Author Archives: egilsstadakirkja

Sunnudagur 25. október: Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju og Seyðisfjarðarkirkju

,,Ég er í sjöunda himni því sunnudagur er í dag…“ Við syngjum mikið í sunnudagaskólanum.

Sunnudagaskólinn er á sínum stað í Egilsstaðakirkju kl. 10.30. Það er alltaf fjör í sunnudagaskólanum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum frá sunnudagaskólanum 18. október.

Rebbi og Mýsla eru vinsælir gestir í sunnudagaskólanum.

Rebbi og Mýsla eru vinsælir gestir í sunnudagaskólanum.

Söngur, sögur og bænir að vanda, Rebbi og Mýsla koma í heimsókn og við heyrum líka söguna af Lasarusi. Öll börn fá límmiða.

Djús og ávextir í boði eftir stundina, og kaffi handa pabba og mömmu.
Láttu sjá þig!

Á Seyðisfirði er sunnudagaskóli kl. 11. Biblíusaga, söngur og bænir.

Allir velkomnir í sunnudagaskólagleðina.

Sunnudagurinn 18. október

Sunnudagaskóli í Egilsstaðakirkju kl. 10:30. Mýsla og Rebbi á sínum stað, nýr límmiði, fjörugur söngur og djús og dund eftir stund. Barn verður borið til skírnar í stundinni.52244887ac2f7130271d56163257b583

Hádegismessa í Egilsstaðakirkju kl. 12:00. Prestur Þorgeir Arason, organisti Torvald Gjerde, kór Egilsstaðakirkju og félagar úr messuhópi taka þátt. Molasopi eftir messuna.

Messa í Seyðisfjarðarkirkju kl. 11:00. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng og organisti er Sigurður Jónsson. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson.

Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili Seyðisfjarðarkirkju. Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt góðum leiðtogum. Kaffi og kökur í safnaðarheimili eftir stundina.

Allir velkomnir til kirkju.

Eldklerkurinn í Fjarðarborg

eldklerkurinnMöguleikhúsið sýnir leiksýninguna Eldklerkinn í Fjarðarborg á Borgarfirði þriðjudaginn 13. október kl. 20:00.

Eldklerkurinn Jón Steingrímsson er kunnastur fyrir eldmessuna er hann flutti í miðjum Skaftáreldum, en hver var hann, hvaðan kom hann og hver urðu örlög hans? Hér er sögð saga frá 18. öld af góðum bónda, lækni og presti sem þarf að takast á við afleiðingar skelfilegustu náttúruhamfara Íslandssögunnar á tímum örbirgðar og undirokunar.

“Árið 1783 þann 8. júní, sem var hvítasunnuhátíð, í heiðríku og spöku veðri um dagmálabil, kom upp fyrir norðan næstu byggðafjöll á Síðunni svart sandmistur og mokkur svo stór, að hann á stuttum tíma breiddi sig yfir alla Síðuna”. 

Þannig segir séra Jón Steingrímsson frá upphafi Skaftárelda í eldriti sínu. Jón var prófastur Vestur-Skaftfellinga á árunum 1778-1791 og sjónarvottur að eldsumbrotunum og áhrifum þeirra. Frá honum eru komnar nákvæmustu lýsingarnar af Skaftáreldum sem varðveittar eru, auk þess sem sjálfsævisaga hans er einstakt rit innan íslenskrar bókmenntasögu og gefur góða sýn inn í daglegt líf og hugmyndaheim fólks á 18. öld. Skarpskyggni Jóns endurspeglast víða í ritum hans og eru lýsingar á Skaftáreldum glöggt dæmi um það.

Leikverkið byggir að mestu á skrifum Jóns, en um leið vekur það spurningar um hliðstæður við hamfarir af völdum manna og náttúru sem yfir þjóðina hafa dunið á síðustu árum.

Höfundur handrits og leikari er Pétur Eggerz, leikstjóri Sigrún Valbergsdóttir, leikmynd gerði Rósa Sigrún Jónsdóttir, búninga Thelma Björnsdóttir og hljóðmynd er eftir Guðna Franzson.

Miðaverð er kr. 3.500 og miðasala verður við innganginn.

Eldri borgarar, öryrkjar og nemendur fá 20% afslátt og kostar miðinn þá kr. 2.800.

