Author Archives: egilsstadakirkja
Messa og sunnudagaskóli Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 15. nóvember kl. 11 verður messa í Seyðisfjarðarkirkju. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri og organisti er Sigurbjörg Kristínardóttir.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama tíma. Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt góðum leiðtogum. Gæðastund fjölskyldunnar með Biblíusögu, kirkjubrúðum og miklum söng.
Kaffi í safnaðarheimili eftir stundina.
Sunnudagur 8. nóvember: Guðsþjónusta í Áskirkju kl. 14
Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. Þá kom
ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir er lögðu í fjárhirsluna. Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.“ (Mrk 12.41-44).
Guðsþjónusta í Áskirkju 8. nóvember kl. 14.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar, kór Áskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Fermingarbörn aðstoða. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Verið velkomin í kirkjuna undir Ási.
,,Má bjóða þér að gefa í baukinn?“
Væntanleg fermingarbörn á Héraði og Seyðisfirði ganga í hús og safna fé til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar. 
3. nóvember milli kl. 17 og 19 ganga börn í Fellabæ í hús.
4. nóvember milli kl. 18 og 20 ganga börn í hús á Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Áður en börnin ganga í hús fá þau fræðslu um það hvernig vatnsþró, vatnstankur eða brunnur með hreinu vatni getur gjörbreytt lífi fólks til hins betra: Heilsufar batnar; stúlkur sem áður sóttu vatn um langan veg fá tíma til að sækja skóla; með áveitu verður til meiri og betra fæða og svo koll af kolli.
Með því að taka þátt í fjáröflunarverkefninu fá börnin innsýn í líf jafnaldra sinna í starfssvæðum Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku og kynnast erfiðleikum sem þau búa við. Fermingarbörnin fá líka tækifæri til að ræða um ábyrgð okkar allra á því allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi.
Í nóvember 2014 söfnuðu fermingarbörn á landinu öllu 8.162.460 krónum til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Eþíópíu og Úganda. Söfnunin í ár er sú sautjánda í röðinni en framlag fermingarbarna og stuðningur þeirra er ómetanlegur og kann Hjálparstarfið þeim bestu þakkir fyrir!
Með von um að þú, lesandi góður, takir vel á móti fermingarbörnunum sem banka upp á hjá þér með söfnunarbauk Hjálparstarfs kirkjunnar í hönd. Ef þú ert ekki heima, skilja þau eftir miða með greiðsluupplýsingum um bankareikninn sem hægt er leggja inn á: 0334 – 26 – 56200, kt. 450670-0499. Bestu þakkir!
Happdrætti ÆSKA 2015
Happdrætti ÆSKA 2015
Æskulýðssamband kirkjunnar á Austurlandi (ÆSKA) stóð fyrir happdrætti til styrktar ferð unglinga af svæðinu á landsmót ÆSKÞ í Vestmannaeyjum í október sl. Að auki rann hluti af ágóðanum í geðverndarverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. 
Á annað hundrað unglinga af Austurlandi tók þátt í landsmótinu, þar fór fram fræðsla og skemmtun til uppbyggingar æskunni. Fulltrúi sýslumannsins á Austurlandi dró í happdrættinu þann 2. nóvember, að viðstöddum votti og fulltrúa ÆSKA.
ÆSKA óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar veittan stuðning. Enn fremur þakkar ÆSKA öllum sem gáfu vinninga eða studdu happdrættið á annan hátt kærlega fyrir stuðninginn.
Vinninga má vitja í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4. Allar frekari upplýsingar veitir Ólöf Margrét Snorradóttir, s. 662 3198. Vinsamlegast vitjið vinninga fyrir 10. janúar 2016.
