Category Archives: Uncategorized

Kyrrðarstund í lok aðventu

jolakerti20. desember, fjórða sunnudag í aðventu, verður kyrrðarstund í Egilsstaðakirkju kl. 20 um kvöldið.

Um er að ræða einfalda stund, um hálftíma langa, fyrir þau sem við lok aðventu vilja eiga kyrrlátt samfélag um orð Guðs, bæn og altarissakramentið. Prestur er Þorgeir Arason og organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur.

Allir velkomnir.

Aðventukvöld Seyðisfjarðarkirkju 13. desember kl 18

FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Í TALI OG TÓNUM

Kór Seyðisfjarðarkrikju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Kórstjóri Sigurbjörg Kristínardóttir, organisti Sigurður Jónsson og flautuleikari Berglind Halldórsdóttir.

Ljósaþáttur í flutningi fermingarbarnajólatré og kirkjan lítil

Börn úr TTT-starfi flytja helgileik.

Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.

 

Stúlknakórinn Liljurnar – Jólatónleikar

11987154_1909003502657434_2774874399314359559_nStúlknakórinn Liljurnar halda jólatónleika í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 13. desember kl. 17:00.

Kórstjóri er Margrét Lára Þórarinsdóttir og meðleikari Tryggvi Hermannsson.

Hátíðlegir, fjörugir og fallegir jólatónleikar!
Aðgangseyrir: 1.500 kr. Frítt fyrir 12 og yngri.

Allur ágóði rennur í sjóð Liljanna til að komast á norræna kóramótið Norbusang 2016.

Aðventukvöld Ássóknar og Hofteigssóknar í Kirkjuselinu 10. desember kl. 20

Kirkjuselið Fellabæ

Sameiginlegt aðventukvöld Ássóknar í Fellum og Hofteigssóknar verður fimmtudagskvöldið 10. desember kl. 20.

Barnakór Fellaskóla syngur jólalögLight-the-Advent-Candles-Intro

Ræðumaður kvöldsins er Sólrún Hauksdóttir í Merki

Kór Áskirkju syngur við undirleik Drífu Sigurðardóttur

Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina

Fermingarbörn aðstoða

Kaffi og smákökur

Allir velkomnir

Frestað á Kirkjubæ vegna ófærðar

Aðventustundinni, sem vera átti í Kirkjubæjarkirkju í dag, sunnudaginn 6. desember kl. 15:00, hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna ófærðar.

Frestað í Vallanesi vegna veðurs

Vegna ótryggrar veðurspár er aðventuhátíð, sem vera átti í Vallaneskirkju kl. 15 í dag (laugardag), frestað til miðvikudagsins 9. desember kl. 20:30.

Önnur helgi aðventunnar, 5.-6. desember

Vallaneskirkja 2Laugardagurinn 5. desember

Vallaneskirkja:

Aðventuhátíð Vallanes- og Þingmúlasókna laugardaginn 5. desember kl. 15:00 í Vallanesi. Jólasaga, hugleiðing, Kór Vallanes- og Þingmúlasókna syngur, stjórnandi og organisti Torvald Gjerde. Prestur er Þorgeir Arason. Kaffi í kirkjunni eftir stundina.

Sunnudagurinn 6. desember, annar sunnud. í aðventu

Egilsstaðakirkja:

Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju 6. des. kl. 10:30, annan sunnudag í aðventu. Síðasta samvera fyrir jól. Saga, jólasöngvar, brúðurnar og límmiðinn á sínum stað. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina.

Aðventuhátíð Egilsstaðakirkju sama dag kl. 18:00. Stundin hefst á að tendrað verður á ljósum jólatrésins fyrir utan kirkjuna. Barnakór og Kór Egilsstaðakirkju og Stúlknakórinn Liljurnar, ræðumaður Sigríður Herdís Pálsdóttir leikskólastjóri, Árni Friðriksson flytur jólaljóð, ljósaþáttur fermingarbarna. Organisti Torvald Gjerde, barnakórstjóri Øystein Magnús Gjerde, kórstjóri Liljanna Margrét Lára Þórarinsdóttir, undirleikari Tryggvi Hermannsson. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina.

