Category Archives: Uncategorized

Fyrsti sunnudagur í aðventu, 29. nóvember

Egilsstaðakirkja:

cliparti1_advent-clip-art_07

Fjölskyldumessa kl. 10:30. Barnakór kirkjunnar syngur og við kveikjum á fyrsta aðventukertinu.

Nýr límmiði fyrir börnin og Mýsla og Rebbi á sínum stað.

Sr. Þorgeir og leiðtogar sunnudagaskólans leiða stundina.

Organisti er Torvald Gjerde og kórstjóri er Oystein Magnús Gjerde.

„Friður ríkir, fellur jólasnjór“ – Aðventutónleikar Kammerkórs Egilsstaðakirkju kl. 17:00.

Stjórnandi Torvald Gjerde. Kórinn flytur ásamt kammersveit Laudate dominum og Missa brevis í B-dúr eftir Mozart ásamt kammersveit auk íslenskra og erlendra jólaperla. Hefjum aðventuna á ljúfum nótum. Miðaverð: 2.000 kr., 1.500 kr. fyrir stúdenta og eldri borgara, ókeypis fyrir börn og unglinga. Enginn posi.

 

Seyðisfjarðarkirkja:

Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00.

Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sigurbjörg Kristínardóttir organisti og Kór Seyðisfjarðarkirkju þjóna við messuna.

Leiðtogar sunnudagaskólans leiða stundina með börnunum.

Verið velkomin til kirkju á fyrsta sunnudegi í aðventu!

Sorgin og jólin

Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir

Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir

Samvera tileinkuð jólahaldi í skugga missis og sorgar verður fimmtudaginn 26. nóvember nk. kl. 20:00 í Kirkjuselinu í Fellabæ.

Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, sóknarprestur á Fáskrúðsfirði, talar til okkar um efnið „Sorgin og jólin“ og er boðið upp á umræður um efnið í framhaldinu.

Drífa Sigurðardóttir og félagar úr Kór Ássóknar flytja tónlistaratriði, boðið verður upp á kaffi og dagskránni lýkur með stuttri bænastund þar sem hægt verður að tendra ljós í minningu ástvina.

Allir velkomnir.

Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju kl. 10.30

Sunnudagaskóli að venju kl. 10.30 í Egilsstaðakirkju. Söngur, sögur og brúðuleikrit. fadirvor

Kaffi, djús og ávextir eftir stundina.

Allir velkomnir.

Egilsstaðakirkja sunnudaginn 15. nóvember

Verið velkomin til kirkju!

Rebbi og Mýsla eru vinsælir gestir í sunnudagaskólanum.

Rebbi og Mýsla eru vinsælir gestir í sunnudagaskólanum.

Sunnudagaskóli kl. 10.30 í umsjá sr. Þorgeirs og sunnudagaskólaleiðtoga.
Biblíusaga, söngur og mikil gleði að vanda. Rebbi og Mýsla koma í heimsókn. Allir fá límmiða á veggspjaldið sitt.
Djús og dund í lokin.

 

Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld (Matt 11.28).

Messa kl. 18. Guðspjallstexti dagsins er úr Matteusarguðspjalli, 11.25-30.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir styrkri stjórn Torvalds Gjerde organista. Meðhjálpari er Þórdís Kristvinsdóttir.

Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 17.

Messa og sunnudagaskóli Seyðisfjarðarkirkju

sunnudagaskoliSunnudaginn 15. nóvember kl. 11 verður messa í Seyðisfjarðarkirkju. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri og organisti er Sigurbjörg Kristínardóttir.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.

Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama tíma. Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt góðum leiðtogum. Gæðastund fjölskyldunnar með Biblíusögu, kirkjubrúðum og miklum söng.

Kaffi í safnaðarheimili eftir stundina.

Sunnudagur 8. nóvember: Guðsþjónusta í Áskirkju kl. 14

Jesús settist gegnt fjárhirslunni og horfði á fólkið leggja peninga í hana. Margir auðmenn lögðu þar mikið. Þá kom ekkja ein fátæk og lét þar tvo smápeninga, eins eyris virði. Og Jesús kallaði til sín lærisveina sína og sagði við þá: „Sannlega segi ég ykkur, þessi fátæka ekkja gaf meira en allir hinir er lögðu í fjárhirsluna. Allir gáfu þeir af allsnægtum sínum en hún gaf af skorti sínum allt sem hún átti, alla björg sína.“ (Mrk 12.41-44).

 

Guðsþjónusta í Áskirkju 8. nóvember kl. 14.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar, kór Áskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Fermingarbörn aðstoða. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.

Verið velkomin í kirkjuna undir Ási.

 

,,Má bjóða þér að gefa í baukinn?“

Væntanleg fermingarbörn á Héraði og Seyðisfirði ganga í hús og safna fé til vatnsverkefna Hjálparstarfs kirkjunnar. 20151103_155929

3. nóvember milli kl. 17 og 19 ganga börn í Fellabæ í hús.

4. nóvember milli kl. 18 og 20 ganga börn í hús á Egilsstöðum og Seyðisfirði.

Áður en börnin ganga í hús fá þau fræðslu um það hvernig vatnsþró, vatnstankur eða brunnur með hreinu vatni getur gjörbreytt lífi fólks til hins betra: Heilsufar batnar; stúlkur sem áður sóttu vatn um langan veg fá tíma til að sækja skóla; með áveitu verður til meiri og betra fæða og svo koll af kolli.

Með því að taka þátt í fjáröflunarverkefninu fá börnin innsýn í líf jafnaldra sinna í starfssvæðum Hjálparstarfs kirkjunnar í Afríku og kynnast erfiðleikum sem þau búa við. Fermingarbörnin fá líka tækifæri til að ræða um ábyrgð okkar allra á því allir jarðarbúar fái lifað mannsæmandi lífi.

Í nóvember 2014 söfnuðu fermingarbörn á landinu öllu 8.162.460 krónum til vatnsverkefna Hjálparstarfsins í Eþíópíu og Úganda. Söfnunin í ár er sú sautjánda í röðinni en framlag fermingarbarna og stuðningur þeirra er ómetanlegur og kann Hjálparstarfið þeim bestu þakkir fyrir!

Með von um að þú, lesandi góður, takir vel á móti fermingarbörnunum sem banka upp á hjá þér með söfnunarbauk Hjálparstarfs kirkjunnar í hönd. Ef þú ert ekki heima, skilja þau eftir miða með greiðsluupplýsingum um bankareikninn sem hægt er leggja inn á: 0334 – 26 – 56200, kt. 450670-0499. Bestu þakkir!

Happdrætti ÆSKA 2015

Happdrætti ÆSKA 2015

Æskulýðssamband kirkjunnar á Austurlandi (ÆSKA) stóð fyrir happdrætti til styrktar ferð unglinga af svæðinu á landsmót ÆSKÞ í Vestmannaeyjum í október sl. Að auki rann hluti af ágóðanum í geðverndarverkefni Hjálparstarfs kirkjunnar. 20151102_153147

Á annað hundrað unglinga af Austurlandi tók þátt í landsmótinu, þar fór fram fræðsla og skemmtun til uppbyggingar æskunni. Fulltrúi sýslumannsins á Austurlandi dró í happdrættinu þann 2. nóvember, að viðstöddum votti og fulltrúa ÆSKA.

ÆSKA óskar vinningshöfum til hamingju og þakkar veittan stuðning. Enn fremur þakkar ÆSKA öllum sem gáfu vinninga eða studdu happdrættið á annan hátt kærlega fyrir stuðninginn.

Vinninga má vitja í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4. Allar frekari upplýsingar veitir Ólöf Margrét Snorradóttir, s. 662 3198. Vinsamlegast vitjið vinninga fyrir 10. janúar 2016.

Vinningsnúmer:

