Hjónavígsla

Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu og sagði: Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.
Þannig eru þau ekki framar tvö, heldur einn maður.
Það sem Guð hefur tengt saman, má maður eigi sundur skilja.
Mt. 19. 4-6

Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem tveir einstaklingar, karl og kona, eða tveir karlar eða tvær konur, heita hvor öðrum ævitryggðum, að eiga, njóta og þiggja saman önn sem yndi lífsins, gleði og sorgir.

Hjónavígslan er tjáning gleði og fagnaðar, samstöðu, ábyrgðar og vonar á þessum vegamótum lífsins sem hjónin á. Söfnuðurinn umlykur hjónin fyrirbæn sinni ásamt kirkjunni allri og vill með Jesú Krist sem fyrirmynd sýna því samfélag hinnar gagnkvæmu þjónustu og þörf allra fyrir samfélag við Guð og náungann utan hrings fjölskyldunnar. Á heimasíðu Þjóðkirkjunnar má lesa meira um hjónavígslu.

Hjónaefni skulu framvísa vottorði um hjúskaparstöðu frá Þjóðskrá Íslands, ekki eldra en 30 daga gömlu frá vígsludegi. Sjá nánar hér um skilyrði til  hjúskapar.

Gjald fyrir hjónavígslu skv. gjaldskrá Innanríkisráðuneytis: 12.445 kr.

 

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: