Valþjófsstaðarkirkja: Aðventukvöld 6. desember kl. 20
Aðventukvöld í tali og tónum.
Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina. Kór kirkjunnar syngur jólalög undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Jólasaga, hugleiðing og almennur safnaðarsöngur.
Verið velkomin!
Aðventa
Brátt nálgast sú helgasta hátíð í bæ
með heilögu ljósunum björtum
andi guðs leggst yfir lönd, yfir sæ
og leitar að friði í hjörtum.
En nú virðist fegurðin flúin á braut
friðurinn spennu er hlaðinn,
lífsgæðakapphlaup og kauphallarskraut
er komið til okkar í staðinn.
Þá vill hann oft gleymast sem farveg oss fann
fæddur á jötunnar beði,
við týnum úr hjartanu trúnni á hann
og tilefni jólanna gleði.
Vökvaðu kærleikans viðkvæmu rós
þá veitist þér andlegur styrkur,
kveiktu svo örlítið aðventuljós
þá eyðist þitt skammdegismyrkur.
það ljós hefur tindrað aldir og ár
yljað um dali og voga,
þó kertið sé lítið og kveikurinn smár
mun kærleikur fylgja þeim loga.
Láttu svo kertið þitt lýsa um geim
loga í sérhverjum glugga´
þá getur þú búið til bjartari heim
og bægt frá þér vonleysisskugga.
(Hákon Aðalsteinsson)
Posted on 03/12/2015, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0