Fyrsti sunnudagur í aðventu 29. nóv!

29. nóvember, fyrsti sunnudagur í aðventu:

Aðventustund fjölskyldunnar kl. 10:30. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Bergljótar Höllu Kristjánsdóttur. Jólaföndur, heitt kakó og piparkökur eftir stundina. Sr. Jarþrúður Árnadóttir og leiðtogar sunnudagaskólans. Organisti Sándor Kerekes.

Óskalagamessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00. Við ætlum að syngja mikið saman í þessari messu og þau sem koma til kirkju velja af löngum lista hvaða sálma og lög aðventunnar og jólanna verða fyrir valinu. Ef þú saknar þess að heyra/syngja uppáhaldsaðventu- eða jólasálminn þinn, eða vilt vera viss um að geta sungið hann, þá er tækifærið núna! Forsöngvari verður Halla Helgadóttir & Sándor Kerekes organisti verður við hljóðfærið. Sr. Jarþrúður Árnadóttir leiðir stundina og flytur stutta hugvekju. Meðhjálpari er Guðrún María Þórðardóttir. Kvöldsopi eftir messu

Posted on 27/11/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd