Minningarstund 30. september kl. 18.
Á erfiðum tímum er gott að koma saman og sýna samúð og samstöðu.
Minningarstund verður í Egilsstaðakirkju í dag, föstudaginn 30.október kl. 18.00, til að minnast Magnúsar Gunnars Sigurhanssonar sem lést í Reykjavík 29.október.
Samvera, tónlist og kveikt á kertum.
Prestar kirkjunnar, fulltrúar úr viðbragðshópi RKÍ og félagsþjónustu Múlaþings verða á staðnum vegna sálræns stuðnings.
Einnig er hægt að fá aðstoð á eftirfarandi stöðum:
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA)
Hægt er að senda póst á afallahjalp@hsa.is eða hringja á heilsugæslu HSA og fá samtal við hjúkrunarfræðing í síma 470-3000 á dagvinnutíma. Sjá upplýsingar um opnunartíma á www.hsa.is og á facebooksíðunni Heilbrigðisstofnun Austurlands https://www.facebook.com/www.hsa.is
Kirkjan
Hægt er að senda póst á afallahjalp@kirkjan.is eða hringja í presta kirkjunnar, upplýsingar á heimasíðu; https://egilsstadaprestakall.com/prestar/
Félagsþjónustan í Múlaþingi 4700700 fyrir ráðgjöf og upplýsingar
Hjálparsími Rauða krossins 1717 er alltaf opinn og þar er einnig hægt að ná sambandi við ráðgjafa í gegnum netspjall.
https://www.raudikrossinn.is/…/hjalparsiminn-1717-og…
Píeta-samtökin eru með viðtöl á Reyðarfirði og í fjarfundarbúnaði, tímabókanir eru í síma 552-2218, www.pieta.is
Posted on 30/10/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0