Aðventa í Egilsstaðaprestakalli

Verið velkomin í fjölbreytt helgihald og samverustundir í kirkjum Egilsstaðaprestakalls á aðventunni 2026!

26. nóvember (fimmtudagur):

Kirkjuselið í Fellabæ: Jólin og sorgin – Samvera kl. 18:00. Dr. Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir flytur erindi um efnið. Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar og Sigríður Svandís Hafþórsdóttir sjá um tónlistaratriði. Kertaljós tendruð í minningu og von. Sr. Jarþrúður Árnadóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir leiða stundina.

29. nóvember, fyrsti sunnudagur í aðventu:

Egilsstaðakirkja: Aðventustund fjölskyldunnar kl. 10:30. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Bergljótar Höllu Kristjánsdóttur. Jólaföndur, heitt kakó og piparkökur eftir stundina. Sr. Jarþrúður Árnadóttir og leiðtogar sunnudagaskólans. Organisti Sándor Kerekes.

Óskalagamessa kl. 20:00. Almennur söngur – Aðventu- og jólasálmarnir. Sr. Jarþrúður Árnadóttir. Organisti Sándor Kerekes.

Hjaltastaðarkirkja: Aðventuhátíð Eiða- og Hjaltastaðarsókna kl. 17:00. Söngfuglar og Barnakór Hjaltastaðarkirkju syngja undir stjórn Sigríðar Laufeyjar Sigurjónsdóttur. Jonni og Sigurbjörg Gilsárteigi flytja lag. Ræðumaður Kristjana Björnsdóttir frá Móbergi. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Seyðisfjarðarkirkja: Fjölskyldumessa kl. 11:00. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan söng undir stjórn Hlínar Pétursdóttur Behrens, organista. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Ísold Gná Sigríðar Ingvadóttir leiða stundina.

1. desember (þriðjudagur):

Kirkjubæjarkirkja: Aðventu- og afmælishátíð kl. 18:00 – 175 ára vígsluafmæli Kirkjubæjarkirkju. Sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup flytur hugvekju og vígir nýtt hljóðfæri kirkjunnar. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Fermingarbörn flytja ljósaþátt. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir prófastur og sr. Þorgeir Arason sóknarprestur þjóna. Að athöfn lokinni býður sóknarnefnd Kirkjubæjarsóknar viðstöddum að þiggja veitingar í Tungubúð í umsjón Kvenfélags Hróarstungu. Þar verður einnig myndasýning tengd sögu kirkjunnar.

2. desember (miðvikudagur):

Kirkjuselið í Fellabæ: Aðventustund Ássóknar kl. 17:00. Kór Áskirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Ræðumaður Oddný Eir Ævarsdóttir. Fermingarbörn flytja atriði. Sr. Jarþrúður Árnadóttir.

3. desember (fimmtudagur):

Bakkagerðiskirkja: Aðventu- og afmælishátíð kl. 18:00 – 125 ára vígsluafmæli Bakkagerðiskirkju. Sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup flytur hugvekju. Bakkasystur leiða sönginn við undirleik Freyju Jónsdóttur á gítar og börn úr grunnskólanum flytja tónlistaratriði. Sr. Jarþrúður Árnadóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna. Kaffiveitingar að athöfn lokinni.

Seyðisfjarðarkirkja: Jólasálmakvöld í boði kórs kirkjunnar kl. 20:00.

5. desember (laugardagur):

Vallaneskirkja: Ljósastund á aðventu kl. 17:00. Kór Vallaness og Þingmúla syngur. Organisti Sándor Kerekes. Halla Helgadóttir flytur jólaminningu. Ljósaþáttur fermingarbarna. Kertaljós tendruð í minningu ástvina, bæn og eftirvæntingu helgrar hátíðar. Sr. Þorgeir Arason.

6. desember, annar sunnudagur í aðventu:

Egilsstaðakirkja: Sunnudagaskóli kl. 10:30. Aðventukvöld kl. 20:00. Kór Egilsstaðakirkju og tónlistarnemendur koma fram og við syngjum saman. Guðrún Sigurðardóttir frá Húsey flytur jólaminningu. Ljósaþáttur fermingarbarna. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes.

Dyngja, Egilsstöðum: Aðventuguðsþjónusta kl. 17:00. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Sándor Kerekes. Sr. Þorgeir Arason.

Seyðisfjarðarkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11:00.

13. desember, þriðji sunnudagur í aðventu:

Egilsstaðakirkja: Sunnudagaskóli kl. 10:30. Messa kl. 20:00. Almennur söngur. Organisti Sándor Kerekes. Sr. Jarþrúður Árnadóttir.

Seyðisfjarðarkirkja: Sunnudagaskóli kl. 11. Aðventukvöld kl. 18:00. Halla Dröfn Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, flytur jólaminningu. Kór kirkjunnar syngur. TTT-starfið og fermingarbörn flytja atriði. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

14. desember (mánudagur):

Áskirkja: Jólasálmakvöld í boði kórs kirkjunnar kl. 20:00.

20. desember, fjórði sunnudagur í aðventu:

Seyðisfjarðarkirkja: Jólaball sunnudagaskólans kl. 11:00.

Egilsstaðakirkja: Messa kl. 20:00. Almennur söngur. Organisti Sándor Kerekes. Sr. Þorgeir Arason.

Verið velkomin til kirkju á aðventunni!

Posted on 23/11/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd