Category Archives: Uncategorized
Annar í aðventu í Egilsstaðakirkju
Egilsstaðakirkja – 10. desember, annar sunnudagur í aðventu:
Sunnudagaskóli kl. 10:30 – síðasta samvera fyrir jól. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina
Aðventuhátíð kirkjunnar kl. 18:00
Barnakór kirkjunnar, Liljurnar og Kirkjukórinn syngja. Ljósaþáttur fermingarbarna. Rúnar Snær Reynisson sér um jólalegan upplestur. Hugvekja: Sr. Erla Björk Jónsdóttir héraðsprestur. Að venju hefst stundin á að kveikt er á ljósunum á jólatrénu við kirkjuna og endar á að allir í kirkjunni kveikja á kertum og sameinast í söng. Verið velkomin! Þorgeir Arason, sóknarprestur.
Aðventuhátíð í Vallaneskirkju

Vallaneskirkja
Aðventuhátíð Valla, Skóga og Skriðdals verður í Vallanesi laugardaginn 9. desember kl. 15:00.
Kór Vallaness og Þingmúla syngur og leiðir almennan söng
Ragnhildur Elín, Soffía Mjöll og Sara Lind sjá um tónlistaratriði
Jóhanna Hafliðadóttir annast jólalegan upplestur
Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og flytur hugvekju
Kaffi, safi og smákökur eftir stundina
Verið velkomin!
Aðventukvöld í Kirkjubæjarkirkju
Aðventukvöld Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna 2017 verður haldið í Kirkjubæjarkirkju fimmtudagskvöldið 7. desember kl. 20:00.
Kirkjukór Kirkjubæjar og Sleðbrjóts syngur, organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Angelika Liebermeister syngur einsöng. Við heyrum jólafrásögn tengda Tungunni. Sr. Þorgeir leiðir stundina og flytur hugvekju.
Eftir stundina í kirkjunni býður Kvenfélag Hróarstungu í aðventukaffi í Tungubúð. Verið velkomin.
Aðventukvöld Ássóknar: 6. desember kl. 20 í Kirkjuselinu
Aðventukvöld Ássóknar miðvikudagskvöldið 6. desember kl. 20
í Kirkjuselinu Fellabæ!
Söngur, hugleiðing, helgileikur, kaffi og smákökur!

Fram koma: Kór Áskirkju ásamt barnakór, stjórnandi og undirleikari Drífa Sigurðardóttir, Sigrún Jóna Hauksdóttir og börn úr barnastarfinu. Fermingarbörn aðstoða. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina.
Kaffi og smákökur í lokin.
Verið hjartanlega velkomin á aðventukvöldið!
Aðventuhátíð Eiða- og Hjaltastaðarsókna í Hjaltastaðarkirkju og heitt kakó og smákökur í Hjaltalundi eftir stundina.
Sameiginleg aðventuhátíð Eiða- og Hjaltastaðarsókna verður haldin í Hjaltastaðarkirkju á fyrsta sunnudegi í aðventu, 3. desember kl. 16.00.
Anna Þórhallsdóttir, Ormsstöðum flytur jólahugleiðingu. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Organgisti er Torvald Gjerde.
Eftir stundina er boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur í Hjaltalundi.
Verið velkomin
Að komast af þrátt fyrir jólin
Að komast af þrátt fyrir jólin – samvera um sorg og missi í nánd hátíðar í Kirkjuselinu í Fellabæ fimmtudaginn 30. nóvember kl. 20:00


Sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sérþjónustuprestur hjá Þjóðkirkjunni, talar um hátíðina framundan og sorgina en jólin geta reynst syrgjendum erfið tími. Kristinn Ágúst hefur um þrjátíu ára reynslu af prestsskap auk sérmenntunar í sálgæslu og sáttamiðlun.
Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina. Drífa Sigurðardóttir og félagar úr Kór Áskirkju flytja hugljúfa tónlist. Kveikt á kertum í minningu látinna ástvina.
