Category Archives: Uncategorized

Fjölskyldumessur á pálmasunnudag

Pálmasunnudagur – 20. mars

Egilsstaðakirkja:

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 10:30palm-sunday (1)

Lokahátíð barnastarfsins í vetur – Pylsupartí og páskaeggjaleit eftir stundina.

Börn í Stjörnustund flytja helgileik og Mýsla og Rebbi læra um páskana.

Félagar úr kirkjukórnum leiða sönginn.

Prestur er Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde og leiðtogar barnastarfsins taka virkan þátt.

Seyðisfjarðarkirkja

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 – Saga páskanna, kirkjubrúður og páskaeggjaleit eftir stundina.

Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir og organisti Sigurður Jónsson.

Verið velkomin til kirkju!

Messa í Seyðisfjarðarkirkju

Sunnudaginn 6. mars sem er fjórði sunnudagur í föstu er messa kl 11. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir almennan safnaðarsöng. Organisti er Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar ásamt fermingarbörnum sóknarinnar. Eftir messu er boðið upp á kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar.

Verið velkominaltari

Alþjóðlegur bænadagur kvenna

Í dag er alþjóðlegur bænadagur kvenna haldinn hátíðlegur víða um heim. Við í Egilstaðaprestakalli verðum með samveru í Kirkjuselinu í Fellabæ kl 17. Í ár er Kúba í miðdepli og er efni bænastundarinnar samið af kúbverskum konum. bænadagur-kvenna-3Eftir bænastundina er boðið upp á létta kaffihúsastemmingu og spjall og allir eru velkomnir, bæði konur og karlar, börn og fullorðnir.

Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar á Héraði

Sunnudagurinn 6. mars er æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar.

Sunnudagaskólinn verður á sínum stað í Egilsstaðakirkju kl. 10:30Bright air balloons

Söngur og saga – Bænir og blöðrur – Hressing og hlátur!

Gospelmessa í Egilsstaðakirkju kl. 20:00 – Sameiginleg æskulýðsmessa safnaða á Héraði

Liljurnar syngja og leiða söng undir stjórn Margrétar Láru Þórarinsdóttur, Tryggvi Hermannsson við flygilinn.

Fermingarbörn vorsins á Héraði taka virkan þátt.

Prestarnir Ólöf Margrét Snorradóttir og Þorgeir Arason þjóna við stundina.

Kirkjukaffi í boði fermingarstúlkna.

Verið velkomin til kirkju!

Laugardaginn 5. mars verður keppt til úrslita í Spurningakeppni fermingarbarna á Austurlandi. Keppnin hefst í Kirkjuselinu í Fellabæ kl. 14:00.  Til úrslita keppa lið Egilsstaða, Fellabæjar, Reyðarfjarðar og Norðfjarðar. Vöfflukaffi og allir eru velkomnir.

Opið hús fyrir syrgjendur í Kirkjuselinu 25. febrúar kl. 20

Opið hús fyrir syrgjendur er síðasta fimmtudag í mánuði kl. 20 í Kirkjuselinu, Smiðjuseli 2 Fellabæ.

Opið hús er vettvangur þar sem fólk sem syrgir og saknar getur komið og hitt aðra í sömu sporum, tjáð sig eða hlustað. Opið hús krefst engrar skuldbindingar annarrar en trúnaðar um það sem þar er sagt.

Sunnudagur 21. febrúar – konudagurinn

Verið velkomin til kirkju

Egilsstaðakirkja 21. febrúar:

Sunnudagaskóli kl. 10.30
Líf og fjör að vanda í sunnudagaskólanum. Söngur, sögur og brúðuleikrit. Allir fá límmiða og svo er djús og dund að stundinni lokinni. Umsjón: sr. Þorgeir Arason ásamt leiðtogum sunnudagaskólans.

Konudagsmessa kl. 17

,,Kona, mikil er trú þín. Verði þér sem þú vilt“ (Matt. 15.28)

Héraðsdætur syngja í konudagsmessunni 21. febrúar

Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjóna í konudagsmessu. Konur úr kvenfélaginu Bláklukku og messuþjónahóp kirkjunnar aðstoða. Meðhjálpari Þórdís Kristvinsdóttir.

Kór Egilsstaðakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng ásamt Héraðsdætrum. Organisti Torvald Gjerde. Stjórnandi kvennakórsins er Margrét Lára Þórarinsdóttir og undirleikari Tryggvi Hermannsson.

Kaffi og konfekt eftir messuna.

Allir hjartanlega velkomnir.

20151018_120159

Hluti af kór Egilsstaðakirkju ásamt stjórnda og organista, Torvaldi Gjerde.

Fjölskylduguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju – „5 ára messa“

nigerian-clipart-Clip-Art-Kids_jpegSunnudaginn 7. febrúar verður fjölskylduguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 10:30.
Þetta er árleg „5 ára messa“ í kirkjunni, þ.e. börn sem verða fimm ára á árinu (fædd 2011) eru sérstakir heiðursgestir og fá bókagjöf frá kirkjunni. Öll börn og fullorðnir velkomnir.
Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Öysteins M. Gjerde. Organisti Torvald Gjerde.
Prestur er Þorgeir Arason og leiðtogar sunnudagaskólans taka einnig þátt að ógleymdum Mýslu og Rebba!
Fermingardrengir bjóða upp á kirkjukaffi eftir stundina.
Fjölmennum!

Gospelmessa í Egilsstaðakirkju kl. 17

Stúlknakórinn Liljurnar syngja í gospelmessu í Egilsstaðakirkju 31. janúar kl. 17. Verið velkomin. (mynd Margrét Lára Þórarinsdóttir).

Sunnudaginn 31. janúar verður líf og fjör í Egilsstaðaprestakalli.

Kl. 10.30 er að vanda sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju. Rebbi og Mýsla koma í heimsókn, við syngjum og heyrum af því þegar Jesús stillir storminn.Jesus stillir

Í Seyðisfjarðarkirkju er messa kl. 11. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar.

Í Eiðakirkju er messa kl. 14 þar sem Kristján Gissurarson organisti verður kvaddur og honum þakkað góð störf í áraraðir. Prestur sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Í Egilsstaðakirkju er gospelmessa kl. 17. Stúlknakórinn Liljurnar syngja. Stjórnandi er Margrét Lára Þórarinsdóttir og Tryggvi Hermannsson annast undirleik. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar.

Verið velkomin til kirkju!

Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju alla sunnudaga kl. 10.30

Sunnudagaskólinn er á sínum stað þann 24. janúar kl. 10.30.
Biblíusaga, söngur og gleði. Barn verður borið til skírnar.

Börnin fá límmiða á veggspjaldið sitt. Kaffi, djús og ávextir eftir stundina.

Verið velkomin í sunnudagaskólann.
samv19

 

Stjörnustund í Kirkjuselinu Fellabæ þriðjudaga kl. 15.30

20160118_163852

Kærleikstréð í Kirkjuselinu

Stjörnustund er kristið barnastarf fyrir 6-9 ára börn. Helgistund, söngur og leikur. Gerum eitthvað skemmtilegt í hverri viku.

Stjörnustund verður í Kirkjuselinu Fellabæ
þriðjudaga kl. 15.30.

Umsjón hefur Ólöf Margrét Snorradóttir.

Verið velkomin.