Úr gagnrýni um sýninguna:

„Pétur og Sigrún hafa unnið þetta verk af alúð“ Silja Aðalsteinsdóttir

„Þessi handritsgerð öll er afburða vel heppnuð og Pétur er sjálfur góður sögumaður sem heldur okkur föstum í tvo klukkutíma (…) Afar vel heppnuð tilraun til að endursegja eitt af höfuðritum bókmenntanna og veita innsýn inn í eitt dramatískasta tímabil Íslandssögunnar.“ Jón Viðar Jónsson

„Því verður hiklaust haldið fram að Eldklerkurinn sé með bestu einleikjum, sem sést hafa á sviði hér á landi að undanförnu.“ Arnþór Helgason

Sunnudagurinn 11. október

butterfly-3Fjölskylduguðsþjónusta í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 11. október kl. 10:30. Félagar úr kór kirkjunnar leiða okkur í léttum söngvum. Mýsla og Rebbi koma í heimsókn og börnin fá nýjan límmiða. Sóknarprestur og leiðtogar sunnudagaskólans leiða stundina. Hressing fyrir unga sem eldri í lokin.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu Dyngju, Egilsstöðum, sama dag kl. 11:45.
Sunnudagaskóli í Seyðisfjarðarkirkju sama dag kl. 11:00.

Messa í Bakkagerðiskirkju sama dag kl. 15:00

Prestur er Þorgeir Arason, organisti Kristján Gissurarson og Bakkasystur syngja.

Kaffi í Heiðargerði eftir messu – Allir velkomnir!

Fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju

Sunnudaginn 4. október er fjölskylduguðsþjónusta í Seyðisfjarðarkirkju kl.11. Biblíusaga, kirkjubrúður og mikill söngur. Kaffi og kökur ífjölsklylduguðsþjónusta safnaðarheimili eftir stundina.

Verið velkomin

Sunnudagaskóli í Seyðisfjarðarkirkju

 

fjölsklylduguðsþjónusta

Sunnudagaskóli verður í Seyðisfjarðarkirkju sunnudaginn 27. september kl 11.

Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt góðum leiðtogum.

Biblíusaga, kirkjubrúður, leikur og mikill söngur.
Ávextir, djús og litamyndir eftir stundina.

Verið velkomin

Messa og sunnudagskóli í Seyðisfjarðarkirkju

Þann 20. septbember verður messa í Seyðisfjarðarkirkju kl 11. Kór kirkjunnar undir stjórn Sigurbjargar Kristínardóttur leiðir almennan safnaðarsöng. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar og meðhjálpari er Jóhann Grétar Einarsson. Sunnudagaskóli í safnaðarheimili á sama tíma. Umsjón hefur Arna Magnúsdóttir ásamt hópi góðra leiðtogar. Bibilíusaga, kirkjubrúður oJesusCalmsStorm1-e1430749753526-150x150g mikill söngur.
Eftir stundina er kaffi og kökur í safnaðarheimili kirkjunnar, tekið verður við frjálsum framlögum til hjálparstarfs á Sýrlandi og Jórdaníu.

Verið velkomin.

Sunnudagurinn 20. september – Egilsstaðakirkja

10599659_10152508251339215_1914792629268554496_n

Frá kirkjugöngunni haustið 2014

Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju kl. 10:30 – Hreyfisöngvarnir og kirkjuleikfimin á sínum stað!

Kvöldmessa í léttum dúr í Egilsstaðakirkju kl. 20:00.

Gengið til kirkju frá Egilsstaðakirkjugarði kl. 19:30 í tilefni af Hreyfiviku.

Kirkjukórinn leiðir okkur í léttum sálmum, Torvald Gjerde við flygilinn og sr. Þorgeir Arason þjónar.

Vöfflukaffi eftir messu og tekið við frjálsum framlögum til hjálparstarfs á Sýrlandi og Jórdaníu.

Allir velkomnir!

Messa og haustsúpa í Egilsstaðakirkju

cropped-cropped-free-as-a-bird2Messa í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 13. september kl. 18:00. Haustsúpa í safnaðarheimilinu eftir stundina. Sr. Þorgeir Arason þjónar, Kór Egilsstaðakirkju leiðir sönginn og organisti er Torvald Gjerde.

Frjáls framlög til hjálparstarfs á Sýrlandi og Jórdaníu, en biskup Íslands hefur hvatt söfnuði Þjóðkirkjunnar til að efna til samskota í kirkjum landsins sunnudagana 13. september og 20. september nk. til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar í starfsemi sinni innan ACT – Alliance í þessum löndum.

Guðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Dyngju sama dag kl. 17:00.

Allir velkomnir!

Atvinna í boði í KMA

Sumarbúðir o.fl 175

Kirkjumiðstöð Austurlands auglýsir eftir starfkrafti til að sjá um eldhús, matseld og létt þrif.

Þyrfti að geta hafið störf sem fyrst.

Óreglulegur vinnutími.

Jákvætt hugarfar og þægilegt viðmót skilyrði. Verður að geta starfað sjálfstætt.

Skemmtilegur vinnustaður og got samstarfsfólk.

Frekari upplýsingar veitir Davíð Þór Jónsson, héraðsprestur, í netfanginu david.thor.jonsson@kirkjan.is