Sunnudagurinn 18. október
Hátíðarmessa verður í Valþjófsstaðarkirkju sunnudaginn 18. október kl. 14:00 í tilefni af 60 ára vígsluafmæli kirkjunnar.
Sr. Jarþrúður Árnadóttir, sr. Þorgeir Arason & sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjóna og sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum prédikar. Kór Valþjófsstaðarkirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Meðhjálpari Halla Auðunardóttir.
Allir eru svo velkomnir í kaffiboð sem verður í Végarði að messu lokinni.
Í Egilsstaðakirkju er sunnudagaskólinn á sínum stað á sunnudaginn og einnig messan kl. 20:00 um kvöldið. Prestur Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Almennur söngur. Meðhjálpari Guðrún María Þórðardóttir.
Á hjúkrunarheimilinu Dyngju er guðsþjónusta kl. 17:00 á sunnudaginn (Hamri á 3. hæð). Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar og og sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup á Hólum prédikar. Kór Valþjófsstaðarkirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista.
Posted on 15/10/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd
Comments 0