Category Archives: Uncategorized

Útiguðsþjónusta á Jökuldal 7. ágúst kl. 14

Jesús segir: hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða (Lúk 18.14).

20160804_151644Sunnudaginn 7. ágúst kl. 14 verður útiguðsþjónusta við fossinn Rjúkanda á Jökuldal. Stutt er að ganga upp að fossinum frá bílastæðinu, fallegur hvammur er neðan við fossinn og þar ætlum við að vera. Munið hlýju fötin og jafnvel teppi að sitja á. Ekki sakar að hafa með heitt kakó eða kaffi og hver veit nema eitthvað verði í boði með kaffinu. Ef illa viðrar færum við okkur í Hofteigskirkju en til þess ætti ekki að koma því allt útlit er fyrir að það verði þurrt, en gæti orðið svalt, komið því vel klædd.

Ólöf Margrét Snorradóttir þjónar en Torfastaðasystkinin leiða sönginn.

Allir velkomnir.

Helgihald á næstunni

Hér má nálgast upplýsingar um helgihald næstu vikna í Egilsstaðaprestakalli

Sunnudaginn 7. ágúst kl. 14 er útguðsþjónusta við fossinn Rjúkanda á Jökuldal

Miðvikudaginn 10. ágúst kl. 20 er kvöldmessa í Bakkagerðiskirkju á Borgarfirði eystra

Sunnudagurinn 14. ágúst:
-Messa í Egilsstaðakirkju kl. 11
-Guðsþjónusta við rústir klausturkirkjunnar á Skriðuklaustri kl. 11 en þá er Fljótsdalsdagurinn haldinn hátíðlegur
Kl. 20 er kvöldmessa í Þingmúlakirkju

Laugardaginn 20. ágúst er Möðrudalsgleðin og þá er guðsþjónusta í Möðrudalskirkju kl. 14

Sunnudaginn 21. ágúst kl. 14 verður hátíðarmessa í Valþjófsstaðarkirkju í tilefni 50 ára vígsluafmæli kirkjunnar, þá verður einnig nýtt orgel kirkjunnar tekið í notkun

Sunnudaginn 28. ágúst kl. 14 verður hátíðarmessa í Eiðakirkju í tilefni 130 ára vígsluafmæli kirkjunnar

Laugardaginn 3. september verður kyrrðardagur í Kirkjuselinu Fellabæ kl. 10-15

Sunnudagurinn 4. september
-Guðsþjónusta í Egilsstaðakirkju kl. 11, fermingarbörn 2017 og foreldrar sérstaklega boðin velkomin
-Messa í Kirkjubæjarkirkju kl. 14. Kirkjukaffi Kvenfélagsins í Tungubúð á eftir

 

Sunnudagur 31. júlí: Guðsþjónusta í Áskirkju kl. 20

Áskirkja altaristaflaKvöldguðsþjónusta á ljúfum nótum verður í Áskirkju sunnudaginn 31. júlí kl. 20.

Kvöld- og sumarsálmar sungnir í bland við ritningarlestur, hugleiðingu og bænastund.

Prestur er Ólöf Margrét Snorradóttir, Drífa Sigurðardóttir organisti leiðir sönginn.

Verið velkomin til kirkju.

Lesmessa í Egilsstaðakirkju 24. júlí kl. 20

Lesmessa verður í Egilsstaðakirkju sunnudagskvöldið 24. júlí kl. 20.
Lesnir verða valdir ritningartextar ásamt hugleiðingum. Altarisganga og bænastund.

Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina.

Verið velkomin.

 

Klyppstaðarkirkja í Loðmundarfirði

Árleg sumarmessa í Klyppstaðarkirkju verður sunnudaginn 17. júlí kl 14. Félagar úr Kór Seyðisfjarðarkirkju leiða almennan safnaðarsöng. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjóna.
Eftir messu er boðið upp á kaffi og meðlæti í skála ferðafélags Fljótsdalshéraðs.

Ath! Það þarf að áætla um 1,5 klst. akstur frá Borgarfirði eystra. Vegurinn er aðeins fær fjórhjóladrifnum bílum.

Messan á Klyppstað hefur að jafnaði verið vel sótt af ferðafólki og úr nágrannabyggðum.  Klyppstaðarkirkja var reist árið 1895, en prestur sat þar til ársins 1888. Eftir það var staðnum þjónað frá Dvergasteini og síðar Seyðisfirði. Kirkjan er friðað hús og hefur ekki verið afhelguð. Fyrri hluta 20. aldar var blómleg byggð í Loðmundarfirði. Um aldamótin 1900 voru þar 87 íbúar

Klyppstaðarkirkja

Klyppstaðarkirkja

kvöldmessa í Hjaltastaðarkirkju

Sunnudaginn 10. júlí er kvöldmessa kl 20.00.

Um tónlistina sér Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir ásamt sínu söngfólki.

Screen Shot 2016-04-13 at 10.18.34Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir.

Meðhjálpari er Hildigunnur Sigþórsdóttir.

Verið velkomin

Tónlistarstundir: Guðný Einarsdóttir í Egilsstaðakirkju kl. 20 5. júlí

Tónleikar í kvöld í Egilsstaðakirkju, Guðný Einarsdóttir, organisti Hjallakirkju, spilar á orgel.
Guðný er einn fremsti orgelleikari á Íslandi í dag, var áður organisti Fella- og Hólakirkju.

 

Skógarguðsþjónusta í Selskógi

Árleg guðsþjónusta í útileikhúsinu í Selskógi á Egilsstöðum verður sunnudaginn 3. júlí kl. 11.skógarmessa 2013

(Göngustígur liggur frá bílastæði.)

Torvald Gjerde leikur á harmoniku.

Prestur er Þorgeir Arason.

Meðhjálpari er Ásta Sigfúsdóttir.

Grillaðar pylsur í skóginum eftir stundina.

(Ef veður er mjög vont verður guðsþjónustan í Egilsstaðakirkju.)

Allir velkomnir!

Tónlistarmessa í Eiríksstaðakirkju sunnudaginn 26. júní kl. 14

090

Athöfnin hefst kl. 14 með tónlistarflutningi Krossbandsins. Guðsþjónusta hefst um 14.30.

Krossbandið skipa Snorri Guðvarðarson gítar, Ragnheiður Júlíusdóttir söngur og Finnur Finnsson bassi.
Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir.

Verið velkomin til kirkju!

 

Aðalsafnaðarfundur Eiríksstaðasóknar verður haldinn að Hákonarstöðum III að athöfn lokinni, venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefndin.

Kvöldmessa í Sleðbrjótskirkju 26. júní

Sunnudaginn 26. júní: Kvöldmessa í Sleðbrjótskirkju kl. 20.Sleðbrjótskirkja-2-500x333
Stefán Bogi Sveinsson, skáld og bæjarfulltrúi frá Sellandi, flytur predikun.
Prestur Þorgeir Arason.
Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Meðhjálpari Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.
Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur.
Verið velkomin!