Author Archives: egilsstadakirkja

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju byrjar aftur 13. septembersunnudagaskólinn

og verður alla sunnudaga í vetur í kirkjunni kl. 10:30 (ATH! Breyttur tími)

Smellið hér til að sjá glænýtt og fjörugt kynningarmyndband sunnudagaskólans!

Saga, hreyfisöngvar, brúður, bænir og kirkjuleikfimi!

Djús, ávextir og litastund í lok hverrar samveru, sem er um klukkustund að öllu meðtöldu.

Sunnudagaskólinn er sérstaklega sniðinn að þörfum yngstu barnanna (leikskóla og yngstu grunnskólabarna) en allir eru alltaf velkomnir, stórir og smáir. Að sjálfsögðu fylgir enginn kostnaður þátttöku.

Í upphafi vetrar fá börnin hæðarmæli (plakat) sem hægt er að hengja upp heima og safna svo nýjum límmiða á plakatið á hverjum sunnudegi vetrarins.

Leiðtogar í vetur verða Dagmar Ósk Atladóttir, Guðný Jónsdóttir, Torvald Gjerde við píanóið, sr. Þorgeir, Aðalheiður Ósk og Elísa Petra auk þess sem fermingarbörnin eru til aðstoðar.

Kirkjur Íslands – Málstofa og opnun sýningar á Egilsstöðum

Kirkjubæjarkirkja, elsta kirkjan á Héraði

Kirkjubæjarkirkja, elsta kirkjan á Héraði

Í tilefni þess að út eru komin tvö ný bindi – hið tuttugasta og fjórða og fimmta – í ritröðinni Kirkjur Íslands býður Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands, Biskupsstofa og Hið íslenska bókmenntafélag til málstofu og opnunar sýningar á Egilsstöðum laugardaginn 5. september kl. 15:00. Málstofan fer fram í húsnæði Austurbrúar við Tjarnargötu 39 en sýningin er sett upp í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.

Friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi.

Dagskrá:

1. Þorsteinn Gunnarsson arkitekt og ritstjóri:

Kirkjur Íslands.

2. Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra:

Kirkjustaðir í Múlaprófastsdæmi.

3. Pétur H. Ármannsson arkitekt hjá Minjastofnun Íslands:

Friðaðar kirkjur í Múlaprófastsdæmi.

4. Lilja Árnadóttir safnvörður munasafns Þjóðminjasafns Íslands:

Nokkrir gripir, fornir og nýir, í kirkjum í Múlaprófastsdæmi.

5. Guðlaug Vilbogadóttir sérfræðingur hjá Minjastofnun Íslands:

Minningarmörk í Múlaprófastsdæmi.

Að málstofunni lokinni mun séra Davíð Baldursson prófastur opna sýningu um kirkjur, gripi og minningarmörk ,sem byggir á ritverkinu, í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.

Fundarstjóri er Rúnar Leifsson minjavörður Austurlands.

Kirkjur Íslands er grundvallarrit um friðaðar kirkjur á Íslandi þar sem horft er á þær frá sjónarhóli byggingarlistar, stílfræði og þjóðminjavörslu. Í máli og myndum er fjallað um kirkjurnar sjálfar ásamt kirkjugripum og minningarmörkum. Kirkjur Íslands eru vandaðar og glæsilegar bækur sem opna sýn inn í mikilvægan þátt í íslenskri menningarsögu. Til útgáfunnar var stofnað í tilefni af 1000 ára afmæli kristnitöku á Íslandi. Áætlað er að bókaflokkurinn verði 28 bindi og útgáfunni ljúki 2016.

Að útgáfunni standa Minjastofnun Íslands, Þjóðminjasafn Íslands og Biskupsstofa. Meðútgefandi og dreifingaraðili er Hið íslenska bókmenntafélag.

Verið velkomin til málstofu og opnunar sýningar laugardaginn 5. september klukkan 15:00 að Austurbrú, Tjarnarbraut 39, Egilsstöðum, og síðar í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju.

Stjörnustund í Egilsstaðakirkju

kids-playingMánudaginn 1. september hefst Stjörnustund aftur í Egilsstaðakirkju og verða samverur alla mánudaga kl. 17:00-18:30.

Stjörnustund er kristið frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk. Í hverri viku bröllum við eitthvað skemmtilegt eins og sjá má á dagskránni að neðan og helgistund með söng og biblíusögu er fastur liður. Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu, nema annað sé auglýst sérstaklega. Hressing í upphafi hvers fundar.

Umsjón hafa Snjólaug og Dagbjört ásamt frábærum aðstoðarleiðtogum.

Upplýsingar og skráning hjá sóknarpresti í síma 847-9289 eða með tölvupósti: thorgeir.arason@kirkjan.is. Það er þó ekki þörf á að skrá sig fyrir fyrsta fundinn, nóg að mæta og prófa 🙂

Dagskrá haustönn 2015:

7. september – Kynning og Leikir

14. september – Blöðrubrjálæði

21. september – Spilafundur, koma með spil að heiman

28. september – útifundur, fótbolti og leikir

5. október – Æfing fyrir hæfileikasýningu

12. október – HÆFILEIKASÝNING til styrktar fósturbarni kirkjunnar á Indlandi (500 kr. aðgangseyrir)

19. október – VETRARFRÍ

26. október – Föndurstund

2. nóvember – Jól í skókassa

9. nóvember – Nammispurningakeppni

16. nóvember – Ratleikur

23. nóvember – Fáránleikar

30. nóvember – Jólafundur

Kirkjuskólinn byrjar aftur á Borgarfirði

nigerian-clipart-Clip-Art-Kids_jpegKirkjuskólinn á Borgarfirði byrjar aftur mánudaginn 31. ágúst kl. 13:30-14:30

Saga og söngvar, bænir og brúður í Bakkagerðiskirkju.

