Helgihald í Egilsstaðaprestakalli 8. nóvember

Sunnudaginn 8. nóvember er nóg um að vera í kirkjum prestakallsins, sunnudagaskólinn er á sínum stað í Egilsstaðakirkju kl. 10.30 og Seyðisfjarðarkirkju kl. 11. Biblíusaga, mikill söngur og kirkjubrúður.

Við bryddum upp á nýjung í helgihaldinu og bjóðum upp á Grjónagrautarmessu í Kirkjuselinu kl. 18. Messan fer fram á meðan við snæðum saman grjónagraut og meðlæti við langborð. Maturinn er í boði Ássóknar og ekki þarf að greiða fyrir.

Sr. Jarþrúður, Sr. Sigríður og sr. Þorgeir þjóna. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir sér um tónlista.

Í Egilsstaðakirkju er svo hefðbundin messa kl. 20.00 með kristniboðsþema. Kór Egilsstaðakirkju leiðir söng undir stjórn Sándors Kerekes, organista. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og meðhálpari er Guðrún María Þórðardóttir.

Verið þið innilega velkomin til kirkju

Posted on 03/11/2026, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd