Author Archives: egilsstadakirkja
Gospelmessa 6. maí í Egilsstaðakirkju
Egilsstaðakirkja: Gospelmessa sunnudaginn 6. maí kl. 20:00.Liljurnar syngja trúarlega tónlist úr smiðju hljómsveitarinnar U2 og úr söngleikjum og kvikmyndum. Einsöngvarar úr röðum kórfélaga. Kórstjóri Margrét Lára Þórarinsdóttir – Tryggvi Hermannsson við flygilinn.
Jón Gunnar Axelsson flytur vitnisburð. Kaffisopi eftir stundina. Sr. Þorgeir Arason.
Hjúkrunarheimilið Dyngja, Egilsstöðum:
Guðsþjónusta kl. 17:00. Liljurnar, Tryggvi, Margrét Lára og sr. Þorgeir sjá um stundina.
Seyðisfjarðarkirkja 6. maí kl. 11
Gæðastund fjölskyldunnar
Sunnudaginn 6. maí er fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju. Við ætlum að syngja mikið og kór kirkjunnar leiðir okkur í söng en Sigurbjörg situr við píanóið í þetta sinn. Tveir ungir drengir útskrifast úr farskóla leiðtogaefna og biblíusagn og kirkjubrúður verða auðvitað á sínum stað.
Spáin er björt og góð og í fullkominni bjartsýni skellum við pylsum og auðvitað líka bulsum á grillið.
Græn messa í Egilsstaðakirkju
Sunnudagurinn 22. apríl er „Dagur jarðar“.
Þann dag verður GRÆN MESSA kl. 10:30 í Egilsstaðakirkju helguð náttúru og umhverfisvernd.
Þær Guðrún Schmidt og Jarþrúður Ólafsdóttir flytja örhugvekjur á grænu nótunum.
Óhefðbundin altarisganga undir berum himni í messulok þar sem við sameinumst í brauði og víni úti á ásnum.
Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir náttúru- og vorsálma undir stjórn organistans Torvalds Gjerde. M.a. verður sunginn glænýr umhverfisverndarsálmur, „Í svörtum himingeimi“ eftir sr. Davíð Þór Jónsson.
Meðhjálpari er Jón Gunnar Axelsson, ritningarlestur les Hulda Sigurdís Þráinsdóttir og prestur er Þorgeir Arason.
Kaffisopi eftir messu – Allir velkomnir.
Kvöldmessa í Seyðisfjarðarkirkju
Þegar vorar er fátt huggulegra en að sækja kvöldmessu. Sunnudaginn 22. apríl er kvöldmessa kl. 20. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng, undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur, organista. Ægir Örn Sveinsson, guðfræðingur og afleysing héraðsprests ætlar að þjóna og prédika og það er sérstaklega ánægjulegt að fá svo góðan liðsauka. Sr. Sigríður Rún þjónar fyrir altari og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson. Kaffi í safnaðarheimili eftir messu
Verið velkomin
Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar

Egilsstaðakirkja
Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar
TTT-matreiðsluhópur í Kirkjuselinu Fellabæ á þriðjudögum kl. 16:30 í apríl.
TTT-starf Egilsstaða- og Ássókna ætlar að bjóða börnum
í 5.,6., og 7.bekk upp á matreiðsluhóp.
Þrjár samverur þriðjdagana 3. apríl, 10. apríl og 17. apríl kl. 16.30-18.
Efniskostnaður er 1000kr.
Kirkjuselinu í Fellabæ, Smiðjuseli 2.
Skráning á netfangið olof.margret.snorradottir@kirkjan.is
Messað á Borgarfirði eystra og Kirkjubæ á annan dag páska
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar.
Bakkasystur syngja, organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Ægir Örn Sveinsson, guðfræðingur prédikar. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson, kór Kirkjubæjar og Sleðbrjótskirkna syngja og leiða almennan söng.
Hjúkrunarheimilið Dyngja: Guðsþjónusta kl. 17. Sr. Ólöf Margrét þjónar, kór Áskirkju syngur, organisti Drífa Sigurðardóttir.
Föstudagurinn langi: Helgiganga í Fljótsdalnum, lestur Passíusálma og æðruleysismessa
Föstudagurinn langi 30. mars
Valþjófsstaðarkirkja kl. 11: Helgiganga frá kirkjunni í Skriðuklaustur. Lesið úr ritningunni og Passíusálmum á leiðinni. 
Seyðisfjarðarkirkja kl. 11: Dagskrá í tali og tónum. Umsjón Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sigurður Jónsson.
Vallaneskirkja: Passíusálmarnir lesnir og sungnir kl. 14:00-16:00. Torvald Gjerde og Kór Vallaness og Þingmúla leiða tónlistina. Fólki frjálst að koma og fara að vild. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina.
Egilsstaðakirkja: Æðruleysismessa kl. 20:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Opinn AA-fundur í kirkjunni eftir messuna.
Skírdagur
Egilsstaðakirkja: Fermingarmessa kl. 10:30. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
Seyðisfjarðarkirkja: Fermingarmessa kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Sigurbjörg Kristínardóttir. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Hjaltastaðarkirkja: Kvöldmessa kl. 20:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Tónlist Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir o.fl.
Egilsstaðakirkja: Helgistund við altarið kl. 20:00 – altarisganga og Getsemanestund. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Torvald Gjerde.

Pálmasunnudagur
Egilsstaðakirkja / Áskirkja: Vorhátíð – Páskastund fjölskyldunnar! Rútuferð kl. 10:00 frá
Egilsstaðakirkju og 10:10 frá Olís Fellabæ. Samverustund hefst kl. 10:30 í Áskirkju. Páskaeggjaleit og pylsupartí í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju eftir ferðina frá Ási!
Þetta verður lokastund sunnudagaskólans í vetur en krökkum í Stjörnustund í Fellabæ og á Egilsstöðum er líka boðið með, og reyndar væri gaman að sjá alla krakka og konur og kalla með skalla (eða hár), og að sjálfsögðu verður gleðin ókeypis. Sr. Ólöf, sr. Þorgeir og leiðtogar barnastarfsins leiða stundina.
Seyðisfjarðarkirkja: Fjölskylduguðsþjónusta og páskaeggjaleit kl. 11:00. Kaffi og hressing í Safnaðarheimili eftir stundina. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Sleðbrjótskirkja: Fermingarmessa kl. 15:00. Fermd verður Þorbjörg Helga Andrésdóttir, Brúarási. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna.