Dagskrá fyrir yngstu kynslóðina meðan beðið er eftir jólum.
Syngjum jólalög, heyrum sögu úr Biblíunni, Rebbi og Mýsla mæta í jólaskapi.
Verið velkomin!
Sunnudagaskólinn á sínum stað í kirkjunni kl. 10:30. Umsjón hafa Dagmar, Guðný, sr. Þorgeir og hinir leiðtogarnir.
Messa kl. 17:00. Sr. Davíð Þór Jónsson predikar og þjónar fyrir altari. Kór Egilsstaðakirkju syngur, organisti Torvald Gjerde. Allir velkomnir.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju sama dag kl. 15:30. Sr. Davíð Þór, Torvald og kirkjukórinn þjóna.
Seyðisfjarðarkirkja:
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og góðir leiðtogar leiða stundina. Allir velkomnir.
Stjörnustund í Egilsstaðakirkju hefst aftur á nýju ári í dag, mánudaginn 11. janúar kl. 16:30-18:00 (ath. röng tímasetning í Dagskránni). Þessi fyrsta samvera ársins verður í Safnaðarheimilinu (sjá mynd) vegna málningarvinnu í kirkjunni. Öll börn í 1.-4. bekk velkomin, nýir krakkar mega alltaf bætast í hópinn og margt spennandi er að gerast alla mánudaga fram að páskum!
Meðal þess sem verður á dagskrá vorannar: öfugur dagur, bingó, pizzafundur og Afríkufundur. Leiðtogar verða sem fyrr þær Dagbjört Lilja og Snjólaug Ósk Björnsdætur og öflugir yngri leiðtogar, þær Æsa, Heiðrún, Sara, Sesselía, Sunneva o.fl. auk okkar prestanna.
Nýársguðsþjónusta verður haldin í Sleðbrjótskirkju í Jökulsárhlíð, sunnudaginn 10. janúar kl. 14:00 (í stað jólaguðsþjónustu sem féll niður vegna ófærðar).
Sr. Þorgeir Arason, Jón Ólafur Sigurðsson organisti, Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna og Margrét Dögg Guðgeirsd. Hjarðar meðhjálpari þjóna að stundinni.
Allir velkomnir.
Sunnudagaskóli Egilsstaðakirkju hefst aftur á nýju ári sunnudaginn 10. janúar kl. 10:30-11:30. Nýárs-vöfflukaffi í boði í lok stundar. – Rebbi og Mýsla mæta, kemur þú ekki líka?Hátíðarguðsþjónusta verður í Bakkagerðiskirkju 3. janúar kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason þjónar, Bakkasystur syngja og Kristján Gissurarson organisti leikur nú við sína síðustu athöfn í kirkjunni. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.
Jólatónleikar Egilsstaðakirkju verða sama dag, 3. janúar kl. 17:00. Kirkjukór, barnakór og kammerkór kirkjunnar koma fram ásamt Kór Vallaness og Þingmúla. Einnig verður orgelspil, einsöngur og almennur söngur. Ókeypis inn og allir velkomnir. Stjórnandi Torvald Gjerde.
Sjáumst sem flest og látum fallegu jólalögin hljóma í síðasta skipti þessi jól!
Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleðilegt ár
og góðar og blessaðar tíðir
(Sb 98 – Valdimar Briem).
Verið velkomin í aftansöng í Egilsstaðakirkju á síðasta degi ársins kl. 16.
Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn organistans, Torvald Gjerde.
Ólöf Margrét Snorradóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Hátíðarguðsþjónustu í Bakkagerðiskirkju sem vera átti kl. 14 í dag, 27. desember, hefur verið frestað til sunnudagsins í nýári, 3. janúar kl. 14, vegna veðurs. Sömuleiðis hefur hátíðarguðsþjónustunni í Sleðbrjótskirkju verið frestað um óákveðinn tíma vegna slæmrar færðar.
Hátíðarguðsþjónustu sem vera átti í Sleðbrjótskirkju á jóladag hefur verið frestað til 28. desember kl. 14:00 vegna veðurútlits og færðar.
Hátíðarguðsþjónusta verður í Bakkagerðiskirkju sunnudaginn 27. desember kl. 14:00 en ekki á aðfangadag, sömuleiðis vegna færðar og veðurspár.
Verið velkomin til kirkju á helgri hátíð!
23. desember, Þorláksmessa:
Egilsstaðakirkja: Jólatónar – Organisti kirkjunnar og gestir leika milli kl. 22-23.
24. desember, aðfangadagur jóla:
Egilsstaðakirkja:
Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét og leiðtogar sunnudagaskólans leiða stundina, organisti Torvald Gjerde. Hátíðleg stund fyrir yngstu kynslóðina og Mýsla og Rebbi verða í jólaskapi.
Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Torvald Gjerde organisti og Kór Egilsstaðakirkju.
Náttsöngur kl. 23:00. Einsöngur: Þorbjörn Rúnarsson. Sr. Þorgeir Arason, Torvald Gjerde organisti og Kór Egilsstaðakirkju.
Eiðakirkja:
Náttsöngur kl. 23:00. Sr. Vigfús I. Ingvarsson, Kristján Gissurarson organisti og Kór Eiðakirkju.
Kirkjuselið í Fellabæ:
Helgistund kl. 23:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og Drífa Sigurðardóttir organisti.
Seyðisfjarðarkirkja:
Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sigurbjörg Kristínardóttir organisti og Kór Seyðisfjarðarkirkju.
25. desember, jóladagur:
Áskirkja í Fellum:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Drífa Sigurðardóttir organisti og Kór Ássóknar.
Sleðbrjótskirkja:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. (Sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir.) Sr. Þorgeir Arason, Jón Ólafur Sigurðsson organisti og Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna.
Seyðisfjarðarkirkja:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 í kirkjunni. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Sigurbjörg Kristínardóttir organisti og Kór Seyðisfjarðarkirkju. Guðsþjónusta kl. 15:00 á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar.
Þingmúlakirkja:
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Davíð Þór Jónsson, Torvald Gjerde organisti og Kór Vallanes- og Þingmúlasókna.
26. desember, annar í jólum:
Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Ljósaþáttur fermingarbarna. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Torvald Gjerde organisti og Barnakór Egilsstaðakirkju. Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 15:00.
Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason, Suncana Slamning organisti, Charles Ross fiðla, Áslaug Sigurgestsdóttir flauta, sönghópur kirkjunnar syngur.
Hofteigskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir og Jón Ólafur Sigurðsson organisti.
27. desember, sunnudagur milli jóla og nýárs:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason þjónar ásamt söngdívum kirkjunnar, Kristjönu Björnsdóttur meðhjálpara og Kristjáni Gissurarsyni organista, en Kristján leikur nú við sína síðustu athöfn í kirkjunni. (Ath. Engin guðsþjónusta á aðfangadag vegna færðar og veðurspár.)
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Jón Ólafur Sigurðsson organisti og kór kirkjunnar. – Sunnudagsganga Ferðafélags Fljótsdalshéraðs verður kirkjuganga í Fljótsdal þennan dag: Gengin gömul kirkjuleið frá Geitagerði í Valþjófsstað í fylgd séra Vigfúsar I. Ingvarssonar. Mæting kl. 11 við Landstólpa á Egilsstöðum.
31. desember, gamlársdagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 16:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, Torvald Gjerde organisti og Kór Egilsstaðakirkju.
3. janúar, sunnudagur milli nýárs og þrettánda
Egilsstaðakirkja: Jólatónleikar kirkjunnar kl. 17:00. Kórar kirkjunnar, einsöngvari o.fl. koma fram. Aðgangur ókeypis.