Barnastarf í Kirkjuselinu Fellabæ hefst 11. október
Stjörnustund fyrir káta krakka kl. 15:30-16:30
Stjörnustund er kristið frístundastarf fyrir börn í 1.-4. bekk. Í hverri viku bröllum við eitthvað skemmtilegt, helgistund með söng og biblíusögu er fastur liður. Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu, nema annað sé auglýst sérstaklega. Hressing í upphafi hvers fundar.
TTT – Tíu Til Tólf ára
TTT er kristið frístundastarf fyrir börn í 5.-7. bekk. Helgistund með söng og biblíusögu, föndur, leikir og fræðsla. Starfið er þátttakendum að kostnaðarlausu, nema annað sé auglýst sérstaklega. Hressing í upphafi hvers fundar.
Umsjón með starfinu hefur Ólöf Margrét Snorradóttir
Posted on 10/10/2016, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0