Egilsstaðakirkja sunnudaginn 15. nóvember
Verið velkomin til kirkju!
Sunnudagaskóli kl. 10.30 í umsjá sr. Þorgeirs og sunnudagaskólaleiðtoga.
Biblíusaga, söngur og mikil gleði að vanda. Rebbi og Mýsla koma í heimsókn. Allir fá límmiða á veggspjaldið sitt.
Djús og dund í lokin.
Komið til mín, öll þér sem erfiðið og þunga eruð hlaðin, og ég mun veita yður hvíld (Matt 11.28).
Messa kl. 18. Guðspjallstexti dagsins er úr Matteusarguðspjalli, 11.25-30.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir styrkri stjórn Torvalds Gjerde organista. Meðhjálpari er Þórdís Kristvinsdóttir.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 17.
Posted on 12/11/2015, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0