Kaffi og spjall í lok stundar.
Allir velkomnir!
Messa og sunnudagskóli í Seyðisfjarðarkirkju
Hvað er huggulegra á köldum sunnudagsmorgni en að fara til kirkju og eiga gott samfélag í messukaffi á eftir stundina.
Á síðasta sunnudegi kirkjuársins, þann 26. nóvember er messa kl. 11.
Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama tíma. Ísold og hinir leiðtogarnir leiða skemmtilega dagskrá, Vaka og Rebbi koma í heimsókn og svo verður sýnt
nýtt myndband með Hafdísi og Klemma. Hressing í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Eftir stundina er hressing í safnaðarheimili kirkjunnar.
Verið velkomin.
Laust starf við Egilsstaðakirkju
Sóknarnefnd Egilsstaðakirkju auglýsir laust til umsóknar starf kirkjuvarðar og meðhjálpara við kirkjuna. Um er að ræða 50% starf, sem laust er frá 1. janúar 2018.
Í starfinu felst m.a. almenn ræsting og umhirða kirkjuhússins, undirbúningur og aðstoð
við ýmsar kirkjulegar athafnir, innkaup og umsjón með útleigu og bókun viðburða í kirkjunni. Vinnutími er óreglulegur og að nokkru leyti eftir samkomulagi. Um launakjör fer eftir kjarasamningi.
Nánari upplýsingar veita Þorgeir Arason, sóknarprestur, í síma 847-9289, og Jónas Þór Jóhannsson, formaður sóknarnefndar, í síma 893-1001.
Umsóknir berist á netfangið jonas.thor@simnet.is fyrir 10. desember nk.
Starfslýsing fyrir kirkjuvörð við Egilsstaðakirkju Gildir frá 1. sept. 2016 að telja
- Kirkjuvörður annast þrif og umhirðu í kirkju og ber ábyrgð á, að snyrtimennska og virðing fyrir starfsemi kirkjunnar sé þar í öndvegi.
- Vikuleg þrif eða oftar eftir þörfum: öll salerni þrifin, öll gólf ryksuguð og skúruð eftir þörfum. Umhirða í eldhúsi (frágangur, þvottur á tuskum og dúkum o.fl.).
- Afþurrkun eftir þörfum (þó eigi sjaldnar en mánaðarlega).
- Önnur þrif fyrir athafnir/viðburði og önnur stærri þrif, ákveðin í samráði við sóknarprest hverju sinni.
- Umsjón og ábyrgð á að safnaðarheimili sé þrifið.
- Kirkjuvörður hefur umsjón með útleigu og bókun viðburða í safnaðarheimili og kirkju, heldur utan um dagbók og rafræna skráningu viðburða og innheimtir leigugjald eftir ákvörðun sóknarnefndar, enn fremur STEF-gjald af gjaldskyldum tónleikum. Sé kirkjan leigð út til aðila henni óskyldri er kirkjuvörður jafnan þar til staðar og innheimtir eigin laun fyrir þá vinnu með reikningi til leigutaka auk þess að innheimta leigugjald kirkjunnar. Teljast vinnustundir við slík tilefni því ekki til almennra vinnustunda kirkjuvarðar en þó skráðar í dagbók.
- Kirkjuvörður hefur umsjón með almennu eftirliti og viðhaldi á kirkju og innanstokksmunum, annast sjálfur minni háttar viðhald og kallar fagmenn til starfa við það eftir þörfum.
- Kirkjuvörður undirbýr, aðstoðar við og gengur frá eftir kirkjulegar athafnir. Þar með talið:
- Annast útfararstjórn
- Sinnir meðhjálparastarfi við guðsþjónustur eftir nánara samkomulagi við sóknarprest
- Undirbýr fermingar með presti og hefur umsjón með kyrtlum
- Aðstoðar kirkjukór
- Hefur umsjón með messukaffi í samráði við prest og sjálfboðaliða hverju sinni
- Undirbýr og aðstoðar við hjónavígslur
- Annað eftir nánari ákvörðun sóknarprests. Að jafnaði er þó ekki þörf á að kirkjuvörður sé viðstaddur skírnir utan guðsþjónustu, barnastarf í kirkjunni eða annað almennt safnaðarstarf.