Vinningsnúmer:
| Happdrætti ÆSKA 2015 | Númer | |
| 1. | Veiðiþjónustan Strengir – Laxveiði ein stöng í einn dag í Breiðdalsá | 523 |
| 2. | Veiðiþjónustan Strengir – Laxveiði ein stöng í einn dag í Jöklu | 375 |
| 3. | Hótel Alda gisting f. 2 | 683 |
| 4. | Sjóstöng ehf í Breiðdal – Sjóstöng og lundaskoðunarferð fyrir tvo | 121 |
| 5. | Hótel Bláfell í Breiðdal – Gisting og morgunverður fyrir tvo | 794 |
| 6. | Fjarðabyggð Heilsurækt 3ja mán. kort | 1188 |
| 7. | Fjarðabyggð Heilsurækt 3ja mán. kort | 1038 |
| 8. | Hótel Staðarborg í Breiðdal – Gisting og morgunverður fyrir tvo | 766 |
| 9. | Hótel Framtíð – gisting fyrir tvo | 487 |
| 10. | Gistiheimilið Saxa á Stöðvarfirði – Gisting og morgunverður fyrir tvo | 1228 |
| 11. | Icelandair gjafabréf | 1000 |
| 12. | Veiðiþjónustan Strengir – Silungsveiði ein stöng í einn dag í Breiðdalsá | 682 |
| 13. | Veiðiþjónustan Strengir – Silungsveiði ein stöng í einn dag í Fögruhliðará | 479 |
| 14. | Mjóeyri ferðaþjónusta – gjafabréf | 746 |
| 15. | NorðAustur Seyðisfirði gjafabréf f. 2 | 151 |
| 16. | Vapp – Hús handanna | 367 |
| 17. | Brekkan Stöðvarfirði – Pitsuveisla fyrir fimm | 43 |
| 18. | Tónlistarmiðstöð Austurlands Eskifirði | 379 |
| 19. | Ilmvatnið Love – Snyrtistofan Hafblik | 1049 |
| 20. | Gullabúið – skartgripahengi | 161 |
| 21. | Snyrtistofan Alda, fótsnyrting | 18 |
| 22. | Hótel Hérað – Brunch f. 2 | 127 |
| 23. | Hótel Hérað – Brunch f. 2 | 870 |
| 24. | Hótel Hérað – Brunch f. 2 | 879 |
| 25. | Hótel Hérað – Brunch f. 2 | 124 |
| 26. | Hótel Hérað – Brunch f. 2 | 302 |
| 27. | Kvöldverðarhlaðborð á Narfastöðum | 377 |
| 28. | Kvöldverðarhlaðborð á Narfastöðum | 126 |
| 29. | Hótel Framtíð – pizzaveisla fyrir tvo | 474 |
| 30. | Móðir jörð – gjafakarfa | 60 |
| 31. | Fellabakarí gjafabréf | 177 |
| 32. | Kaffi Sumarlína, Fáskrúðsfirði – Gjafabréf | 206 |
| 33. | Kaffi Sumarlína, Fáskrúðsfirði – Gjafabréf | 945 |
| 34. | Body Butter – Snyrtistofan Hafblik | 965 |
| 35. | Við Voginn – Ljósmynd e. Michael Bullock | 107 |
| 36. | Böggablóm Eskifirði – gjafabréf | 1171 |
| 37. | Kaffi Egilsstaðir gjafabréf | 992 |
| 38. | Olís Reyðarfirði | 1296 |
| 39. | Shellskálinn Eskifirði | 988 |
| 40. | Geirabók | 1292 |
| 41. | Bókakaffi Hlöðum, kaffihlaðborð f. 2 | 892 |
| 42. | Kjöt og fiskur gjafabréf | 940 |
| 43. | Hárvörur – Lyfsalan Vopnafirði | 370 |
| 44. | Milk Shake hárvörur frá Hár.is | 942 |
| 45. | Skaftfell Bistro Pizza | 589 |
| 46. | Harðfiskur – Fiskverkun Kalla Sveins | 354 |
| 47. | Harðfiskur – Fiskverkun Kalla Sveins | 347 |
| 48. | Langabúð á Djúpavogi – Gjafabréf | 519 |
| 49. | Langabúð á Djúpavogi – Gjafabréf | 1248 |
| 50. | Kirkjuhúsið – Bláa Biblían | 1001 |
| 51. | Kirkjuhúsið – Bænabókin | 412 |
| 52. | Austan um land, ljóðabók Sigurðar Óskars Pálssonar | 369 |
Ljósamessa í Egilsstaðakirkju 1. nóv. kl. 20 – Gospel
Sunnudagaskólinn á sínum stað 1. nóvember kl. 10:30 í Egilsstaðakirkju. Söngur, brúður, saga, litamynd og nýr límmiði.
Sunnudagskvöldið 1. nóvember kl. 20:00: Gospelmessa í Egilsstaðakirkju – Ljósamessa.
Í tilefni af Dögum myrkurs lýsum við kirkjuna upp með lifandi ljósum og íhugum „ljósið í myrkrinu.“
Liljurnar syngja og leiða sönginn, kórstjóri Margrét Lára Þórarinsdóttir og undirleikari Tryggvi Hermannsson.
Prestur er Þorgeir Arason.
Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir!
,,Ég er ljós heimsins“ Seyðisfjarðarkirkja
í safnaðarheimili eftir stundina.

Sunnudagur 25. október: Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju og Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudagaskólinn er á sínum stað í Egilsstaðakirkju kl. 10.30. Það er alltaf fjör í sunnudagaskólanum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum frá sunnudagaskólanum 18. október.
Söngur, sögur og bænir að vanda, Rebbi og Mýsla koma í heimsókn og við heyrum líka söguna af Lasarusi. Öll börn fá límmiða.
Djús og ávextir í boði eftir stundina, og kaffi handa pabba og mömmu.
Láttu sjá þig!
Á Seyðisfirði er sunnudagaskóli kl. 11. Biblíusaga, söngur og bænir.
Allir velkomnir í sunnudagaskólagleðina.
Sunnudagurinn 18. október
Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju kl. 10:30. Mýsla og Rebbi á sínum stað, nýr límmiði, fjörugur söngur og djús og dund eftir stund. Barn verður borið til skírnar í stundinni.
Hádegismessa í Egilsstaðakirkju kl. 12:00. Prestur Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde, kór Egilsstaðakirkju og félagar úr messuhópi taka þátt. Molasopi eftir messuna.
Messa í Seyðisfjarðarkirkju kl. 11:00. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng og organisti er Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili Seyðisfjarðarkirkju. Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt góðum leiðtogum. Kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir stundina.
Allir velkomnir til kirkju.
Eldklerkurinn í Fjarðarborg
Möguleikhúsið sýnir leiksýninguna Eldklerkinn í Fjarðarborg á Borgarfirði þriðjudaginn 13. október kl. 20:00.
Eldklerkurinn Jón Steingrímsson er kunnastur fyrir eldmessuna er hann flutti í miðjum Skaftáreldum, en hver var hann, hvaðan kom hann og hver urðu örlög hans? Hér er sögð saga frá 18. öld af góðum bónda, lækni og presti sem þarf að takast á við afleiðingar skelfilegustu náttúruhamfara Íslandssögunnar á tímum örbirgðar og undirokunar.
“Árið 1783 þann 8. júní, sem var hvítasunnuhátíð, í heiðríku og spöku veðri um dagmálabil, kom upp fyrir norðan næstu byggðafjöll á Síðunni svart sandmistur og mokkur svo stór, að hann á stuttum tíma breiddi sig yfir alla Síðuna”.
Þannig segir séra Jón Steingrímsson frá upphafi Skaftárelda í eldriti sínu. Jón var prófastur Vestur-Skaftfellinga á árunum 1778-1791 og sjónarvottur að eldsumbrotunum og áhrifum þeirra. Frá honum eru komnar nákvæmustu lýsingarnar af Skaftáreldum sem varðveittar eru, auk þess sem sjálfsævisaga hans er einstakt rit innan íslenskrar bókmenntasögu og gefur góða sýn inn í daglegt líf og hugmyndaheim fólks á 18. öld. Skarpskyggni Jóns endurspeglast víða í ritum hans og eru lýsingar á Skaftáreldum glöggt dæmi um það.
Leikverkið byggir að mestu á skrifum Jóns, en um leið vekur það spurningar um hliðstæður við hamfarir af völdum manna og náttúru sem yfir þjóðina hafa dunið á síðustu árum.
Höfundur handrits og leikari er Pétur Eggerz, leikstjóri Sigrún Valbergsdóttir, leikmynd gerði Rósa Sigrún Jónsdóttir, búninga Thelma Björnsdóttir og hljóðmynd er eftir Guðna Franzson.
Miðaverð er kr. 3.500 og miðasala verður við innganginn.
Eldri borgarar, öryrkjar og nemendur fá 20% afslátt og kostar miðinn þá kr. 2.800.
Úr gagnrýni um sýninguna:
„Pétur og Sigrún hafa unnið þetta verk af alúð“ Silja Aðalsteinsdóttir
„Þessi handritsgerð öll er afburða vel heppnuð og Pétur er sjálfur góður sögumaður sem heldur okkur föstum í tvo klukkutíma (…) Afar vel heppnuð tilraun til að endursegja eitt af höfuðritum bókmenntanna og veita innsýn inn í eitt dramatískasta tímabil Íslandssögunnar.“ Jón Viðar Jónsson
„Því verður hiklaust haldið fram að Eldklerkurinn sé með bestu einleikjum, sem sést hafa á sviði hér á landi að undanförnu.“ Arnþór Helgason
Sunnudagurinn 11. október
Fjölskylduguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 11. október kl. 10:30. Félagar úr kór kirkjunnar leiða okkur í léttum söngvum. Mýsla og Rebbi koma í heimsókn og börnin fá nýjan límmiða. Sóknarprestur og leiðtogar sunnudagaskólans leiða stundina. Hressing fyrir unga sem eldri í lokin.Messa í Bakkagerðiskirkju sama dag kl. 15:00
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Kristján Gissurarson og Bakkasystur syngja.
Kaffi í Heiðargerði eftir messu – Allir velkomnir!