Hjaltastaðarkirkja:

Aðventuhátíð Eiða- og Hjaltastaðarsókna kl. 14:00. Hátíðleg stund fyrir alla fjölskylduna. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, söngfólk kirknanna syngur, Suncana Slamning organisti, Charles Ross fiðla, Áslaug Sigurgestsdóttir flauta. Meðhjálpari er Hildigunnur Sigþórsdóttir. Kaffiveitingar í Hjaltalundi eftir stundina í boði Kvenfélagsins Bjarkar í tilefni af útgáfu bókar um sögu félagsins.

Kirkjubæjarkirkja:

Aðventustund Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna að Kirkjubæ kl. 15:00, annan sunnudag í aðventu. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur, kórstjóri og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Prestur er Þorgeir Arason. Minnt er á jólasamveru Kvenfélags Hróarstungu í Tungubúð eftir stundina í kirkjunni.

Seyðisfjarðarkirkja:

Sunnudagaskóli í Seyðisfjarðarkirkju 6. desember kl. 11. Umsjón hafa Arna, Sigríður og góðir leiðtogar. Saga jólanna, mikill söngur og kirkjubrúðurnar. Eftir stundina málum við piparkökur í safnaðarheimilinu. Verið velkomin.

Valþjófsstaðarkirkja:

Aðventukvöld kl. 20:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina, Kór Valþjófsstaðarkirkju syngur, stjórnandi og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson.

Verið velkomin til kirkju!

Valþjófsstaðarkirkja: Aðventukvöld 6. desember kl. 20

Valthjofsstadur vetur

Valþjófsstaðarkirkja desember 2015. Mynd: Anna Kristín

Aðventukvöld í tali og tónum.

Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina. Kór kirkjunnar syngur jólalög undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Jólasaga, hugleiðing og almennur safnaðarsöngur.

Verið velkomin!

Aðventa
Brátt nálgast sú helgasta hátíð í bæ
með heilögu ljósunum björtum
andi guðs leggst yfir lönd, yfir sæ
og leitar að friði í hjörtum.

En nú virðist fegurðin flúin á braut
friðurinn spennu er hlaðinn,
lífsgæðakapphlaup og kauphallarskraut
er komið til okkar í staðinn.

Þá vill hann oft gleymast sem farveg oss fann
fæddur á jötunnar beði,
við týnum úr hjartanu trúnni á hann
og tilefni jólanna gleði.

Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós
þá veitist þér andlegur styrkur,
kveiktu svo örlítið aðventuljós
þá eyðist þitt skammdegismyrkur.

það ljós hefur tindrað aldir og ár
yljað um dali og voga,
þó kertið sé lítið og kveikurinn smár
mun kærleikur fylgja þeim loga.

Láttu svo kertið þitt lýsa um geim
loga í sérhverjum glugga´
þá getur þú búið til bjartari heim
og bægt frá þér vonleysisskugga.
(Hákon Aðalsteinsson)

Aðventukvöldi Ássóknar og Hofteigssóknar frestað vegna veðurs!!!

Vegna veðurs er fyrirhuguðu aðventukvöldi í Kirkjuselinu frestað. Nánar auglýst síðar.

 

 

Kirkjuselið 2. desember kl. 20: Aðventukvöld Ássóknar og Hofteigssóknar

Kirkjuselið Fellabæ

Sameiginlegt aðventukvöld Ássóknar í Fellum og Hofteigssóknar verður miðvikudagskvöldið 2. desember kl. 20.

Barnakór Fellaskóla syngur jólalög

Ræðumaður kvöldsins er Sólrún Hauksdóttir í Merki

Kór Áskirkju syngur við undirleik Drífu Sigurðardóttur

Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina

Fermingarbörn aðstoða

Kaffi og smákökur

Allir velkomnir