Sleðbrjótskirkja – 90 ára afmæli
Sleðbrjótskirkja í Jökulsárhlíð fagnar 90 ára vígsluafmæli í sumar. Afmælisins verður minnst með hátíðarmessu í kirkjunni, sunnudaginn 2. júlí nk. kl. 14:00.
Hlíðarmenn áttu lengst af kirkjusókn yfir Jökulsána að Kirkjubæ. Áratugum eftir að ósk um sérstaka kirkju í Jökulsárhlíð kom fyrst fram var sóknunum skipt árið 1920 og nokkru síðar tóku fimm bændur í sveitinni að sér að reisa steinkirkju fyrir lágt verð. Kirkjan að Sleðbrjót var loks vígð þann 10. júlí árið 1927. Núverandi kirkja þar er því sú eina sem staðið hefur a.m.k. í lútherskum sið í Jökulsárhlíð (þó er vitað um nokkur bænhús í sveitinni fyrr á öldum) og má það teljast óvenjulegt fyrir kirkjustaði í sveit á Íslandi. Sleðbrjótskirkja er nú í Egilsstaðaprestakalli og sóknarnefnd skipa þær Ragnheiður Haraldsdóttir, Stefanía Malen Stefánsdóttir og Svandís Sigurjónsdóttir.
Við hátíðarmessuna á sunnudaginn mun frú Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, predika. Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir og sr. Þorgeir Arason, fyrrverandi og núverandi sóknarprestar kirkjunnar, þjóna fyrir altari. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur. Organisti og kórstjóri er Jón Ólafur Sigurðsson. Meðhjálpari er Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.
Að messu lokinni verður athyglisverð byggingarsaga kirkjunnar rifjuð upp og sóknarnefnd býður viðstöddum í vöfflukaffi í safnaðarheimilinu.
Allir velkomnir!
Sóknarnefnd og sóknarprestur
Posted on 27/06/2017, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0