Author Archives: egilsstadakirkja

Sunnudagur 17. apríl: Kvöldmessa í Kirkjuselinu kl. 20

Þú kemur, Jesús Kristur, inn
og kveikir ljósið bjart.
Þá hverfur allur ótti minn
og efamyrkrið svart.
(Sb 858, Lilja S. Kristjánsdóttir)

Kvöldmessa í Kirkjuselinu Fellabæ 17. apríl kl. 20

Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Kór Áskirkju syngur sálma úr sálmabókinni frá 2013 undir stjórn og undirleik Drífu Sigurðardóttur organista. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.

Verið velkomin í messu.

 

Minnum á aðalsafnaðarfund Ássóknar í Kirkjuselinu 26. apríl kl. 20.

Hjaltastaðarkirkja-messa og aðalsafnaðarfundur

Screen Shot 2016-04-13 at 10.18.34

Á fjórða sunnudegi eftir páska, þann 24. apríl er messa kl 14.00.

Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Um tónlistina sér Suncana Slamming organisti ásamt sínu tónlistarfólki.

Meðhjálpari er Hildigunnur Sigþórsdóttir.

Verið velkomin

Eftir messu er kaffi í umsjá Bjarkar, kvenfélags Hjaltastaðþinghár og aðalfundur Hjaltastaðarsóknar í félagsheimilinu Hjaltalundi.

Fundarboð

Aðalfundur Hjaltastaðarsóknar

Verður haldinn í félagsheimilinu Hjaltalundi sunnudaginn 24. apríl kl 15.

Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf

  1. Skýrsla sóknarnefndar.
  2. Reikningar sóknarinnar lagðir fram til samþykktar.
  3. Önnur mál

Sóknarbörn! Látið ykkur varða málefni kirkjunnar ykkar.             

Sóknarnefnd.    

Kvöldmessa í Egilsstaðakirkju 10. apríl

góði hirðirinnKvöldmessa verður í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 10. apríl kl. 20.

Kór Egilsstaðakirkju, Torvald Gjerde organisti og sr. Þorgeir Arason þjóna við athöfnina.

Kvöldkaffi í kirkjunni eftir messu.

Allir velkomnir!

æskulýðsmessa í Seyðisfjarðarkirkju

Unga fólkið verður í aðalhlutverki í æskulýðsmessu í Seyðisfjarðarkirkju sunnudaginn 10. apríl kl 20. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt unglingunum í æskulýðsfélaginu, sem sjá um allt frá klukknahringingu til hugleiðingar. Súkkulaðikaka og ísköld mjólk í safnaðarheimili eftir messu. Verið velkomin æskulýðshópur

Sunnudagaskólamót á Eskifirði

Úr sunnudagaskólanum í Egilsstaðakirkju í vetur.

Úr sunnudagaskólanum í Egilsstaðakirkju í vetur.

Sunnudaginn 3. apríl fer árlegt sunnudagaskólamót Austurlandsprófastsdæmis fram á Eskifirði.

Ekki verður boðið upp á rútuferð frá Egilsstöðum að þessu sinni en þeir sem tök og áhuga hafa á þátttöku eru hvattir til að fara á einkabílum. Mótið hefst kl. 11:00 í Eskifjarðarkirkju og verður að vanda lífleg og skemmtileg dagskrá í anda sunnudagaskólans, mikill söngur og veitingar í lokin.

Allir eru velkomnir!

Helgihald um bænadaga og páska

(Nöfn fermingarbarna má finna hér.)Jesus_cross

Ássókn í Fellum

Föstudagurinn langi, 25. mars:  Passíusálmarnir lesnir í Kirkjuselinu í Fellabæ. Lesturinn hefst kl. 14:00, stendur í um fjórar klst. og hægt er að koma og fara að vild.

Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 10 árdegis. Kór Áskirkju syngur. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Bakkagerðiskirkja

Annar í páskum, 28. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Bakkasystur, kór kirkjunnar, syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Þorgeir Arason.

Egilsstaðakirkja

Skírdagur, 24. mars:  Fermingarmessa kl. 11. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. – Kyrrðarstund kl. 20 á skírdagskvöld. Altarisganga og Getsemanestund. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason.

Föstudagurinn langi, 25. mars: Æðruleysismessa kl. 20. Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur predikar. Ása Jónsdóttir leikur á fiðlu. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Opinn AA-fundur í kirkjunni eftir messu.

Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 8 árdegis. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Elke Schabel leikur á trompet. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Morgunkaffi í Safnaðarheimili eftir messu.

Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum, kl. 17 á páskadag. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Eiðakirkja

Skírdagur, 24. mars: Messa kl. 14 – Ferming. Kór Eiðakirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Föstudagurinn langi, 25. mars: Lestur Passíusálmanna hefst kl. 14 í umsjón sóknarnefndar.

Hjaltastaðarkirkja:

Skírdagur, 24. mars: Fyrirhuguð kvöldmessa fellur niður.

Kirkjubæjarkirkja:

Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. – Sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Seyðisfjarðarkirkja:

Skírdagur, 24. mars: Messa kl. 11 – Ferming. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Sigurbjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Föstudagurinn langi, 25. mars: Dagskrá í tali og tónum kl. 11. Organisti Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni kl. 9 árdegis. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Sigubjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Morgunkaffi í Safnaðarheimili eftir messu.

Guðsþjónusta á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar kl. 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Sigubjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Vallaneskirkja:

Skírdagur, 24. mars: Messa kl. 11 – Ferming. Kór Vallanes- og Þingmúlasókna syngur. Organisti Tryggvi Hermannsson. Sr. Davíð Þór Jónsson.

Valþjófsstaðarkirkja:

Föstudagurinn langi, 25. mars: Helgiganga frá Valþjófsstað í Skriðuklaustur kl. 11 í samstarfi við Gunnarsstofnun. Lesið úr Passíusálmunum á leiðinni. Hægt að kaupa hádegisverð á Klausturkaffi eftir gönguna. Umsjón sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Þingmúlakirkja:

Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. (Sameiginleg guðsþjónusta fyrir Vallanes- og Þingmúlasóknir.) Kór Vallanes- og Þingmúlasókna syngur. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Kirkjukaffi. – Sunnudagsganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á páskadag er að eyðibýlinu Hátúnum í Skriðdal og þaðan til kirkjunnar. Mæting við Landstólpa (gamla tjaldstæðið) á Egilsstöðum kl. 10. Sameinast í bíla. Allir velkomnir, verð kr. 500.-

Fjölskyldumessur á pálmasunnudag

Pálmasunnudagur – 20. mars

Egilsstaðakirkja:

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 10:30palm-sunday (1)

Lokahátíð barnastarfsins í vetur – Pylsupartí og páskaeggjaleit eftir stundina.

Börn í Stjörnustund flytja helgileik og Mýsla og Rebbi læra um páskana.

Félagar úr kirkjukórnum leiða sönginn.

Prestur er Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde og leiðtogar barnastarfsins taka virkan þátt.

Seyðisfjarðarkirkja

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 – Saga páskanna, kirkjubrúður og páskaeggjaleit eftir stundina.

Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og organisti Sigurður Jónsson.

Verið velkomin til kirkju!

Messa í Seyðisfjarðarkirkju

Sunnudaginn 6. mars sem er fjórði sunnudagur í föstu er messa kl 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt fermingarbörnum sóknarinnar. Eftir messu er boðið upp á kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.

Verið velkominaltari

Alþjóðlegur bænadagur kvenna

Í dag er alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn hátíðlegur víða um heim. Við í Egilstaðaprestakalli verðum með samveru í Kirkjuselinu í Fellabæ kl 17. Í ár er Kúba í miðdepli og er efni bænastundarinnar samið af kúbverskum konum. bænadagur-kvenna-3Eftir bænastundina er boðið upp á létta kaffihúsastemmingu og spjall og allir eru velkomnir, bæði konur og karlar, börn og fullorðnir.

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar á Héraði

Sunnudagurinn 6. mars er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar.

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í Egilsstaðakirkju kl. 10:30Bright air balloons

Söngur og saga – Bænir og blöðrur – Hressing og hlátur!

Gospelmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00 – Sameiginleg æskulýðsmessa safnaða á Héraði

Liljurnar syngja og leiða söng undir stjórn Margrétar Láru Þórarinsdóttur, Tryggvi Hermannsson við flygilinn.

Fermingarbörn vorsins á Héraði taka virkan þátt.

Prestarnir Ólöf Margrét Snorradóttir og Þorgeir Arason þjóna við stundina.

Kirkjukaffi í boði fermingarstúlkna.

Verið velkomin til kirkju!

Laugardaginn 5. mars verður keppt til úrslita í Spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi. Keppnin hefst í Kirkjuselinu í Fellabæ kl. 14:00.  Til úrslita keppa lið Egilsstaða, Fellabæjar, Reyðarfjarðar og Norðfjarðar. Vöfflukaffi og allir eru velkomnir.