Svo eru það leikir og hressing í Heiðargerði.

Leikskólabörnin geta gengið til kirkju með presti kl. 13:00.

Svo hittumst við annan hvorn mánudag í vetur.

Allir velkomnir!

Þorgeir Arason, sóknarprestur

Guðsþjónusta og upphaf fermingarstarfanna

CrownGuðsþjónusta í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 30. ágúst kl. 11:00.

Félagar úr kirkjukórnum leiða létta sálma við undirleik Torvalds Gjerde

Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna.

Allir velkomnir!

Guðsþjónustan markar upphaf fermingarstarfa vetrarins á Héraði og hefur öllum unglingum á svæðinu, sem fæddir eru árið 2002, og forráðamönnum þeirra, verið sent bréf þar sem þau eru boðin sérstaklega velkomin til kirkju þennan dag.

Að lokinni guðsþjónustu fer fram skráning fermingarbarnanna og tilhögun starfsins í vetur kynnt stuttlega fyrir væntanlegum fermingarbörnum og foreldrum/forráðamönnum. Dagskrá lokið ekki seinna en kl. 12:30.

Þau sem ekki geta mætt í Egilsstaðakirkju á sunnudaginn en vilja skrá sig í fermingarundirbúning eru vinsamlegast beðin að hafa samband við sóknarprest Egilsstaðaprestakalls (netfang: thorgeir.arason@kirkjan.is, sími: 471-2724 / 847-9289) og láta vita af forföllum.

Kirkjubæjarkirkja 30. ágúst

Kirkjubæjarkirkja-1-500x328Messað verður í Kirkjubæjarkirkju í Hróarstungu sunnudaginn 30. ágúst kl. 14:00.

Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna leiðir söng undir stjórn Magnúsar Magnússonar organista. Magnús leikur nú við sína síðustu messu í kirkjunni og verður þökkuð þjónustan.

Sr. Þorgeir Arason þjónar.

Kaffisala kvenfélagsins í Tungubúð eftir messu.

Allir velkomnir!

Ljóðamessa í Egilsstaðakirkju á sunnudagskvöld

962165_f520Sunnudaginn 26. júlí kl. 20:00, verður haldin ljóðamessa í Egilsstaðakirkju. Séra Davíð Þór Jónsson þjónar fyrir altari og prédikar.

Kór og organisti verða í hvíld, en í staðinn verður hið talaða orð, skáldskapurinn, í brennidepli. Messan verður með hefðbundnu sniði að því undanskildu að í stað sálmasöngs lesa austfirsk skáld frumsamin ljóð með andlegu og trúarlegu ívafi. Skáldin sem leggja hönd á plóg í ljóðamessunni eru Arnar Sigbjörnsson, Hulda Sigurdís Þráinsdóttir, Ingunn Snædal, Sigurður Ingólfsson og Stefán Bogi Sveinsson.

Að sjálfsögðu eru allir velkomnir og vonast aðstandendur til að sem flestir láti sjá sig.

Sleðbrjótskirkja – Messa 26. júlí kl. 14

Sleðbrjótskirkja-2-500x333Messað verður í Sleðbrjótskirkju í Jökulsárhlíð sunnudaginn 26. júlí kl. 14 (ath. breyttan messutíma).

Prestur sr. Davíð Þór Jónsson. Organisti Magnús Magnússon. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna leiðir söng. Meðhjálpari Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.

Allir velkomnir.

Klyppstaðarkirkja í Loðmundarfirði

Klyppstaðarkirkja

Klyppstaðarkirkja (Mynd: Magnús R. Jónsson)

Árleg messa í Klyppsstaðarkirkju í Loðmundarfirði fer að þessu sinni fram sunnudaginn 19. júlí kl. 14:00. Þangað eru allir velkomnir.

Athugið að til kirkjunnar þarf að áætla um 1,5 klst. akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.

Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Vigfúsi I. Ingvarssyni. Félagar úr Kór Seyðisfjarðarkirkju leiða almennan söng. Meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir.
Kirkjukaffi drukkið í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs.
Ferðafélagið stendur í tengslum við messuna fyrir kirkjuferð eldri borgara á Klyppstað í leiðsögn sr. Vigfúsar. Sjá nánar hér á vef félagsins.

Kirkjan á Klyppstað í Loðmundarfirði er látlaus og formfögur timburkirkja, reist árið 1895. Yfirsmiður var Jón Baldvin Jóhannesson, bóndi í Stakkahlíð.

Klyppstaður fór í eyði 1962 og önnur byggð í Loðmundarfirði lagðist af upp úr 1970. Kirkjan stendur enn og voru miklar endurbætur gerðar á henni á árunum 1976-1986 og árið 1990 var hún friðuð. Ferðafélag Fljótsdalshéraðs tók kirkjuna undir sinn verndarvæng árið 2010 og var hún máluð að utan það sumar.

Messa í Egilsstaðakirkju 12. júlí

EgskirkjaMessað verður í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 12. júlí kl. 11:00.

Þorgeir Arason sóknarprestur predikar og leiðir stundina. Organisti Torvald Gjerde. Meðhjálpari Þórdís Kristvinsdóttir.

Almennur safnaðarsöngur.

Kaffisopi eftir messu.

Allir velkomnir.