Um prestakallið

Egilsstaðaprestakall nær yfir sóknir Þjóðkirkjunnar í fjórum sveitarfélögum: Fljótsdalshéraði, Fljótsdalshreppi, Seyðisfjarðarkaupstað og Borgarfjarðarhreppi. Sóknirnar eru alls 14: Ássókn í Fellum, Bakkagerðissókn, Egilsstaðasókn, Eiðasókn, Eiríksstaðasókn, Hjaltastaðasókn, Hofteigssókn, Kirkjubæjarsókn, Möðrudalssókn, Seyðisfjarðarsókn, Sleðbrjótssókn, Vallanessókn, Valþjófsstaðarsókn og Þingmúlasókn. Hver sókn hefur sína sóknarkirkju og sóknarnefnd sem annast fjárstjórn hennar, umsjón og gæslu eigna og hefur forgöngu um kirkjulegt starf í sókninni ásamt prestunum í prestakallinu. Þann 1. des. 2013 voru íbúar í prestakallinu 4.352, þar af 3.747 í Þjóðkirkjunni.

Egilsstaðaprestakall varð til við sameiningu fjögurra prestakalla á Héraði, Borgarfirði og Seyðisfirði. Sameiningin var ákveðin á Kirkjuþingi haustið 2011 og hófst þá þegar með sameiningu Eiðaprestakalls og Vallanesprestakalls. Seyðisfjarðarprestakall bættist við árið 2013 og Valþjófsstaðarprestakall árið 2014. Um leið voru prestssetrin á Eiðum og Valþjófsstað aflögð, en prestssetur og búsetuskylda fylgir prestsembættinu á Seyðisfirði.

Fyrsti sóknarprestur Egilsstaðaprestakalls var sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir (2011-2014). Við sameininguna var prestum á svæðinu fækkað úr fjórum í þrjá. Núverandi prestar Egilsstaðaprestakalls eru Kristín Þórunn Tómasdóttir, Sigríður Rún Tryggvadóttir og Þorgeir Arason.

Prestarnir þrír sinna öllum sóknarbörnum um prestsþjónustu. Margir nýta sér t.d. viðtalstíma prestanna til stuðnings og sálgæslu, og er sú þjónusta ávallt veitt að kostnaðarlausu. Til að óska eftir viðtali eða annarri prestsþjónustu er best að hafa beint samband við prest í síma / tölvupósti.

Færðu inn athugasemd