Athafnir

Þjóðkirkjan er samfélag þeirra sem trúa á Guð sem skapar, Jesú Krist sem frelsar og helgan anda sem huggar.

Þjóðkirkjan veitir einstaklingum og samfélögum þjónustu með virkri nærveru á stóru stundum lífsins, í gleði og sorg, með helgihaldi og athöfnum. Guðsþjónustur helgidaganna og helgar athafnir þjóðkirkjunnar, svo sem skírn, ferming, hjónavígsla, útför, eru áningarstaðir á lífsins leið, með veganesti orðs og atferlis sem styrkja samfélagið milli fólks og kynslóða og efla von og lífsþrótt. Þar verður hin opna þjóðkirkja sýnileg, með sína löngu hefð og sögu og sterka framtíðarsýn í ljósi Jesú Krists.

Til að bóka prestsþjónustu við athöfn í Egilsstaðaprestakalli er best að hafa beint samband við einn af prestunum þremur.

Meðfylgjandi er viðmiðunargjaldskrá Prestafélags Íslands frá 1. apríl 2022:

Skírn í sérstakri athöfn í kirkju, heimahúsi eða sal

7.640 kr. á dagvinnutíma*

15.281 kr. utan dagvinnutíma*

 
Fermingarfræðsla

21.830 kr.

 

 
Hjónavígsla

14.189 kr. á dagvinnutíma

21.830 kr. utan dagvinnutíma

 
Æfing vegna hjónavígslu 

0 kr. á dagvinnutíma

10.915 kr. utan dagvinnutíma

 
Kistulagning

8.732 kr. á dagvinnutíma

16.372 kr. utan dagvinnutíma

 
Útför

32.745 kr. á dagvinnutíma

39.294 kr. utan dagvinnutíma

 
Athöfn við jarðsetningu duftkers eða kistu, sem ekki er í beinu framhaldi af útför 15.281 kr.  
Akstursgjald 120.00 kr/km

*Prestar Egilsstaðaprestakalls innheimta ekki gjald fyrir skírnir innan prestakallsins og er það skírnargjöf til skírnarþega.

Ekki er greitt fyrir viðtöl við prest.

Færðu inn athugasemd