Sumarmessa í Eiðakirkju
Sunnudaginn 30. júlí verður kvöldmessa í Eiðakirkju kl. 20.
Kór Eiðakirkju leiðir almennan safnaðarsöng og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Molasopi í aðstöðuhúsi eftir messu.
Verið velkomin

Lesmessa í Egilsstaðakirkju 23. júlí kl. 20
Lesmessa í Egilsstaðakirkju sunnudagskvöldið 23. júlí kl. 20.
Lesnir verða valdir ritningartextar og sálmar, hugleiðing og altarisganga.
Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.
Verið velkomin!

Áskirkja í Fellum: Kvöldguðsþjónusta á ljúfum nótum sunnudaginn 16. júlí kl. 20

Ég heyri hvernig Guð í hjarta mínu hvíslar.
Ég heyri rödd sem talar um kærleik endalaust.
Ég heyri þetta vel, ef sálm ég fæ að syngja
um sumar, vetur, vor og líka haust.
(Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson)
Guðsþjónusta í Áskirkju á ljúfum nótum 16. júlí kl. 20.
Drífa Sigurðardóttir og Áslaug Sigurgestsdóttir leiða sönginn,
meðal annars verður sunginn Árstíðasálmur eftir Aðalstein Ásberg Sigurðsson
og Vals að vori eftir Sigríði Laufeyju
Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar. Meðhjálpari Bergsteinn Brynjólfsson.
Verið velkomin til kirkju á sumarkvöldi!
Messað í Klyppstaðarkirkju 16. júlí kl. 14
Klyppstaðarkirkja í Loðmundarfirði – verið velkomin til messu!

