Bleik messa 1. okt. í Egilsstaðakirkju

pink-candle-light-flame-hopeSunnudaginn 1. október verður sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju á sínum stað kl. 10:30.

„Bleik messa“ verður svo kl. 20:00 um kvöldið í upphafi bleiks mánaðar.

Kvöldmessa í léttum dúr en með alvarlegum undirtóni þar sem stundin er helguð árvekniátaki gegn krabbameini.

Sólveig Heiðrún Stefánsdóttir segir okkur reynslusögu sína tengda þeim vágesti.

Kór Egilsstaðakirkju og Torvald Gjerde við flygilinn flytja og leiða ljúfa tóna. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og flytur hugvekju. Messuþjónar og fermingarbörn aðstoða við stundina og meðhjálpari er Ásta Sigfúsdóttir.

Kaffisopi eftir messu og tekið við frjálsum framlögum til Krabbameinsfélags Austurlands.

Verið velkomin í bleiku kirkjuna – ekki spillir að mæta í bleiku!

Posted on 27/09/2017, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: