Sumardagurinn fyrsti, 21. apríl
Samkirkjuleg bænaganga verður á sínum stað á fyrsta sumarmorgni (21. apríl) á Egilsstöðum líkt og víða um landið. Útvarpsstöðin Lindin stendur að göngunni og markmið hennar er að kristið fólk um allt land heilsi sumri með því að ganga um sitt nærsamfélag og sameinast í bæn fyrir þjóðinni. Á Egilsstöðum verður að vanda safnast saman kl. 9:30 við sviðið í Tjarnargarðinum. Gengið verður frá safnahúsinu, Tjarnarbrautina á enda framhjá sundlauginni, framhjá Norðurtúninu, þá framhjá tröðunum, skógunum, og aftur niður í Tjarnargarð. Þar fáum við okkur kakó og kex áður en við hlaupum glöð á brott inn í sumarið.
Messa í Egilsstaðakirkju sama dag, 21. apríl, kl. 14:00. Þar verður fermd Ásdís Hvönn Jónsdóttir. Prestur er Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde, Kór Egilsstaðakirkju syngur og meðhjálpari er Þórdís Kristvinsdóttir. Allir velkomnir til kirkju jafnt sem í bænagönguna.
Sunnudagur 17. apríl: Kvöldmessa í Kirkjuselinu kl. 20
Þú kemur, Jesús Kristur, inn
og kveikir ljósið bjart.
Þá hverfur allur ótti minn
og efamyrkrið svart.
(Sb 858, Lilja S. Kristjánsdóttir)
Kvöldmessa í Kirkjuselinu Fellabæ 17. apríl kl. 20
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Kór Áskirkju syngur sálma úr sálmabókinni frá 2013 undir stjórn og undirleik Drífu Sigurðardóttur organista. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Verið velkomin í messu.
Minnum á aðalsafnaðarfund Ássóknar í Kirkjuselinu 26. apríl kl. 20.
Hjaltastaðarkirkja-messa og aðalsafnaðarfundur

Á fjórða sunnudegi eftir páska, þann 24. apríl er messa kl 14.00.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Um tónlistina sér Suncana Slamming organisti ásamt sínu tónlistarfólki.
Meðhjálpari er Hildigunnur Sigþórsdóttir.
Verið velkomin
Eftir messu er kaffi í umsjá Bjarkar, kvenfélags Hjaltastaðþinghár og aðalfundur Hjaltastaðarsóknar í félagsheimilinu Hjaltalundi.
Fundarboð
Aðalfundur Hjaltastaðarsóknar
Verður haldinn í félagsheimilinu Hjaltalundi sunnudaginn 24. apríl kl 15.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf
- Skýrsla sóknarnefndar.
- Reikningar sóknarinnar lagðir fram til samþykktar.
- Önnur mál
Sóknarbörn! Látið ykkur varða málefni kirkjunnar ykkar.
Sóknarnefnd.
æskulýðsmessa í Seyðisfjarðarkirkju
Unga fólkið verður í aðalhlutverki í æskulýðsmessu í Seyðisfjarðarkirkju sunnudaginn 10. apríl kl 20. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt unglingunum í æskulýðsfélaginu, sem sjá um allt frá klukknahringingu til hugleiðingar. Súkkulaðikaka og ísköld mjólk í safnaðarheimili eftir messu. Verið velkomin 
Sunnudagaskólamót á Eskifirði
Sunnudaginn 3. apríl fer árlegt sunnudagaskólamót Austurlandsprófastsdæmis fram á Eskifirði.
Ekki verður boðið upp á rútuferð frá Egilsstöðum að þessu sinni en þeir sem tök og áhuga hafa á þátttöku eru hvattir til að fara á einkabílum. Mótið hefst kl. 11:00 í Eskifjarðarkirkju og verður að vanda lífleg og skemmtileg dagskrá í anda sunnudagaskólans, mikill söngur og veitingar í lokin.
Allir eru velkomnir!
Helgihald um bænadaga og páska
(Nöfn fermingarbarna má finna hér.)
Ássókn í Fellum
Föstudagurinn langi, 25. mars: Passíusálmarnir lesnir í Kirkjuselinu í Fellabæ. Lesturinn hefst kl. 14:00, stendur í um fjórar klst. og hægt er að koma og fara að vild.
Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta í Áskirkju kl. 10 árdegis. Kór Áskirkju syngur. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Bakkagerðiskirkja
Annar í páskum, 28. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. Bakkasystur, kór kirkjunnar, syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Þorgeir Arason.
Egilsstaðakirkja
Skírdagur, 24. mars: Fermingarmessa kl. 11. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. – Kyrrðarstund kl. 20 á skírdagskvöld. Altarisganga og Getsemanestund. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason.
Föstudagurinn langi, 25. mars: Æðruleysismessa kl. 20. Erla Björk Jónsdóttir guðfræðingur predikar. Ása Jónsdóttir leikur á fiðlu. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Opinn AA-fundur í kirkjunni eftir messu.
Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 8 árdegis. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Elke Schabel leikur á trompet. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Morgunkaffi í Safnaðarheimili eftir messu.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum, kl. 17 á páskadag. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Eiðakirkja
Skírdagur, 24. mars: Messa kl. 14 – Ferming. Kór Eiðakirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Föstudagurinn langi, 25. mars: Lestur Passíusálmanna hefst kl. 14 í umsjón sóknarnefndar.
Hjaltastaðarkirkja:
Skírdagur, 24. mars: Fyrirhuguð kvöldmessa fellur niður.
Kirkjubæjarkirkja:
Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. – Sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkju syngur. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Seyðisfjarðarkirkja:
Skírdagur, 24. mars: Messa kl. 11 – Ferming. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Sigurbjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Föstudagurinn langi, 25. mars: Dagskrá í tali og tónum kl. 11. Organisti Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta í kirkjunni kl. 9 árdegis. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Sigubjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Morgunkaffi í Safnaðarheimili eftir messu.
Guðsþjónusta á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar kl. 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Organisti Sigubjörg Kristínardóttir. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Vallaneskirkja:
Skírdagur, 24. mars: Messa kl. 11 – Ferming. Kór Vallanes- og Þingmúlasókna syngur. Organisti Tryggvi Hermannsson. Sr. Davíð Þór Jónsson.
Valþjófsstaðarkirkja:
Föstudagurinn langi, 25. mars: Helgiganga frá Valþjófsstað í Skriðuklaustur kl. 11 í samstarfi við Gunnarsstofnun. Lesið úr Passíusálmunum á leiðinni. Hægt að kaupa hádegisverð á Klausturkaffi eftir gönguna. Umsjón sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.
Þingmúlakirkja:
Páskadagur, 27. mars: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14. (Sameiginleg guðsþjónusta fyrir Vallanes- og Þingmúlasóknir.) Kór Vallanes- og Þingmúlasókna syngur. Organisti Torvald Gjerde. Sr. Þorgeir Arason. Kirkjukaffi. – Sunnudagsganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs á páskadag er að eyðibýlinu Hátúnum í Skriðdal og þaðan til kirkjunnar. Mæting við Landstólpa (gamla tjaldstæðið) á Egilsstöðum kl. 10. Sameinast í bíla. Allir velkomnir, verð kr. 500.-
Fjölskyldumessur á pálmasunnudag
Pálmasunnudagur – 20. mars
Egilsstaðakirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 10:30
Lokahátíð barnastarfsins í vetur – Pylsupartí og páskaeggjaleit eftir stundina.
Börn í Stjörnustund flytja helgileik og Mýsla og Rebbi læra um páskana.
Félagar úr kirkjukórnum leiða sönginn.
Prestur er Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde og leiðtogar barnastarfsins taka virkan þátt.
Seyðisfjarðarkirkja
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 – Saga páskanna, kirkjubrúður og páskaeggjaleit eftir stundina.
Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og organisti Sigurður Jónsson.
Verið velkomin til kirkju!
Messa í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 6. mars sem er fjórði sunnudagur í föstu er messa kl 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt fermingarbörnum sóknarinnar. Eftir messu er boðið upp á kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.
Verið velkomin
Alþjóðlegur bænadagur kvenna
Í dag er alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn hátíðlegur víða um heim. Við í Egilstaðaprestakalli verðum með samveru í Kirkjuselinu í Fellabæ kl 17. Í ár er Kúba í miðdepli og er efni bænastundarinnar samið af kúbverskum konum.
Eftir bænastundina er boðið upp á létta kaffihúsastemmingu og spjall og allir eru velkomnir, bæði konur og karlar, börn og fullorðnir.

