Opið hús fyrir syrgjendur

Opið hús syrgjendur í Kirkjuselinu 26. maí kl. 20

Síðasta fimmtudag í mánuði er opið hús í Kirkjuselinu fyrir þá sem syrgja og sakna. Um er að ræða opinn stuðningshóp sem fólk getur komið í einu sinni eða oftar. Opið hús byggir á því að þátttakendur deila reynslu hver með öðrum, tjá sig eða hlusta á það sem aðrir hafa fram að færa. Hér er því að ferðinni n.k. jafningjastuðningur eða jafningjafræðsla. Allir sem koma fá tækifæri til að tjá sig án þess að það sé nein skylda – fólk getur allt eins komið og hlustað á sögur annarra af sorgarúrvinnslu sinni. Það sem sagt er á fundinum er bundið trúnaði.

Opið hús fer þannig fram að stjórnandi hefur stuttan formála þar sem farið er yfir fyrirkomulag, þátttakendur eru minntir á að sýna hver öðrum tillitssemi og að halda trúnað. Síðan fer fram samræða í einn til einn og hálfan tíma. Á eftir er boðið upp á kyrrðarstund fyrir þau sem það kjósa.

Umsjón hafa prestar Egilsstaðaprestakalls og veita þeir frekari upplýsinga ef óskað er.

Hvítasunnudagur er dagur eldri borgara í Seyðisfjarðarkirkju

Seyðisfjarðarkirkja-21-333x500

Á hvítasunnudag, þann 15. maí er hátíðarguðsþjónusta kl 11 og eldri borgarar eru sérstaklega boðnir velkomnir.

Kór Seyðisfjarðarkirkju undir stjórn Sigubjargar Kristínardóttur organista leiðir almennan safnaðarsöng.

Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, en ásamt henni þjóna útskriftarnemar úr farskóla leiðtogaefna, þeir Galdur Máni, Jón Arnór og Sveinn Gunnþór.

Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson.

Boðið er upp á kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir guðsþjónustu

Hátíðarmessa og ferming í Egilsstaðakirkju

hvítasunnukrossAð morgni hvítasunnudags, 15. maí, verður hátíðarmessa í Egilsstaðakirkju kl. 11:00 og 11 börn fermd í athöfninni.

Kór Egilsstaðakirkju syngur, organisti er Torvald Gjerde, prestur Þorgeir Arason og meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir. Allir velkomnir. Nöfn fermingarbarna má sjá hér. 

Kirkjudagur aldraðra: Sektarkennd eftir að hafa skilað sínu?

WP_20160505_14_14_47_Pro WP_20160505_14_53_03_Pro WP_20160505_15_44_40_ProUppstigningardagur er í Þjóðkirkjunni sérstaklega helgaður elstu kynslóðinni og markaðist hann einnig af því tilefni í Egilsstaðakirkju.

Þar var á uppstigningardag, 5. maí, haldin árviss guðsþjónusta þar sem öflugur sönghópur eldri borgara leiddi sönginn. Organisti og söngstjóri var Jón Ólafur Sigurðsson en góður hópur syngur reglulega undir hans stjórn í Hlymsdölum. Boðið var upp á veglegt messukaffi í Safnaðarheimilinu að athöfn lokinni og voru það sjálfboðaliðar úr hópi messuþjóna Egilsstaðakirkju sem lásu upp í messunni og reiddu fram kaffiveitingarnar ásamt kirkjuverði. Um 60 manns tóku þátt í athöfninni.

Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir predikaði og þjónaði fyrir altari í guðsþjónustunni. Í predikun sinni vék hún, auk ritningartexta dagsins um himnaför Jesú, að málefnum eldri borgara og stöðu þeirra í samfélaginu. Vitnaði hún m.a. í konu sem væri að nálgast nírætt og væri orðin þreytt á fréttaflutningi um að öldruðum væri stöðugt að fjölga og því fylgdi aukinn kostnaður fyrir þjóðfélagið. Sagði hún mikilvægt að þeir sem skilað hefðu sínu til samfélagsins þyrftu ekki að hafa sektarkennd yfir að nýta sér þjónustu á borð við hjúkrunarheimili. Í raun væri auðvitað jákvætt fyrir samfélagið að öldruðum fjölgaði og lífslíkur ykjust. Viðhorfin í samfélaginu mótuðust hins vegar gjarnan af orðræðunni og þeim hugtökum sem væru notuð.

Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðakirkju 8. maí kl. 10

Sóknarbörn! Látið ykkur varða málefni kirkjunnar ykkar.   Egskirkja

Aðalsafnaðarfundur Egilsstaðasóknar verður haldinn
sunnudaginn 8. maí kl. 10
í Safnaðarheimlinu Hörgsási 4.

 

Helgistund í upphafi en svo taka við hefðbundin aðalsafnaðarstörf:

  1. Skýrsla sóknarnefndar
  2. Reikningar sóknarinnar lagðir fram til samþykktar
  3. Önnur mál

Allir velkomnir!

Sóknarnefndin

Uppstigningardagur 5. maí: Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 14

bordar-himinn-geislar_0

Vér horfum allir upp til þín,
í eilíft ljósið Guði hjá,
þar sem að dásöm dýrð þín skín,
vor Drottinn Jesús, himnum á.
(Sb 170, Páll Jónsson).

 

Kirkjudagur aldraðra.
Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 14. Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór eldri borgara syngur og leiðir almennan söng. Messuþjónar aðstoða.
Sungnir verða sálmar nr. 535, 30, 170, 22 og 476.

Að guðsþjónustu lokinni verður kaffi í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4.

Verið velkomin í kirkju.

Uppstigningardagur er dagur aldraðra í kirkjunni. Þannig hefur það verið frá því 1982 er herra Pétur Sigurgeirsson, þáverandi biskup Íslands, lagði það til á kirkjuþingi að dagur aldraðra yrði árlegur viðburður í kirkjum landsins og skyldi sá dagur vera uppstigningardagur. Markmið með slíkum degi er að lyfta upp og minna á það góða starf sem aldraðir sinna í kirkjunni.

Kvöldguðsþjónusta og aðalsafnaðarfundur í Eiðakirkju

Í Eiðakirkju verður kvöldguðsþjónusta kl 20 á uppstigningadag, fimmtudaginn 5. maí nk. Kór Eiðakirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson og prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Eftir guðsþjónustu er aðalfundur Eiðasóknar í aðstöðuhúsi kirkjunnar. Á dagskrá eru hefðbundin aðalsafnaðarstörf.

Verið velkomin

 

Eiðakirkja-2-500x333

Fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju

Sunnudaginn 1. maí kl. 11 er fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju.

Kór kirkjunnar undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur, organista leiðir almennan safnaðarsöng.

Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson

Kaffihressing í safnaðarheimili eftir guðsþjónustu.

Verið velkomin
uppskera

Aðalsafnaðarfundir framundan

Nú er vorið komið og ýmis verk sem þeim fylgja eru framundan, þar á meðal aðalsafnaðarfundir sókna.

Á dagskrá fundanna eru venjuleg aðalfundarstörf

  1. Skýrsla sóknarnefndar.
  2. Reikningar sóknarinnar lagðir fram til samþykktar.
  3. Önnur mál

Sóknarbörn! Látið ykkur varða málefni kirkjunnar ykkar.         

Aðalsafnaðarfundir á næstunni í Egilsstaðaprestakalli:

Hjaltastaðarsókn:
Sunnudaginn 24. apríl að lokinni messu í Hjaltastaðarkirkju kl. 14. Fundurinn verður í Hjaltalundi.

Hofteigssókn:
Mánudagskvöldið 25. apríl kl. 20 í safnaðarhúsinu við Hofteigskirkju.

Ássókn:
Þriðjudagskvöldið 26. apríl kl. 20 í Kirkjuselinu.

Valþjófsstaðarsókn:
Sunnudagskvöldið 1. maí kl. 20 í Valþjófsstaðarkirkju.

Verið velkomin á aðalsafnaðarfund í ykkar sókn.

 

Fjölskylduguðsþjónusta í Bakkagerðiskirkju

Fjölskylduguðsþjónusta verður í Bakkagerðiskirkju sunnudaginn 24. apríl kl. 11:00.kirkja

Lokahátíð kirkjuskólans í vetur.

Organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og Bakkasystur syngja.

Kirkjuskólakrakkarnir taka einnig virkan þátt og syngja við undirleik Freyju Jónsdóttur á gítar.

Öll börn sem mæta fá sumargjöf frá kirkjunni.

Pylsupartý fyrir börn og fullorðna eftir messuna.

Allir velkomnir og kynslóðirnar hvattar til að sameinast!