Happdrætti ÆSKA 2015 Númer
1. Veiðiþjónustan Strengir – Laxveiði ein stöng í einn dag í Breiðdalsá 523
2. Veiðiþjónustan Strengir –  Laxveiði ein stöng í einn dag í Jöklu 375
3. Hótel Alda gisting f. 2 683
4. Sjóstöng ehf í Breiðdal – Sjóstöng og lundaskoðunarferð fyrir tvo 121
5. Hótel Bláfell í Breiðdal – Gisting og morgunverður fyrir tvo 794
6. Fjarðabyggð Heilsurækt 3ja mán. kort 1188
7. Fjarðabyggð Heilsurækt 3ja mán. kort 1038
8. Hótel Staðarborg í Breiðdal – Gisting og morgunverður fyrir tvo 766
9. Hótel Framtíð – gisting fyrir tvo 487
10. Gistiheimilið Saxa á Stöðvarfirði – Gisting og morgunverður fyrir tvo 1228
11. Icelandair gjafabréf 1000
12. Veiðiþjónustan Strengir – Silungsveiði ein stöng í einn dag í Breiðdalsá 682
13. Veiðiþjónustan Strengir – Silungsveiði ein stöng í einn dag í Fögruhliðará 479
14. Mjóeyri ferðaþjónusta – gjafabréf 746
15. NorðAustur Seyðisfirði gjafabréf f. 2 151
16. Vapp – Hús handanna 367
17. Brekkan Stöðvarfirði – Pitsuveisla fyrir fimm 43
18. Tónlistarmiðstöð Austurlands Eskifirði 379
19. Ilmvatnið Love – Snyrtistofan Hafblik 1049
20. Gullabúið – skartgripahengi 161
21. Snyrtistofan Alda, fótsnyrting 18
22. Hótel Hérað – Brunch f. 2 127
23. Hótel Hérað – Brunch f. 2 870
24. Hótel Hérað – Brunch f. 2 879
25. Hótel Hérað – Brunch f. 2 124
26. Hótel Hérað – Brunch f. 2 302
27. Kvöldverðarhlaðborð á Narfastöðum 377
28. Kvöldverðarhlaðborð á Narfastöðum 126
29. Hótel Framtíð – pizzaveisla fyrir tvo 474
30. Móðir jörð – gjafakarfa 60
31. Fellabakarí gjafabréf 177
32. Kaffi Sumarlína, Fáskrúðsfirði – Gjafabréf 206
33. Kaffi Sumarlína, Fáskrúðsfirði – Gjafabréf 945
34. Body Butter – Snyrtistofan Hafblik 965
35. Við Voginn – Ljósmynd e. Michael Bullock 107
36. Böggablóm Eskifirði – gjafabréf 1171
37. Kaffi Egilsstaðir gjafabréf 992
38. Olís Reyðarfirði 1296
39. Shellskálinn Eskifirði 988
40. Geirabók 1292
41. Bókakaffi Hlöðum, kaffihlaðborð f. 2 892
42. Kjöt og fiskur gjafabréf 940
43. Hárvörur – Lyfsalan Vopnafirði 370
44. Milk Shake hárvörur frá Hár.is 942
45. Skaftfell Bistro Pizza 589
46. Harðfiskur – Fiskverkun Kalla Sveins 354
47. Harðfiskur – Fiskverkun Kalla Sveins 347
48. Langabúð á Djúpavogi – Gjafabréf 519
49. Langabúð á Djúpavogi – Gjafabréf 1248
50. Kirkjuhúsið – Bláa Biblían 1001
51. Kirkjuhúsið – Bænabókin 412
52. Austan um land, ljóðabók Sigurðar Óskars Pálssonar 369

Ljósamessa í Egilsstaðakirkju 1. nóv. kl. 20 – Gospel

Northern-Lights-IcelandSunnudagaskólinn á sínum stað 1. nóvember kl. 10:30 í Egilsstaðakirkju. Söngur, brúður, saga, litamynd og nýr límmiði.

Sunnudagskvöldið 1. nóvember kl. 20:00: Gospelmessa í Egilsstaðakirkju – Ljósamessa.

Í tilefni af Dögum myrkurs lýsum við kirkjuna upp með lifandi ljósum og íhugum „ljósið í myrkrinu.“

Liljurnar syngja og leiða sönginn, kórstjóri Margrét Lára Þórarinsdóttir og undirleikari Tryggvi Hermannsson.

Prestur er Þorgeir Arason.

Kaffisopi eftir messu. Allir velkomnir!

,,Ég er ljós heimsins“ Seyðisfjarðarkirkja

Sunnudaginn 1. nóvember er fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Sigurbjargar Kristínadóttur organista. Biblíusaga um ljós og myrkur, kirkjubrúður, myrkraleikur og mikill söngur. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt fermingarbörnum og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Myrkrarkaffi
í safnaðarheimili eftir stundina. altari
Verið velkomin