Messa og endurbótum fagnað 17. sept.

Safnaðarheimilið
Messað verður í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 17. september kl. 18:00. Prestur er sr. Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde, Kór Egilsstaðakirkju syngur. Meðhjálpari er Ásta Sigfúsdóttir og messuþjónar og fermingarbörn aðstoða.
Eftir messuna verður boðið upp á matarmikla súpu í Safnaðarheimili kirkjunnar, Hörgsási 4, og fagnað endurbótum sem nú er lokið í húsinu.
Guðsþjónusta verður á Hjúkrunarheimilinu Dyngju sama dag kl. 17:00. Sr. Þorgeir, Torvald organisti og kirkjukórinn þjóna.
Verið velkomin til messu!
Posted on 11/09/2017, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0