Author Archives: egilsstadakirkja

Áramótin 2022-2023

Við þökkum fyrir árið sem er að líða og fögnum nýju ári um leið og við leggjum okkur í Guðs hendur á þessum tímamótum. Hér verður helgihald í prestakallinu um áramótin:

Egilsstaðakirkja 31. desember, gamlársdagur

Aftansöngur kl. 18. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju leiðir söng og kvennakór söngnema undir stjórn Hlínar Pétursdóttir Behrens kemur einnig fram.

Bakkagerðiskirkja 1. janúar, nýársdagur

Hátíðarmessa kl. 14. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes og Bakkasystur leiða söng. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir. Samkvæmt hefðinni góðu bjóða Borgfirðingar í Nýárskaffi kl. 15 í Vinaminni.

Þingmúlakirkja: Jólamessa 27. des.

Á þriðja degi jóla, 27. desember, verður jólaguðsþjónusta í Þingmúlakirkju Skriðdal kl. 14:00. Þar varð messufall á jóladag, en nú hefur vind lægt og snjómokstur í fullum gangi innan sveitar, svo nú er tækifæri til að messa.

Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla syngur. Messukaffi í Þingmúla eftir stundina. Verum velkomin.

Annar jóladagur 26. desember

Gleðilega hátíð. Nú eru aldeilis hvít jól á Héraði og erfiðleikar með færð á vegum og í íbúðagötum. Jólaguðsþjónustur sem vera áttu kl. 14 í dag, annan í jólum, í Egilsstaðakirkju og Hjaltastaðarkirkju, falla því niður.

Jólaguðsþjónusta verður hins vegar á Dyngju kl. 15:00 í dag, 26. desember, eins og til stóð. Sr. Þorgeir Arason þjónar. Organisti Sándor Kerekes. Hlín Pétursdóttir Behrens syngur.

Jóladagur 25. desember

Gleðileg jól! Á jóladag er fjölbreytt helgihald í Egilsstaðaprestakalli. Við erum sérstaklega glöð yfir því hvað er hægt að messa í mörgum af fallegu sveitakirkjunum okkar eftir langan tíma þar sem heimsfaraldurinn kom í veg fyrir það. Verum öll innilega velkomin!

Áskirkja í Fellum

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju. FELLUR NIÐUR VEGNA VEÐURS.

Seyðisfjarðarkirkja

Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Jólaguðsþjónusta á Fossahlíð kl. 15:00. 

Sleðbrjótskirkja

Hátíðarguðsþjónustu frestað vegna færðar og veðurs, nánar auglýst síðar.

Valþjófsstaðarkirkja

Hátíðarguðsþjónusta kl. 16:00 (ath. tímann). Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju.  Einar Sveinn Friðriksson syngur einsöng. FELLUR NIÐUR VEGNA VEÐURS.

Þingmúlakirkja

Hátíðarguðsþjónustu í Þingmúla er frestað vegna færðar og veðurs, nánar auglýst síðar.

Aðfangadagur 24. desember

Á aðfangadegi jóla, 24. desember, verður mikið og fjölbreytt helgihald í Egilsstaðaprestakalli. Hér eru öll velkomin til að taka á móti helgri jólahátíð, eftir því sem hverju og einu hentar.

Egilsstaðakirkja

Jólastund barnanna kl. 14. Helgileikur af fingrum fram, skemmtilegir jólasöngvar – og rauðklæddur leynigestur! Sr. Kristín Þórunn, Sándor og leiðtogar sunnudagaskólans leiða.

Aftansöngur jóla kl. 18. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Arnkell Arason og Ingibjörg Bjarnadóttir syngja dúett. 

Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Auður Jónsdóttir syngur einsöng.

Eiðakirkja

Jólanæturguðsþjónusta kl. 22.30. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Einsöngvari er Heiður Ósk Helgadóttir.

Seyðisfjarðarkirkja

Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju. 

Ljúfir tónar á Þorláksmessu

Það er yndisleg hefð í Egilsstaðakirkju að hafa opna tónlistarstund á kvöldi Þorláksmessu. Þá situr Sándor Kerekes organistinn okkar við hljóðfærin og leikur ljúfa tóna sem koma öllum í jólaskap.

Viðburðurinn er frá kl. 22 til 23 og fólk má koma og fara eins og því hentar. Verið velkomin!

Helgihald um jól og áramót

Það verður fjölbreytt helgihald í kirkjum á Héraði, Seyðisfirði og Bakkagerði um hátíðirnar. Lesið og skoðið….

Áskirkja í Fellum:  

25. desember, jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.  

Bakkagerðiskirkja: 

1. janúar, nýársdagur: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Bakkasystur syngja.  

