Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar á Héraði
Sunnudagurinn 6. mars er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í Egilsstaðakirkju kl. 10:30
Söngur og saga – Bænir og blöðrur – Hressing og hlátur!
Gospelmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00 – Sameiginleg æskulýðsmessa safnaða á Héraði
Liljurnar syngja og leiða söng undir stjórn Margrétar Láru Þórarinsdóttur, Tryggvi Hermannsson við flygilinn.
Fermingarbörn vorsins á Héraði taka virkan þátt.
Prestarnir Ólöf Margrét Snorradóttir og Þorgeir Arason þjóna við stundina.
Kirkjukaffi í boði fermingarstúlkna.
Verið velkomin til kirkju!
Laugardaginn 5. mars verður keppt til úrslita í Spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi. Keppnin hefst í Kirkjuselinu í Fellabæ kl. 14:00. Til úrslita keppa lið Egilsstaða, Fellabæjar, Reyðarfjarðar og Norðfjarðar. Vöfflukaffi og allir eru velkomnir.
Opið hús fyrir syrgjendur í Kirkjuselinu 25. febrúar kl. 20
Opið hús fyrir syrgjendur er síðasta fimmtudag í mánuði kl. 20 í Kirkjuselinu, Smiðjuseli 2 Fellabæ.
Opið hús er vettvangur þar sem fólk sem syrgir og saknar getur komið og hitt aðra í sömu sporum, tjáð sig eða hlustað. Opið hús krefst engrar skuldbindingar annarrar en trúnaðar um það sem þar er sagt.
Sunnudagur 21. febrúar – konudagurinn
Verið velkomin til kirkju
Egilsstaðakirkja 21. febrúar:
Sunnudagaskóli kl. 10.30
Líf og fjör að vanda í sunnudagaskólanum. Söngur, sögur og brúðuleikrit. Allir fá límmiða og svo er djús og dund að stundinni lokinni. Umsjón: sr. Þorgeir Arason ásamt leiðtogum sunnudagaskólans.
Konudagsmessa kl. 17
,,Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt“ (Matt. 15.28)

Héraðsdætur syngja í konudagsmessunni 21. febrúar
Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjóna í konudagsmessu. Konur úr kvenfélaginu Bláklukku og messuþjónahóp kirkjunnar aðstoða. Meðhjálpari Þórdís Kristvinsdóttir.
Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng ásamt Héraðsdætrum. Organisti Torvald Gjerde. Stjórnandi kvennakórsins er Margrét Lára Þórarinsdóttir og undirleikari Tryggvi Hermannsson.
Kaffi og konfekt eftir messuna.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fjölskylduguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju – „5 ára messa“
Gospelmessa í Egilsstaðakirkju kl. 17

Stúlknakórinn Liljurnar syngja í gospelmessu í Egilsstaðakirkju 31. janúar kl. 17. Verið velkomin. (mynd Margrét Lára Þórarinsdóttir).
Sunnudaginn 31. janúar verður líf og fjör í Egilsstaðaprestakalli.
Kl. 10.30 er að vanda sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju. Rebbi og Mýsla koma í heimsókn, við syngjum og heyrum af því þegar Jesús stillir storminn.
Í Seyðisfjarðarkirkju er messa kl. 11. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar.
Í Eiðakirkju er messa kl. 14 þar sem Kristján Gissurarson organisti verður kvaddur og honum þakkað góð störf í áraraðir. Prestur sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Í Egilsstaðakirkju er gospelmessa kl. 17. Stúlknakórinn Liljurnar syngja. Stjórnandi er Margrét Lára Þórarinsdóttir og Tryggvi Hermannsson annast undirleik. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.
Verið velkomin til kirkju!
Sunnudagurinn 17. janúar
Sunnudagaskólinn á sínum stað í kirkjunni kl. 10:30. Umsjón hafa Dagmar, Guðný, sr. Þorgeir og hinir leiðtogarnir.
Messa kl. 17:00. Sr. Davíð Þór Jónsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór Egilsstaðakirkju syngur, organisti Torvald Gjerde. Allir velkomnir.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju sama dag kl. 15:30. Sr. Davíð Þór, Torvald og kirkjukórinn þjóna.
Seyðisfjarðarkirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og góðir leiðtogar leiða stundina. Allir velkomnir.
Stjörnustund hefst aftur
Stjörnustund í Egilsstaðakirkju hefst aftur á nýju ári í dag, mánudaginn 11. janúar kl. 16:30-18:00 (ath. röng tímasetning í Dagskránni). Þessi fyrsta samvera ársins verður í Safnaðarheimilinu (sjá mynd) vegna málningarvinnu í kirkjunni. Öll börn í 1.-4. bekk velkomin, nýir krakkar mega alltaf bætast í hópinn og margt spennandi er að gerast alla mánudaga fram að páskum!
Meðal þess sem verður á dagskrá vorannar: öfugur dagur, bingó, pizzafundur og Afríkufundur. Leiðtogar verða sem fyrr þær Dagbjört Lilja og Snjólaug Ósk Björnsdætur og öflugir yngri leiðtogar, þær Æsa, Heiðrún, Sara, Sesselía, Sunneva o.fl. auk okkar prestanna.
Nýársguðsþjónusta í Sleðbrjótskirkju
Nýársguðsþjónusta verður haldin í Sleðbrjótskirkju í Jökulsárhlíð, sunnudaginn 10. janúar kl. 14:00 (í stað jólaguðsþjónustu sem féll niður vegna ófærðar).
Sr. Þorgeir Arason, Jón Ólafur Sigurðsson organisti, Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna og Margrét Dögg Guðgeirsd. Hjarðar meðhjálpari þjóna að stundinni.
Allir velkomnir.




