Category Archives: Uncategorized
Æskulýðsmessa í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 12. mars er æskulýðsmessa kl. 20 í Seyðisfjarðarkirkju.
Ungt fólk verður áberandi í þjónustunni:
Unglingarnir í æskulýðsstarfinu sjá um allt frá því að hringja kirkjuklukkum yfir í tónlist, bænir, lestra og hugleiðingu ásamt sr. Sigríði Rún.
Organisti er Tryggvi Hermannsson.
Súkkulaðikaka og ísköld mjólk í safnaðarheimilinu eftir messu.
Verið velkomin
Trúum af hjarta: æskulýðsmessa í Egilsstaðakirkju 5. mars kl. 20
Sunnudagur 5. mars í Egilsstaðakirkju
Kl. 10:30 sunnudagaskóli. Söngur, sögur og brúður.
Kl. 20 æskulýðsmessa
Trúum af hjarta
Stúlknakórinn Liljurnar leiða söng, stjórnandi Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir, Tryggvi Hermannsson leikur undir. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og sr. Vigfús Ingvar Vigfússon þjóna. Fermingarbörn aðstoða við helgihaldið.
Messukaffi í boði fermingarstúlkna á Egilsstöðum að messu lokinni.
Verið velkomin!
Kvöldguðsþjónusta í Kirkjuselinu 26. febrúar kl. 20
Sunnudagur í föstuinngang 26. febrúar: Kvöldguðsþjónusta í Kirkjuselinu Fellabæ.

Kór Áskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng, organisti Drífa Sigurðardóttir.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.
Verið velkomin!
Sálmur 937
Draumanna höfgi dvín,
dagur í austri skín,
vekur mig,
lífi vefur
mjúka mildings höndin þín.
Dagleiðin erfið er,
óvíst hvert stefna ber,
leið mig
langa vegu
mjúka mildings höndin þín.
Sest ég við sólarlag,
sátt er við liðinn dag,
svæfir mig
svefni værum
mjúka mildings höndin þín.
(Eygló Eyjólfsdóttir)
Hjartamessa í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 26. febrúar
er hjartamessa. Febrúar er hjartamánuður og er ætlað að vekja athygli á einkennum og áhættuþáttum hjartasjúkdóma, við hvetjum ykkur til að mæta í rauðu af því tilefni.
Eva Jónu forvarnarfulltrúi Seyðisfjarðarkaupstaðar flytur hugleðingu og fermingarbörn taka virkan þátt í þjónustunni. Kórinn leiðir okkur í söng og organisti er Tryggvi Hermannsson. .
Það verða því engar rjómatertur eftir messu að þessu sinni, heldur hollar og hjartastyrkjandi veitingar og kaffi.
Verið velkomin
Sunnudagaskóli og konudagsmessa í Egilsstaðakirkju 19. febrúar
Sunnudagaskóli kl. 10:30
Rebbi og Vaka koma í heimsókn, söngur og sögur. Umsjón Ólöf Margrét ásamt sunnudagaskólakennurum, Torvald verður á sínum stað við píanóið. Ávextir, djús og dund eftir stundina.
Messa kl. 18
Messa á konudegi í Egilsstaðakirkju kl. 18.
Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, prédikar, sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar fyrir altari. Konur úr sóknarnefnd kirkjunnar og messuþjónahóp aðstoða.
Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng, organisti Torvald Gjerde.
Kvennakórinn Héraðsdætur verða sérstakir heiðursgestir og
syngja nokkur lög undir stjórn Kristínar R. Sigurðardóttur.
Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.
Boðið upp á kaffi og konfekt í nýuppgerðu safnaðarheimili kirkjunnar að Hörgsási 4.
Verið velkomin til kirkju!
Biskup Íslands í æskulýðsmessu við lok febrúarmóts ÆSKA, HÖND Í HÖND
Sunnudaginn 19. febrúar er messa í Seyðisfjarðarkirkju kl. 11
En messan er endapunktur febrúarmóts ÆSKA 2017, HÖND Í HÖND.
Mikill söngur og fjölbreytt dagskrá. 
Organisti er Tryggvi Hermannsson.
Ungt fólk verður áberandi í þjónustunn en ásamt þeim munu frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, sr. Erla Björk Jónsdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjóna. En biskup Íslands er í vísitasíu í Egilsstaðaprestakalli um þessar mundir.
Verið velkomin
Egilsstaðakirkja: Sunnudagaskóli 12. febrúar kl. 10:30
Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju kl. 10:30
Sögur, söngur og brúðuleikrit. Djús og dund í lokin.
Umsjón Ólöf Margrét Snorradóttir ásamt leiðtogum. Fermingarbörn aðstoða. Öystein Magnús Gjerde sér um undirleik.
Verið velkomin í sunnudagaskólann!
Áfallateymi Austurlands býður á samveru: Hjalti Jónsson sálfræðingur
Hlúum hvert að öðru
Áfallateymi Austurlands býður til samveru í Egilsstaðakirkju mánudaginn 13. febrúar kl. 20.00Blessandi samfélag – námskeið hjá Téo van der Weele 11.-12. febrúar
Blessandi samfélag
Hollenski guðfræðingurinn Téo van der Weele [frb. Veile] verður hérlendis í febrúar í einum af sínum
mörgu Íslandsheimsóknum. Hann er mörgum Íslendingum kunnur sem andlegur leiðbeinandi og fagmaður á sviði sálgæslu eftir áratuga þjónustu.
Hugtökin friður og blessun koma mikið fyrir í kennslu og sálgæslu hjá Téo. Þá er um að ræða virkan veruleika, áhrifaafl sem vekur kyrrð og öryggi í lífi fólks og hjálpar þeim sem orðið hafa fyrir áföllum að fóta sig að nýju í lífinu.
Téo verður hér eystra um næstu helgi. Fólki býðst að sækja námskeið hjá honum í Safnaðarheimili Egilsstaðkirkju, Hörgsási 4. – kl. 10:00-17:00 laugardaginn 11. febrúar og frá kl. 13.00 sunnudaginn 12. Léttur hádegisverður á laugardaginn.
Skráning og nánari upplýsingar í s. 863 6866 – námskeiðsgjald kr. 3.000,-
Opin samvera verður á sama stað með Téo sunnudagskvöldið 12. febrúar kl. 20:00.
5. febrúar kl. 10:30: Fimm ára börn sérstakir heiðursgestir í fjölskylduguðsþjónustu í Egilsstaðakirkju.
Brúður, sögur og söngur í fjölskylduguðsþjónustu í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 5. febrúar kl. 10:30
Öll 5 ára börn sérstaklega boðin velkomin og hvött til að mæta með fjölskyldunni.
Barnakór Egilsstaðakirkju syngur, stjórnandi er Öystein Magnús Gjerde.
Messukaffi í boði fermingardrengja að lokinni guðsþjónustu.
Sr. Vigfús Ingvar leiðir guðsþjónustuna ásamt leiðtogum sunnudagaskólans, fermingarbörn og messuþjónar aðstoða.
Organisti Torvald Gjerde. Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.
Verið velkomin í fjölskylduguðsþjónustu!