Author Archives: egilsstadakirkja
Kyrrðarbænastundir (Centering Prayer)
Kyrrðarbænastundir (Centering Prayer) eru nú að hefjast aftur á Egilsstöðum eftir nokkuð drjúgt sumarleyfi.
Í vetur verða þessar stundir í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju á fimmtudögum kl. 17:00 (ath. ekki í kirkjunni heldur við altarið í Safnaðarheimilinu) og hefjast nk. fimmtudag, 28. september.
Eins og sl. vetur verður opið hús frá kl. 16:30, hægt að fá sér te-/kaffisopa, spjalla saman og jafnvel lesa saman eitthvert efni um Kyrrðarbæn. Bænastundin sjálf hefst svo kl. 17:00 með stuttri innleiðingu og 20 mín. íhugun. Óskum við þess að þeir sem ætla að taka þátt séu komnir inn fyrir kl. 17:00 svo að kyrrðin sé óröskuð.
Dagmar Ósk Atladóttir mun leiða þessar stundir ásamt sóknarpresti í vetur. Þátttaka er að vanda öllum heimil, ókeypis og frjáls.
Á vefnum kristinihugun.is má finna nánari upplýsingar um Kyrrðarbæn.
Bleik messa 1. okt. í Egilsstaðakirkju
Sunnudaginn 1. október verður sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju á sínum stað kl. 10:30.
„Bleik messa“ verður svo kl. 20:00 um kvöldið í upphafi bleiks mánaðar.
Kvöldmessa í léttum dúr en með alvarlegum undirtóni þar sem stundin er helguð árvekniátaki gegn krabbameini.
Sólveig Heiðrún Stefánsdóttir segir okkur reynslusögu sína tengda þeim vágesti.
Kór Egilsstaðakirkju og Torvald Gjerde við flygilinn flytja og leiða ljúfa tóna. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og flytur hugvekju. Messuþjónar og fermingarbörn aðstoða við stundina og meðhjálpari er Ásta Sigfúsdóttir.
Kaffisopi eftir messu og tekið við frjálsum framlögum til Krabbameinsfélags Austurlands.
Verið velkomin í bleiku kirkjuna – ekki spillir að mæta í bleiku!
Æðruleysismessa í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 17. september kl. 20.
Hildur Þórisdóttir deilir reynslu, styrk og von. Um tónlistina sér Benedikt Hermann Hermannsson. Tónlistin er eftir Megas.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.
Kaffi og konfekt í safnaðarheimili eftir messu.
Barna- og æskulýðsstarf Egilsstaðakirkju
Sunnudagaskólinn er farinn af stað aftur eftir sumarfrí og er alla sunnudaga kl. 10:30 í kirkjunni. Þar er alltaf líflegur söngur, kirkjuleikfimi, sögur og brúður, litamynd og hressing í lokin.
Stjörnustund fyrir krakka í 1.-4. bekk hefst 11. september og er alla mánudaga kl. 17:00-18:30. Athugið að Stjörnustundin verður núna í Safnaðarheimilinu. Fjölbreytt dagskrá í vetur, m.a. leikir, föndur, spil, kókoskúlugerð, Asíufundur o.fl. spennandi. Ókeypis!
TTT- Listasmiðja fyrir krakka í 5.-7. bekk hefst 18. september og verður mánudaga kl. 15:30-17:00 í fjórar vikur (18. sept. – 9. okt.). Í boði er myndlist, leirvinna, föndur o.fl. Verð: 1.500 kr. (efniskostnaður). Umsjón hafa Ásta Sigfúsdóttir myndlistarmaður og prestarnir.
BÍBÍ – Æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk hefst 12. september og verður á þriðjudagskvöldum kl. 20:00-22:00. Sr. Sigríður Rún hefur umsjón með starfinu. Fjölbreytt starf, m.a. ferð á Landsmót ÆSKÞ á Selfossi 20.-22. október.
Ekki er þörf á að skrá þátttakendur fyrirfram í neitt starfið, nóg að mæta á staðinn.
Messa og endurbótum fagnað 17. sept.

Safnaðarheimilið
Messað verður í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 17. september kl. 18:00. Prestur er sr. Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde, Kór Egilsstaðakirkju syngur. Meðhjálpari er Ásta Sigfúsdóttir og messuþjónar og fermingarbörn aðstoða.
Eftir messuna verður boðið upp á matarmikla súpu í Safnaðarheimili kirkjunnar, Hörgsási 4, og fagnað endurbótum sem nú er lokið í húsinu.
Guðsþjónusta verður á Hjúkrunarheimilinu Dyngju sama dag kl. 17:00. Sr. Þorgeir, Torvald organisti og kirkjukórinn þjóna.
Verið velkomin til messu!
10. september: Alþjóða forvarnardagur sjálfsvíga

Prestar Egilsstaðaprestakalls
Guðsþjónustur 27. ágúst
Tvær guðsþjónustur verða í Egilsstaðaprestakalli á sunnudaginn, 27. ágúst:
Kirkjubæjarkirkja kl. 14:00
Prestur er Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna.
Ásmundur Þórarinsson segir frá hinum merka predikunarstóli kirkjunnar, sem talinn er sá elsti í íslenskri kirkju.
Minnum á kaffisölu Kvenfélagsins í Tungubúð eftir messu.
Egilsstaðakirkja kl. 20:00 – Kvöldguðsþjónusta í léttum dúr
Upphaf fermingarstarfanna í Egilsstaðaprestakalli. Stuttur fundur með væntanlegum fermingarbörnum og foreldrum þeirra eftir messu.
Torvald Gjerde og félagar úr kirkjukórnum leiða tónlistina. Prestarnir þjóna.
Að sjálfsögðu eru allir velkomnir í báðar guðsþjónusturnar!
Biskup þjónar við messu í Hjaltastaðarkirkju

Hjaltastaðarkirkja
Sunnudaginn 20. ágúst er messa í Hjaltastaðakirkju kl. 14. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar og lýsir blessun. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjóna fyrir altari.
Kaffi í boði sóknarnefndar í Hjaltalundi eftir messu. Kvenfélag Hjaltastaðarþinghár hefur umsjón með kaffi.
Verið velkomin 
Tónlistarmessa í Hofteigskirkju sunnudaginn 20. ágúst kl. 20
Tónleikar og messa í Hofteigskirkju.
Messan hefst með ljúfum tónum Krossbandsins frá Akureyri og leiða þau einnig sönginn í messunni. Krossbandið skipa þau Snorri Guðvarðsson, Ragnheiður Júlíusdóttir og Finnur Finnsson.
Krossbandið er lítið band með stórt hjarta
og leika þau létta sálma, alþýðulög og dægurlög í bland.
Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.
Kaffisopi í safnaðarheimili að messu lokinni.
Verið velkomin til kirkju!
Kvöldmessa í Bakkagerðiskirkju 16. ágúst
Að vanda er messað í Bakkagerðiskirkju, Borgarfirði eystra, á síðsumarkvöldi og líkt og undanfarin ár verður þessi stund nú á miðvikudagskvöldi, að þessu sinni 16. ágúst klukkan 20:00.
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Félagar úr kór kirkjunnar (Bakkasystrum) leiða sönginn.
Kaffisopi í Heiðargerði eftir messu.
Verum velkomin!