Author Archives: egilsstadakirkja
Egilsstaðakirkja – Sunnudagurinn 25. september
Barnakór Egilsstaðakirkju
Barnakór Egilsstaðakirkju er að hefja æfingar að nýju! Kórstjóri í vetur eins og síðasta vetur verður Øystein Magnús Gjerde og undirleikari er Torvald Gjerde. Æfingarnar í vetur verða alla miðvikudaga kl. 17:45-18:45 í kirkjunni og fyrsta æfingin er miðvikudaginn 21. september. Það er nóg að mæta á æfingu til að prófa, fá upplýsingar eða skrá sig en það má líka hafa samband við Torvald: torvald (hjá) ts.is og sími 869-8133.
Sunnudagur 18. september: Seyðisfjarðarkirkja kl. 11, Kirkjusel kl. 20
„Verið í hvívetna lítillát og hógvær. Verið þolinmóð, langlynd, umberið og elskið hvert annað.“ (Ef 4.2)
Messa í Seyðisfjarðarkirkju sunnudaginn 18. september kl. 11.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Tryggvi Hermannsson, kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.
Kvöldmessa í Kirkjuselinu Fellabæ kl. 20.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina. Áslaug Sigurgestsdóttir leiðir söng.
Verið velkomin!
Minnum á sunnudagaskólann í Egilsstaðakirkju alla sunnudaga kl. 10.30.
Sunnudagaskólinn er byrjaður aftur!
Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er byrjaður aftur og verður alla sunnudaga kl. 10:30 í vetur!
10. september Alþjóðlegur forvarnardagur sjálfsvíga
Minningastund með hugvekju og tónlist í Egilsstaðakirkju kl. 20 laugardaginn 10. september
10. september ár hvert er helgaður sjálfsvígsforvörnum og þann dag eru einnig kyrrðarstundir víða um land til að heiðra minningu þeirra sem fallið hafa fyrir eigin hendi.
Tónlist, hugvekja og kveikt á kertum í minningu látinna ástvina. Einnig verður umfjöllun um forvarnir og stuðning við ástvini. Kaffisopi og spjall í lokin.
Allir velkomnir.
Tvær guðsþjónustur á Héraði 4. september
Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 11.
Væntanleg fermingarbörn vorsins 2017 í Egilsstaðaprestakalli eru boðin sérstaklega velkomin til kirkju ásamt forráðamönnum og kynningar- og skráningarfundur vegna fermingarstarfanna verður að athöfn lokinni.
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir predikar, sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna fyrir altari, organisti er Torvald Gjerde. Félagar úr Kór Egilsstaðakirkju leiða sönginn. Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir. Allir velkomnir.
Guðsþjónusta í Kirkjubæjarkirkju kl. 14.
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Jón Ólafur Sigurðsson og Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur. Meðhjálpari er Gunnar Guttormsson og kirkjuvörður Svandís Skúladóttir.
Kaffisala Kvenfélags Hróarstungu verður í Tungubúð að athöfn lokinni.
Allir velkomnir!
Kvöldguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju

Seyðisfjörður. Ljsm. Ómar Bogason.
Sunnudaginn 4. september kl 20 er kvöldguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Tryggvi Hermannsson. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.
Verið velkomin.
Kyrrðardagur á Egilsstöðum 3. september
Kyrrðardagur í Egilsstaðakirkju laugardaginn 3. september kl. 10-15. Kynnt verður íhugunaraðferðin „Kyrrðarbæn“ (Centering Prayer). Sjá nánar: kristinihugun.is
Leiðbeinandi er sr. Guðrún Eggertsdóttir, sjúkrahúsprestur á Akureyri sem hefur langa reynslu af iðkun og kennslu Kyrrðarbænarinnar.
Verð kr. 1500 á mann og er léttur hádegisverður innifalinn í verðinu.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hjá sóknarpresti fyrir 1. sept. í síma 847-9289 / netfang: thorgeir.arason@kirkjan.is
Möguleiki er á að hópur iðkenda starfi í kirkjunni í vetur í framhaldi af kyrrðardeginum.
Allir velkomnir!
130 ára afmæli Eiðakirkju Hátíðarmessa sunnudaginn 28. ágúst kl 14.00
Sunnudaginn 28. ágúst verður 130 ára afmæli Eiðakirkju haldið hátíðlegt. Jafnframt er fagnað endurbótum á kirkjunni og umhverfi hennar og nýtt orgel blessað.
Hátíðarmessa hefst í kirkjunni kl. 14:00 þar sem biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, predikar. Prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sr. Davíð Baldursson þjónar ásamt sr. Jóhönnu I. Sigmarsdóttur, fv. sóknarpresti, sr. Þorgeiri Arasyni og sr. Sigríði Rún Tryggvadóttur.
Kór Eiðakirkju syngur og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson.
Að messu lokinni er boðið í hátíðarkaffi í Barnaskólanum á Eiðum í umsjón Kvenfélags Eiðaþinghár. Þar munu sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir fv. sóknarprestur og Þórhallur Pálsson formaður sóknarnefndar rekja sögu kirkju og staðar.
Allir velkomnir!
Sóknarnefnd Eiðasóknar

50 ára vígsluafmæli Valþjófsstaðarkirkju
Vígsluafmæli og orgelblessun
21. ágúst kl. 14
Þann 3. júlí síðastliðinn voru liðin fimmtíu ár frá vígslu Valþjófsstaðarkirkju. Af því tilefni verður hátíðarmessa í kirkjunni sunnudaginn 21. ágúst kl. 14.
Þá verður einnig nýtt orgel kirkjunnar tekið í notkun en það var keypt frá Johannus orgelverksmiðjunni í Hollandi nú í sumar með veglegum styrk frá Fljótsdalshreppi.
Sóknarprestur Egilsstaðaprestakalls, sr. Þorgeir Arason, prédikar. Prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sr. Davíð Baldursson, þjónar fyrir altari ásamt sr. Láru G. Oddsdóttur, fyrrverandi sóknarpresti Valþjófsstaðarprestakalls og sr. Ólöfu Margrét Snorradóttur, presti í Egilsstaðaprestakalli. Leikmenn úr röðum sóknarbarna annast ritningarlestur. Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson, kór Valþjófsstaðarkirkju syngur ásamt gestum. Margrét Lára Þórarinsdóttir syngur einsöng. Meðhjálpari Anna Bryndís Tryggvadóttir.
Boðið er til kaffisamsætis að messu lokinni í Végarði.
Allir velkomnir.