- Um kirkjulegar athafnir og umhirðu kirkjunnar vísast að öðru leyti til bókarinnar „Þjónar í húsi Guðs“, einkum 4. kaflans „Hlutverk þjóna í þjónustunni.“
- Kirkjuvörður annast innkaup fyrir kirkju og safnaðarheimili og ber ábyrgð á að til staðar séu þær rekstrarvörur sem á þarf að halda í starfi safnaðarins.
- Kirkjuvörður dregur upp fána við kirkjuna alla þá daga sem guðsþjónustur og aðrar athafnir fara fram í kirkjunni, og á öðrum íslenskum fánadögum skv. forsetaúrskurði.
- Kirkjuvörður situr mánaðarlega starfsmannafundi og stuðlar fyrir sitt leyti að góðu samstarfi innan kirkjunnar og að farsælu skipulagi safnaðarstarfsins.
- Kirkjuvörður ber ábyrgð á snjómokstri við kirkjuna.
- Kirkjuvörður hefur umsjón með lyklum að kirkjunni og lánar þá og heldur skrá þar um í samráði við sóknarnefnd og sóknarprest.
- Kirkjuvörður er bundinn þagnarskyldu um hvaðeina sem hann fær vitneskju um eða verður áskynja í starfi sínu og leynt skal fara.
- Kirkjuvörður hefur sveigjanlegan en óreglulegan vinnutíma og hægt er að kveðja hann til starfa helgidaga jafnt sem aðra daga. Kirkjuvörður skal reglulega skila sóknarnefnd og sóknarpresti skráningu yfir vinnutíma sinn og hvernig honum er varið og fær greiddar yfirvinnustundir samkvæmt þeirri skráningu.
Fréttatilkynning
Jólasjóður Héraðs, Borgarfjarðar, Seyðisfjarðar og Djúpavogs
Rauði krossinn, Þjóðkirkjan, AFL starfsgreinafélag og Lionsklúbburinn Múli hafa síðustu ár tekið höndum saman og látið fé af hendi rakna í jólasjóð sem starfræktur er í samvinnu við félagsþjónustu Fljótsdalshéraðs. Einnig hefur styrkjum verið safnað frá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum í sjóðinn. Markmið Jólasjóðsins er að styrkja fjölskyldur og einstaklinga á Fljótsdalshéraði, Borgarfirði, Seyðisfirði og Djúpavogi sem búa við þröngan kost og létta þannig undir fyrir jólahátíðina. Á síðasta ári var úthlutað úr sjóðnum 2,5 milljónum í formi inneignarkorta í Nettó og Bónus og rann aðstoðin til 55 heimila.
Engin breyting verður á söfnun í jólasjóðinn í ár og hægt er að styrkja sjóðinn með því að leggja inn á reikning 0175-15-380606 kt. 530505-0570 en söfnunarreikningurinn er í nafni Safnaðarsamlags Egilsstaðaprestakalls (ekki er tekið við gjöfum eða mat).
Þeim sem styrkt hafa sjóðinn síðustu ár, þökkum við kærlega fyrir stuðninginn.
Nánari upplýsingar veitir Björn Ármann Ólafsson, svæðisfulltrúi Rauða krossins á Austurlandi, bjorn.armann@redcross.is eða í síma 864-6753.
Helgihald 19. nóvember

Sunnudagurinn 19. nóvember
Egilsstaðakirkja
Sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 10:30. Sr. Ólöf Margrét og leiðtogarnir sjá um líflega stund.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 17:00.
Messa í kirkjunni kl. 18:00.
Sr. Erla Björk Jónsdóttir, héraðsprestur á Austurlandi, þjónar. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Molasopi eftir messu.
Allir velkomnir!