
Category Archives: Uncategorized
Helgistund í Egilsstaðakirkju 1. ágúst
Sunnudaginn 1. ágúst verður helgistund í Egilsstaðakirkju kl. 10:30.

Prestur er Þorgeir Arason.
Hreinn Halldórsson leikur á harmoniku undir almennum söng.
Meðhjálpari Auður Anna Ingólfsdóttir.
Kaffisopi í kirkjunni eftir stundina.
Verið velkomin!
Minnum einnig á hádegisbænastundina í Safnaðarheimili alla þriðjudaga kl. 12:00.
Klyppstaðarkirkja: Messa 18. júlí

Hin árlega messa á Klyppstað í Loðmundarfirði verður að þessu sinni sunnudaginn 18. júlí kl. 14:00.
Prestar sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir og sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur frá Borgarfirði syngja. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir. Kirkjukaffi í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á staðnum að messu lokinni.
Til að komast til kirkjunnar þarf að aka veginn frá Borgarfirði eystra til Loðmundarfjarðar og er gott að gefa sér um 90 mín. í þann akstur. Vinsamlega athugið að sá vegur er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.
Annual worship in the old Klyppstaður Church in Loðmundarfjörður, on Sunday, July 18th, at 2pm. Coffee hour after the service. Feel free to come and worship with us at this remote but picturesque location! Please note that you will need a 4WD vehicle to do the drive (appr. 90 min.) from Borgarfjörður village to the church. Worship in Icelandic.
Sunnudagur 4. júlí: Útimessa í Selskógi og sumarmessa á Jökuldal
Árleg guðsþjónusta í útileikhúsinu í Selskógi á Egilsstöðum 4. júlí kl. 11.
Göngustígur liggur frá bílastæði við Selskóg.
Torvald Gjerde leikur á harmoniku.
Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir
Boðið verður upp á pylsur í skóginum eftir stundina.
Allir velkomnir!
Eiríksstaðakirkja á Efra-Jökuldal:
Sumarmessa sunnudaginn 4. júlí kl. 14:00 – Ferming
Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Velkomin til kirkju!
Aðalsafnaðarfundir
Þingmúlasókn
Aðalsafnaðarfundur Þingmúlasóknar verður haldinn að Mýrum miðvikudaginn 23. júní kl. 20. Venjuleg aðalfundarstörf.
Bakkagerðissókn
Aðalsafnaðarfundur fimmtudaginn 24. júní kl. 17 í safnaðarheimilinu. Venjuleg aðalfundarstörf.
Hjaltastaðarsókn
Aðalsafnaðarfundur þriðjudaginn 29. júní kl. 17 í Hjaltastaðarkirkju. Venjuleg aðalfundarstörf.
Valþjófsstaðarsókn
Aðalsafnaðarfundur miðvikudaginn 30. júní kl. 20 í Valþjófsstaðarkirkju. Venjuleg aðalfundarstörf.
Aðalsafnaðarfundir eru opnir öllum sóknarbörnum hverrar sóknar. Látum okkur varða málefni kirkjunnar okkar.
17. júní – guðsþjónusta og fermingar

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní
Egilsstaðakirkja:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 10:30. Prestur Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Torvald Gjerde, kór Egilsstaðakirkju syngur. Skrúðganga frá kirkjunni kl. 11.
Seyðisfjarðarkirkja:
Fermingarguðsþjónusta kl. 11. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir, organisti Rusa Petriashvili, kór Seyðisfjarðarkirkju syngur.
Eiðakirkja:
Fermingarguðsþjónusta kl. 13. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson, kór Eiðakirkju syngur.
Sleðbrjótskirkja:
Fermingarguðsþjónusta kl. 16. Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson, kór Sleðbrjóts- og Kirkjubæjarsókna syngur.





