnús Gjerde frá Fellabæ er einn þeirra
5. júlí í Vallaneskirkju kl. 20.00
Erla Dóra Vogler frá Egilsstöðum, mezzósópran
Torvald Gjerde, organisti, harmoníum/harmonikka
Tónlistarstundirnar 2015 njóta stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands og viðkomandi kirkna.
Frá Vallaneskirkju