Klyppstaðarkirkja
Messað í Selskógi 9. júlí
Árleg guðsþjónusta í útileikhúsinu í Selskógi á Egilsstöðum (göngustígur er þangað upp frá bílastæði) sunnudaginn 9. júlí kl. 10:30.
Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og predikar. Torvald Gjerde leikur á harmoniku. Jóhanna Hlynsdóttir, sem fermdist í Egilsstaðakirkju í vor, syngur einsöng. Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.
Grillaðar pylsur og gos eftir stundina. Allir velkomnir!
(Ef ekki viðrar til útimessu verðum við í Egilsstaðakirkju.)
Síðustu tónlistarstundir sumarsins
Tvær tónlistarstundir eru eftir í sumar:
Egilsstaðakirkja fimmtudaginn 6. júlí kl. 20:
Sesselja Kristjánsdóttir mezzosópran
Ágúst Ólafsson baritón
Eva Þyri Hilmarsdóttir píanóleikari
Fyrri hluti tónleikanna er helgaður íslenskum sönglögum. Val sönglaganna endurspeglar að einhverju leyti það sem er í uppáhaldi hjá flytjendum og er af nógu að taka enda safn íslenskra sönglaga endalaus fjársjóður. Í seinni hluta dagskrárinnar verða fluttar aríur og dúettar úr heimi óperubókmenntanna. Tónleikarnir verða aðgengilegir án þess þó að slá nokkuð af kröfum um vandaða og metnaðarfulla efnisskrá. Sjá nánar hér: https://www.facebook.com/events/1779538995397304/?ti=icl
Egilsstaðakirkja sunnudaginn 9. júlí kl. 20:
Elísabet Þórðardóttir, nýútskrifaður kantor úr Tónskóla Þjóðkirkjunnar, orgel.
Enginn aðgangseyrir er á tónlistarstundirnar.
Tónlistarstundirnar eru styrktar af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Fljótsdalshéraði, Alcoa, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju.
Ása, Sigurlaug og Suncana spila
Næsta tónlistarstund sumarsins verður í Egilsstaðakirkju fimmtudagskvöldið 29. júní kl. 20:00. Flytjendur eru:
Ása Jónsdóttir, frá Egilsstöðum, fiðla, er í framhaldsnámi fyrir sunnan.
Sigurlaug Björnsdóttir, frá Egilsstöðum, flauta,
byrjar í Listaháskólanum næsta haust.
Suncana Slamnig, píanó
Enginn aðgangseyrir.
Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Fljótsdalshéraði,
Alcoa, Egilsstaðakirkju og Vallaneskirkju.
Sleðbrjótskirkja – 90 ára afmæli
Sleðbrjótskirkja í Jökulsárhlíð fagnar 90 ára vígsluafmæli í sumar. Afmælisins verður minnst með hátíðarmessu í kirkjunni, sunnudaginn 2. júlí nk. kl. 14:00.
Hlíðarmenn áttu lengst af kirkjusókn yfir Jökulsána að Kirkjubæ. Áratugum eftir að ósk um sérstaka kirkju í Jökulsárhlíð kom fyrst fram var sóknunum skipt árið 1920 og nokkru síðar tóku fimm bændur í sveitinni að sér að reisa steinkirkju fyrir lágt verð. Kirkjan að Sleðbrjót var loks vígð þann 10. júlí árið 1927. Núverandi kirkja þar er því sú eina sem staðið hefur a.m.k. í lútherskum sið í Jökulsárhlíð (þó er vitað um nokkur bænhús í sveitinni fyrr á öldum) og má það teljast óvenjulegt fyrir kirkjustaði í sveit á Íslandi. Sleðbrjótskirkja er nú í Egilsstaðaprestakalli og sóknarnefnd skipa þær Ragnheiður Haraldsdóttir, Stefanía Malen Stefánsdóttir og Svandís Sigurjónsdóttir.
Við hátíðarmessuna á sunnudaginn mun frú Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, predika. Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir og sr. Þorgeir Arason, fyrrverandi og núverandi sóknarprestar kirkjunnar, þjóna fyrir altari. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur. Organisti og kórstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Meðhjálpari er Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.
Að messu lokinni verður athyglisverð byggingarsaga kirkjunnar rifjuð upp og sóknarnefnd býður viðstöddum í vöfflukaffi í safnaðarheimilinu.
Allir velkomnir!
Sóknarnefnd og sóknarprestur
Tónlistarstundirnar hafnar
Tónlistarstundir sumarsins eru hafnar í Egilsstaða- og Vallaneskirkjum. Að vanda hefur Torvald Gjerde organisti kirknanna umsjón með þessari tónleikaröð. Fernir tónleikar eru eftir, næst í Vallanesi fimmtudaginn 22. júní kl. 20. Þar koma fram tónlistarmenn frá Akureyri: Margrét Árnadóttir, sópran og Sigrún Magna Þorsteinsdóttir, harmoníum.
Um flytjendur:
Aðrar tónlistarstundir fram undan:
Fim 29. júní – Egilsstaðir kl. 20: Ása Jónsdóttir, frá Egilsstöðum, fiðla, er í framhaldsnámi fyrir sunnan. Sigurlaug Björnsdóttir, frá Egilsstöðum, flauta, byrjar í Listaháskólan næsta haust. Suncana Slamnig, píanó.
Fim 6. júlí – Egilsstaðir kl. 20: Sesselja Kristjánsdóttir, mezzosópran og Ágúst Ólafsson, barítón, landsþekkt duo. Eva Þyrí Hilmarsdóttir, eiginkona Ágústs, bjó í æsku á Reyðarfirði, píanó.
Sun 9. júlí – Egilsstaðir kl. 20: Elísabet Þórðardóttir, nýútskrifaður kantor úr Tónskóla þjóðkirkjunnar, orgel.
Enginn aðgangseyrir
Tónleikaröðin er styrkt af Uppbyggingarsjóði Austurlands, Fljótsdalshéraði og Alcoa
Útimessa við Geirsstaðakirkju
Hin árlega útimessa í Egilsstaðaprestakalli (áður í Valþjófsstaðarprestakalli) fer að þessu sinni fram á flötinni við Geirsstaðakirkju í landi Litla-Bakka í Hróarstungu, sunnudaginn 25. júní kl. 14:00.
Prestur er Þorgeir Arason og Torvald Gjerde leikur á harmoniku undir sálmasöng.
Geirsstaðakirkja er tilgátuhús sem reist var um aldamótin á grundvelli fornleifarannsókna á vegum Minjasafns Austurlands, þar sem m.a. fundust rústir af lítilli torfkirkju. Hún er nú í umsjá landeigenda og stendur rétt við Tunguveg nr. 925, sem vitaskuld er öllum bílum fær.
Gott er að taka með sér til messunnar eitthvað til að sitja á og ekki spillir nestisbiti svo hægt sé að sameinast í messukaffi að loknu helgihaldi.
Allir velkomnir!