Kyrrðarbænastundir (Centering Prayer)

5_5_inch_hand_made_singing_bowlKyrrðarbænastundir (Centering Prayer) eru nú að hefjast aftur á Egilsstöðum eftir nokkuð drjúgt sumarleyfi.

Í vetur verða þessar stundir í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju á fimmtudögum kl. 17:00 (ath. ekki í kirkjunni heldur við altarið í Safnaðarheimilinu) og hefjast nk. fimmtudag, 28. september. 

Eins og sl. vetur verður opið hús frá kl. 16:30, hægt að fá sér te-/kaffisopa, spjalla saman og jafnvel lesa saman eitthvert efni um Kyrrðarbæn. Bænastundin sjálf hefst svo kl. 17:00 með stuttri innleiðingu og 20 mín. íhugun. Óskum við þess að þeir sem ætla að taka þátt séu komnir inn fyrir kl. 17:00 svo að kyrrðin sé óröskuð.

Dagmar Ósk Atladóttir mun leiða þessar stundir ásamt sóknarpresti í vetur. Þátttaka er að vanda öllum heimil, ókeypis og frjáls.

Á vefnum kristinihugun.is má finna nánari upplýsingar um Kyrrðarbæn.

Posted on 28/09/2017, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd

Skráðu umbeðnar upplýsingar að neðan eða smelltu á smámynd til að skrá þig inn:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out /  Breyta )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out /  Breyta )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out /  Breyta )

Tengist við %s

%d bloggurum líkar þetta: