Author Archives: Ólöf Margrét Snorradóttir

Kvöldmessa í Þingmúlakirkju 16. ágúst

Sr. Gunnlaugur Stefánsson þjónar fyrir altari og prédikar í kvöldmessu í Þingmúlakirkju í Skriðdal.

Þingmúlakirkja

Þingmúlakirkja

Organisti Torvald Gjerde. Kór Þingmúlakirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng.

Safnaðarkaffi í Arnhólsgerði að lokinni messu.

Allir velkomnir.

Guðsþjónusta kl. 14 á Möðrudalsgleði 15. ágúst

Á Möðrudalsgleði laugardaginn 15. ágúst verður guðsþjónusta í Möðrudalskirkju.

Úr Möðrudalskirkju.  Mynd kirkjukort.net

Úr Möðrudalskirkju.
Mynd kirkjukort.net

Hefst hún kl. 14 að lokinni göngu með Venna.

Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir, organisti Torvald Gjerde. Almennur safnaðarsöngur. Meðhjálpari Vernharður Vilhjálmsson.

Verið innilega velkomin til guðsþjónustu á fjöllum.

Kvöldguðsþjónusta að sumri í Bakkagerðiskirkju 12. ágúst kl. 20

Miðvikudagskvöldið 12. ágúst verður guðsþjónusta í Bakkagerðiskirkju á Borgarfirði eystri. Bakkagerðiskirkja-1-500x333
Séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir stundina. Organisti er Kristján Gissurarson, kór Bakkagerðiskirkju syngur og leiðir almennan safnaðarsöng. Meðhjálpari Kristjana Björnsdóttir.

Söngur, ritningarlestur, hugleiðing og bæn ásamt blessun með olíu.

Verið hjartanlega velkomin.

Prestur verður til viðtals í safnaðarheimilinu Heiðargerði frá kl. 18 sama dag. Upplýsingar í síma 662 3198 eða á netfangið olof.snorradottir[hjá]kirkjan.is.

Kvöldguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju 9. ágúst kl. 20

Séra Ólöf Margrét Snorradóttir leiðir kvöldguðsþjónustu í Egilsstaðakirkju 9. ágúst kl. 20. Organisti Torvald Gjerde.

Allir velkomnir!

Útiguðsþjónusta við Laugarfell 9. ágúst kl. 14

Sunnudaginn 9. ágúst kl. 14 er útiguðsþjónusta við Laugarfell.
Laugarfell er rétt norðan við fjallið Snæfell. Bundið slitlag er alla leið, nema afleggjarann að skálanum, svo greiðfært er öllum bílum.

Slæðufoss Mynd: Highland hostel

Slæðufoss
Mynd: Highland hostel

Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Gylfi Björnsson frá Hofi leikur á harmonikkuna undir almennum safnaðarsöng.
Við verðum við Slæðufoss en ef illa viðrar færum við okkur í skálann.

Allir velkomnir!

Fjölmennum að Laugarfelli og eigum góða stund saman úti í náttúrunni. Munið eftir kaffinu og teppum.

 

Kvöldmessa í Valþjófsstaðarkirkju 2. ágúst kl. 20

Vertu hjá oss, Drottinn, því að kvölda tekur og degi hallar. Amen.

Sunnudagskvöldið 2. ágúst kl. 20 verður messa í Valþjófsstaðarkirkju í Fljótsdal. Séra Ólöf  Margrét Snorradóttir þjónar fyrir altari og organisti er Jón Ólafur Sigurðsson og leiðir hann jafnframt almennan safnaðarsöng. Eftirfarandi sálmar verða sungnir: 592 Nú hverfur sól í haf, 926 Á hverjum degi og 587 Vér lofum þig Kristur. Verið velkomin til messu.

Valþjófsstaðarkirkja undir Valþjófsstaðarfjalli. Mynd Kirkjukort.net.

Valþjófsstaðarkirkja undir Valþjófsstaðarfjalli.
Mynd Kirkjukort.net

Valþjófsstaðarkirkja var vígð 3. júlí 1966 en Valþjófsstaður hefur kirkjustaður frá tólftu öld. Lesa má nánar um Valþjófsstaðarkirkju hér.

 

Helgihald og safnaðarstarf í vikunni

Helgihald og safnaðarstarf í prestakallinu 27. júlí til 2. ágúst.

Mánudagur 27. júlí
Kyrrðarstund kl. 18 í safnaðarheimili Egilsstaðakirkju, Hörgsási 4.

Miðvikudagur 29. júlí
Opið hús í Kirkjuselinu Fellabæ kl. 13-16. Kaffi, lestur og spjall í góðum félagsskap.

Fimmtudagur 30. júlí
Opið hús fyrir syrgjendur kl. 20 í Kirkjuselinu Fellabæ.

Sunnudagur 2. ágúst
Kvöldmessa í Valþjófsstaðarkirkju kl. 20. Prestur sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.