Category Archives: Uncategorized
Kirkjuskólinn byrjar aftur á Borgarfirði
Kirkjuskólinn á Borgarfirði byrjar aftur mánudaginn 31. ágúst kl. 13:30-14:30
Saga og söngvar, bænir og brúður í Bakkagerðiskirkju.
Svo eru það leikir og hressing í Heiðargerði.
Leikskólabörnin geta gengið til kirkju með presti kl. 13:00.
Svo hittumst við annan hvorn mánudag í vetur.
Allir velkomnir!
Þorgeir Arason, sóknarprestur
Guðsþjónusta og upphaf fermingarstarfanna
Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00.
Félagar úr kirkjukórnum leiða létta sálma við undirleik Torvalds Gjerde
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna.
Allir velkomnir!
Guðsþjónustan markar upphaf fermingarstarfa vetrarins á Héraði og hefur öllum unglingum á svæðinu, sem fæddir eru árið 2002, og forráðamönnum þeirra, verið sent bréf þar sem þau eru boðin sérstaklega velkomin til kirkju þennan dag.
Að lokinni guðsþjónustu fer fram skráning fermingarbarnanna og tilhögun starfsins í vetur kynnt stuttlega fyrir væntanlegum fermingarbörnum og foreldrum/forráðamönnum. Dagskrá lokið ekki seinna en kl. 12:30.
Þau sem ekki geta mætt í Egilsstaðakirkju á sunnudaginn en vilja skrá sig í fermingarundirbúning eru vinsamlegast beðin að hafa samband við sóknarprest Egilsstaðaprestakalls (netfang: thorgeir.arason@kirkjan.is, sími: 471-2724 / 847-9289) og láta vita af forföllum.
Kirkjubæjarkirkja 30. ágúst
Messað verður í Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu sunnudaginn 30. ágúst kl. 14:00.
Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna leiðir söng undir stjórn Magnúsar Magnússonar organista. Magnús leikur nú við sína síðustu messu í kirkjunni og verður þökkuð þjónustan.
Sr. Þorgeir Arason þjónar.
Kaffisala kvenfélagsins í Tungubúð eftir messu.
Allir velkomnir!
Sunnudagur 23. ágúst kl. 11: Guðsþjónusta við rústir klausturkirkjunnar á Skriðuklaustri
Guðsþjónusta beggja siða verður við klausturrústirnar á Skriðuklaustri.

Klausturrústirnar, frá fornleifauppgreftri á Skriðuklaustri.
Mynd: „Skriðuklaustur06“ eftir Christian Bickel – eigin skrá.
Prestar verða séra David Tencer frá st. Þorlákskirkju á Reyðarfirði og sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, prestur í Egilsstaðaprestakalli.
Almennur safnaðarsöngur. Munið að klæða ykkur eftir veðri.
Foreldramorgnar á Egilsstöðum
Í safnaðarheimilinu að Hörgsás 4 hittast foreldrar með ung börn. Hér er tilvalið tækifæri til að styrkja tengsl eða kynnast nýju fólki, eiga gott spjall og bara vera í góðum félagsskap.
Hittingarnir eru á mánudögum kl. 11-13 og miðvikudögum kl. 10-12.
Verið velkomin.
Guðsþjónusta kl. 14 á Möðrudalsgleði 15. ágúst
Á Möðrudalsgleði laugardaginn 15. ágúst verður guðsþjónusta í Möðrudalskirkju.
Hefst hún kl. 14 að lokinni göngu með Venna.
Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Torvald Gjerde. Almennur safnaðarsöngur. Meðhjálpari Vernharður Vilhjálmsson.
Verið innilega velkomin til guðsþjónustu á fjöllum.
Kvöldguðsþjónusta að sumri í Bakkagerðiskirkju 12. ágúst kl. 20
Miðvikudagskvöldið 12. ágúst verður guðsþjónusta í Bakkagerðiskirkju á Borgarfirði eystri. 
Séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina. Organisti er Kristján Gissurarson, kór Bakkagerðiskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Söngur, ritningarlestur, hugleiðing og bæn ásamt blessun með olíu.
Verið hjartanlega velkomin.
Prestur verður til viðtals í safnaðarheimilinu Heiðargerði frá kl. 18 sama dag. Upplýsingar í síma 662 3198 eða á netfangið olof.snorradottir[hjá]kirkjan.is.
Kvöldguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju 9. ágúst kl. 20
Séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir kvöldguðsþjónustu í Egilsstaðakirkju 9. ágúst kl. 20. Organisti Torvald Gjerde.
Allir velkomnir!
Útiguðsþjónusta við Laugarfell 9. ágúst kl. 14
Sunnudaginn 9. ágúst kl. 14 er útiguðsþjónusta við Laugarfell.
Laugarfell er rétt norðan við fjallið Snæfell. Bundið slitlag er alla leið, nema afleggjarann að skálanum, svo greiðfært er öllum bílum.
Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Gylfi Björnsson frá Hofi leikur á harmonikkuna undir almennum safnaðarsöng.
Við verðum við Slæðufoss en ef illa viðrar færum við okkur í skálann.
Allir velkomnir!
Fjölmennum að Laugarfelli og eigum góða stund saman úti í náttúrunni. Munið eftir kaffinu og teppum.


