Author Archives: egilsstadakirkja
27. desember: Hátíðarguðsþjónustu í Hofteigskirkju aflýst!
Hátíðarguðsþjónustu sem vera átti í Hofteigskirkju í dag, 27. desember kl. 14, er aflýst vegna hálku.
Helgihald um jól og áramót
Seyðisfjarðarkirkja: Friðarganga kl. 16:30, gengið frá spítalanum að kirkjunni.
Egilsstaðakirkja: Jólatónar – Torvald Gjerde organisti og gestir leika kl. 22:00-23:00, hægt að koma og fara að vild. Ókeypis aðgangur.
- desember, aðfangadagur jóla:
Egilsstaðakirkja: Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Þorgeir, Torvald, Rebbi refur og leiðtogar barnastarfsins. – Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. – Náttsöngur kl. 23:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur Árni Friðriksson.
Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Tryggvi Hermannsson. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Eiðakirkja: Náttsöngur kl. 23:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Leif Kristján Gjerde. Kór Eiðakirkju.
Kirkjuselið í Fellabæ: Helgistund kl. 23:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir.
- desember, jóladagur:
Áskirkja í Fellum: Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:00 (ath. tímann). Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 – Sjúkrahús Seyðisfjarðar kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Tryggvi Hermannsson. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Vallanes- og Þingmúlasóknir). Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallaness og Þingmúla.
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 15:00 (ath. tímann). Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Valþjófsstaðarkirkju.
- desember, annar í jólum:
Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00 – Hjúkrunarheimilið Dyngja kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Barnakór Egilsstaðakirkju. Fermingarbörn flytja ljósaþátt.
Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Tónlist leiðir Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir. Þverflauta og einsöngur Sigurlaug Björnsdóttir. Frumfluttur nýr jólasálmur Arnars Sigbjörnssonar við lag Sigríðar.
Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir). Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Leif Kristján Gjerde. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.
- desember, þriðji í jólum:
Hofteigskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Leif Kristján Gjerde.
- desember, gamlársdagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 16:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
- janúar, nýársdagur:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Bakkasystur syngja.
- janúar, mánudagur:
Egilsstaðakirkja: Jólatónleikar kirkjunnar kl. 20:00. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
Aðventukvöld í Bakkagerðiskirkju
Aðventukvöld í Bakkagerðiskirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 20:00.
Bakkasystur syngja aðventu- og jólasálma – Kirkjuskólabörnin syngja nokkur lög – Júlíu
s Geir og Páll lesa jólasögur – Hugvekja o.fl.
Organisti: Torvald Gjerde – Gítar: Freyja Jónsdóttir
Fyrir stundina eða kl. 18:00 mun sóknarnefnd að þessu sinni bjóða upp á kjötsúpu og köku í Vinaminni. Tilefnið er að þakka Kristjáni Gissurarsyni fyrir áralangt starf hans sem organisti og kórstjóri Bakkagerðiskirkju.
Allir eru hjartanlega velkomnir, bæði í Vinaminni og kirkjuna
Aðventuhátíð Eiða-og Hjaltastaðarsókna
Aðventuhátíð Eiða- og Hjaltastaðasókna verður haldin í Eiðakirkju sunnudaginn 11. desember kl 14. Ræðumaður er sr. Jóhanna Sigmarsdóttir, fv. sóknarprestur. Fermingarbörn flytja ljósaþátt. Organisti er Torvald Gjerde.
Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum.
Eftir stundina er boðið upp á heitt súkkulaði og smákökur í gamla Barnaskólnum.
Verið velkomin. 
Aðventukvöld í Seyðisfjarðarkirkju
Sunnudaginn 11. desember kl 18.00 er aðventukvöld í Seyðisfjarðarkirkju.
Ræðumaður kvöldsins er Gunnar Sverrisson. Femringarbörn flytja ljósaþátt.
Nýstofnaður barnakór Seyðisfjarðarskóla kemur fram í fyrsta sinn. Kórstjóri er Guðrún Katrín Árnadóttir.
Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri og organisti er Tryggvi Hermannsson. Myrta Nerina Wolf leikur á selló.

Seyðisfjarðarkirkja
Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum.
Jól í skugga sorgar
Samvera tileinkuð jólahaldi í skugga missis og sorgar verður fimmtudaginn 8. desember nk. kl. 20:00 í Kirkjuselinu í Fellabæ.
