Helgihald 13. febrúar

Sunnudagurinn 13. febrúar í Egilsstaðaprestakalli:

Egilsstaðakirkja:

Sunnudagaskólinn á sínum stað kl. 10:30. – Umsjón sr. Þorgeir, Torvald við flygilinn o.fl.

Kirkjuselið Fellabæ:

Kvöldmessa kl. 20:00. – Prestur Þorgeir Arason. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju leiðir kvöldsöng í bæn og lofgjörð.

Seyðisfjarðarkirkja:

Messa kl. 11:00. – Prestur Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.

Verum velkomin til kirkju!

Safnaðarstarf fellur niður 7. febrúar vegna veðurs

Safnaðarstarf Egilsstaðakirkju fellur niður mánudaginn 7. febrúar vegna afleitrar veðurspár. Þetta gildir um skyndihjálparnámskeið foreldramorgna (frestast til föstudags 11. feb.), kóræfingu barnakórs og samveru Stjörnustundar.

Útför Hjartar Eiríkssonar Kjerlúlf

Slóðin á streymi frá útförinni er hér

Slóðin á streymi frá útförinni er hér: https://www.youtube.com/watch?v=yaKyysey0Ws

Safnaðarstarf á vorönn

Safnaðarstarfið er nú loks að komast almennilega af stað hjá okkur aftur, eftir hlé vegna samkomutakmarkana á nýja árinu.

Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju alla sunnudaga kl. 10:30 frá og með 6. febrúar. Umsjón sr. Þorgeir o.fl.

Stjörnustund – kirkjustarf fyrir börn í 1.-4. bekk verður í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju alla mánudaga kl. 16:15-17:30, frá og með 7. febrúar. Umsjón Berglind Hönnudóttir.

Stjörnustund í Kirkjuselinu í Fellabæ alla mánudaga kl. 16:30-17:45 fyrir sama aldurshóp frá og með 14. febrúar. Umsjón sr. Brynhildur Óla Elínardóttir.

TTT – kirkjustarf fyrir börn í 5.-7. bekk verður í fimm vikna lotu í Kirkjuselinu í Fellabæ á fimmtudögum kl. 16:30-18:00 frá 10. mars til 7. apríl. Föndurþema og ferðalag á TTT-mót á Eiðum 1.-2. apríl. Umsjón Berglind Hönnudóttir.

Bíbí – æskulýðsfélag fyrir unglinga í 8.-10. bekk hittist í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju á fimmtudögum kl. 20:00-22:00 frá og með 3. febrúar. Umsjón Berglind Hönnudóttir.

Biblíuleshópur hittist í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju á miðvikudögum kl. 17:00-18:15 frá og með 2. febrúar, les valda kafla úr guðspjöllunum og ræðir um efnið. Umsjón sr. Þorgeir. Allir velkomnir.

Foreldramorgnar í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju alla fimmtudaga kl. 10:00-12:00 frá og með 3. febrúar.

Bæna- og samverustund í Hlymsdölum alla þriðjudaga kl. 13:30-14:30 frá og með 1. febrúar. Umsjón hafa sr. Brynhildur og Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni.

Opið hús í Kirkjuselinu í Fellabæ alla miðvikudaga kl. 13:00-15:00 þar sem allir eru velkomnir að njóta samfélags yfir kaffiveitingum, handavinnu, spjalli, sögum o.fl. Umsjón hafa sr. Brynhildur og Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni.

Hádegisbæn í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju alla þriðjudaga kl. 12:00, kaffi/te og brauð eftir bænasamfélagið. Bænarefnum má koma til sr. Þorgeirs.

Stuðningshópur vegna ástvinamissis fór af stað í janúar, um er að ræða lokaðan hóp sem hittist í 8 skipti. Slíkur hópur er reglulega í boði til stuðnings í sorgarferlinu. Umsjón hafa Dóra Sólrún djákni og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Sunnudagaskóli og messa í Egilsstaðakirkju 6. febrúar

Sunnudagurinn 6. febrúar í Egilsstaðakirkju:
Sunnudagaskóli kl. 10:30 – nú hefjum við starf sunnudagaskólans að nýju eftir Covid-hlé. Sr. Þorgeir, Torvald við flygilinn, leiðtogarnir og Rebbi refur mæta og taka vel á móti þér. Ný mynd í fjársjóðskistuna, mikill söngur og kirkjuleikfimi.
Messa kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason predikar og þjónar fyrir altari ásamt Dóru Sólrúnu Kristinsdóttur djákna. Meðhjálpari Jónas Þór Jóhannsson. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Verið velkomin.

Örhelgistund 30. janúar

Sunnudaginn 30. janúar: „örhelgistund við eldinn“ hér að neðan. Prestur Þorgeir Arason.

Þann 6. febrúar hefst opið helgihald í prestakallinu og sunnudagaskóli Egilsstaðakirkju aftur eftir Covid-hlé.

Útför Svandísar Jónsdóttur

Útför Svandísar Jónsdóttur verður frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 28. janúar kl. 14.00. Slóðin fyrir streymið er hér. Útsending hefst skömmu fyrir athöfn.

Helgistund frá Egilsstaðakirkju

Þessa bóndadagshelgi sendum við stutta nethelgistund frá Egilsstaðakirkju þar sem þemað er kærleikur og kærleiksþjónusta. Dóra Sólrún Kristinsdóttir djákni, sem sinnir djáknaþjónustu í Egilsstaðaprestakalli nú á vormisseri 2022, flytur hugvekju. Dóra, Þorgeir Arason og Torvald Gjerde organisti syngja tvo bænasálma, nr. 367, Eigi stjörnum ofar (lag: Hans Puls/ ljóð: Frostenson-Sigurbjörn Einarsson), og nr. 504, Ástarfaðir himinhæða (lag: J. Reichardt/ ljóð: Steingrímur Thorsteinsson). – Við stefnum á að geta hafið opið helgihald að nýju í febrúar.


Bænastund í Seyðisfjarðarkirkju

Þó að ekki sé hægt að koma saman við guðsþjónustu í kirkjunni getum við átt samfélag í bæninni.

Messur og sunnudagaskóli falla niður í janúar

Þar sem samkomutakmarkanir hafa verið framlengdar og enn greinist daglega mikill fjöldi Covid-smita verða engar guðsþjónustur og enginn sunnudagaskóli í Egilsstaðaprestakalli í janúar. Stefnt er að því að starf sunnudagaskólans í Egilsstaðakirkju hefjist að nýju þann 7. febrúar.