Egilsstaðakirkja:  

18. desember, fjórði sunnudagur í aðventu: Helgistund með altarisgöngu og miklum söng kl. 10:30. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kórfélagar leiða sönginn. 

23. desember, Þorláksmessa: Söngstund kl. 18:00. Við syngjum saman í kirkjunni í hálftíma-klukkutíma undir forystu Kórs Egilsstaðakirkju.  – Jólatónar við kertaljós kl. 22:00-23:00. Sándor Kerekes organisti við hljóðfærin. Hægt að koma og fara að vild. 

24. desember, aðfangadagur: Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn, Sándor og leiðtogar sunnudagaskólans. 

Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Arnkell Arason og Ingibjörg Bjarnadóttir syngja dúett. 

Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju. Auður Jónsdóttir syngur einsöng.

26. desember, annar dagur jóla: 

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sándor Kerekes. Barnakór Egilsstaðakirkju. Ljósaþáttur fermingarbarna. – Jólaguðsþjónusta á Dyngju 26. des. kl. 15:00. 

31. desember, gamlársdagur: 

Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Sándor Kerekes. Kór Egilsstaðakirkju.

Eiðakirkja:  

24. desember, aðfangadagur: Jólanæturguðsþjónusta kl. 22:30 (ath. tímann). Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Einsöngvari er Heiður Ósk Helgadóttir. 

Hjaltastaðarkirkja:  

26. desember, annar dagur jóla: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar leiða tónlist. Sigurbjörg Vera Ingvarsdóttir syngur einsöng. 

Seyðisfjarðarkirkja:  

24. desember, aðfangadagur: Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju. 

25. desember, jóladagur: Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju. – Jólaguðsþjónusta á Fossahlíð jóladag kl. 15:00. 

Sleðbrjótskirkja:  

25. desember, jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:00 (ath. tímann). Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna. Einsöngvarar eru Ágúst Bragi Daðason og Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.

Valþjófsstaðarkirkja:  

25. desember, jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 16:00 (ath. tímann). Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju.  Einar Sveinn Friðriksson syngur einsöng. 

Þingmúlakirkja:   

25. desember, jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Alfreð Örn Finnsson. Organisti Sándor Kerekes. Kór Vallaness og Þingmúla. 

Aðventukvöld Bakkagerðiskirkju

Í Bakkagerðiskirkju á Borgarfirði eystra höldum við árlega aðventukvöldið okkar á miðvikudaginn, 14. desember kl. 20:00

Bakkasystur syngja falleg aðventu- og jólalög undir stjórn Sándors Kerekes organista. Ira Boiko segir frá jólahaldi í Úkraínu. Systkinin Tinna Jóhanna og Árni Magnús syngja einnig og auðvitað syngjum við öll saman og komumst í hátíðarskap. Sr. Þorgeir og Kristjana meðhjálpari þjóna.

Við erum öll velkomin og svo er kaffisopi í Heiðargerði í lokin.

Aðventukvöld í Hofteigskirkju

Á hinum fornfræga kirkjustað Hofteigi í Jökuldal verður aðventustund miðvikudagskvöldið 14. desember kl. 19.30. Við tendrum ljósin á aðventukransinum, lesum aðventutexta og syngjum saman aðventu- og jólasálma.

Baldur Pálsson frá Aðalbóli í Hrafnkelsdal flytur aðventuorð um samstöðu gegn einelti og mannréttindi sem koma okkur öllum við.

Jólakvartett undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar mun flytja fagra tóna og leiða almennan söng.

Innilega velkomin í Hofteig á aðventukvöld!

Jólasálmastund í Áskirkju

Viltu sitja í rólegheitum og syngja bestu jólasálmana? Velkomin í Áskirkju mánudagskvöldið 12. des kl. 20 þar sem Drífa Sig og kórinn góði leiða okkur í söng og gleði. 

Þeir sálmar sem verða sungnir eru (allir að æfa sig): 

Hátíð fer að höndum ein.
Kom, þú kom, vor Immanúel.
Ó Jesúbarn.
Guðs kristni í heimi, 1,3,4 og 5 erindi.
Englakór frá himnahöll.
Nóttin var sú ágæt ein. 1,2,3 og 4 erindi.
Það aldin út er sprungið.
Bjart er yfir Betlehem.
Í Betlehem er barn oss fætt.
Ó hve dýrðleg er á sjá. 1,2,3 og 7 erindi.
Jesús þú ert vort jólaljós.
Sjá himins opnast hlið. 1, 4 og 6 erindi.
Í dag er glatt í döprum hjörtum. 1,2 og 5 erindi.
Heims um ból.