Erla Björk Jónsdóttir, guðfræðingur, fjallar um jólin og sorgina. Umræður um efnið í framhaldinu.
Drífa Sigurðardóttir og félagar úr Kór Ássóknar flytja tónlistaratriði, boðið verður upp á kaffi og dagskránni lýkur með stuttri bænastund þar sem hægt verður að tendra ljós í minningu ástvina.
Allir velkomnir.
Þingmúlakirkja – Aðventu- og afmælishátíð
Laugardaginn 3. desember kl. 14:00 (ath. tímann) fer sameiginleg aðventuhátíð Vallanes- og Þingmúlasókna fram í Þingmúlakirkju. Jafnframt er haldið upp á 130 ára afmæli kirkjunnar. Að lokinni samverustund í kirkjunni býður sóknarnefnd í afmæliskaffi í félagsheimilinu á Arnhólsstöðum.
Kirkja hefur lengi staðið að Þingmúla, undir Múlakolli í Skriðdal. Eins og nafnið gefur til kynna var þar þingstaður fyrr á öldum og Múlasýslur draga nafn sitt af staðnum. Úr sögu staðarins má nefna að einn austfirsku skáldprestanna þjónaði þar, sr. Bjarni Gissurarson (d. 1712). Núverandi kirkja í Þingmúla var vígð fyrsta sunnudag í aðventu árið 1886 af þáverandi sóknarpresti, sr. Páli Pálssyni, en sr. Páll var þekktur fyrir brautryðjandastarf sitt við kennslu heyrnarlausra. Við athöfnina í kirkjunni á laugardag mun sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson, fv. sóknarprestur, segja frá aðstæðum fólks við byggingu kirkjunnar.
Fjölbreytt og jólaleg tónlistaratriði verða flutt bæði í kirkjunni og kaffinu á laugardaginn. Þær Ragnhildur Elín, Soffía Mjöll og Sara Lind koma fram, svo og hópur ungra stúlkna í söngnámi. Védís Klara Þórðardóttir syngur einsöng. Kór Vallaness og Þingmúla syngur og leiðir almennan söng. Organisti og kórstjóri er Torvald Gjerde.
Allir hjartanlega velkomnir! -Sóknarprestur og sóknarnefnd Þingmúlasóknar
Sunnudagurinn 4. des. – annar sud. í aðventu
Sunnudagaskóli kl. 10:30 – síðasta samvera fyrir jól. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina
Aðventuhátíð kirkjunnar kl. 18:00. Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum. Liljurnar, Barnakór og Kór Egilsstaðakirkju syngja. Bernskuminning frá jólum: Sigríður Halldórsdóttir. Hugvekja: Arnaldur Máni Finnsson, guðfr. og ritstj. Austurlands. Einnig flytja fermingarbörn ljósaþátt. Stundin hefst á að tendra ljósin á jólatrénu við kirkjuna. Allir velkomnir!
Seyðisfjarðarkirkja:
Sunnudagaskóli kl. 11:00 – síðasta samvera fyrir jól. Við fáum heitt súkkulaði og málum piparkökur í safnaðarheimilinu eftir stundina.
Valþjófsstaðarkirkja:
Aðventukvöld kl. 20:00.
Ræðumaður kvöldsins er Skúli Björn Gunnarsson.
Kór Valþjófsstaðarkirkju syngur og leiðir almennan söng ásamt kór Áskirkju.
Organisti og söngstjóri er Drífa Sigurðardóttir.
Kaffi og smákökur, upplestur, söngur og spjall.
Verið velkomin.
Aðventukvöld í Kirkjuselinu miðvikudagskvöld 30. nóvember kl. 20
Aðventukvöld Ássóknar í Fellum verður í Kirkjuselinu miðvikudagskvöldið 30. nóvember kl. 20.
Barnakór Fellaskóla syngur jólalög. Fermingarbörn og stúlkur úr TTT sýna helgileik.
Kór Áskirkju syngur og leiðir almennan söng undir stjórn Drífu Sigurðardóttur, organista.
Ræðumaður kvöldsins er Þór Ragnarsson.
Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina.
Fermingarbörn aðstoða.
Kaffi og smákökur í lokin.
Verið hjartanlega velkomin á aðventukvöldið í Kirkjuselinu.




