Author Archives: egilsstadakirkja

Áfallateymi Austurlands býður á samveru: Hjalti Jónsson sálfræðingur

Hlúum hvert að öðru

hjalti-jonssonÁfallateymi Austurlands býður til samveru í Egilsstaðakirkju mánudaginn 13. febrúar kl. 20.00
Hjalti Jónsson sálfræðingur fjallar um kvíða og þunglyndi. Hjalti hefur langa reynslu af vinnu með börnum og unglingum, var m.a. sálfræðingur í VMA sem var einn fyrsti framhaldsskólinn á landinu til að bjóða upp á sálfræðiþjónustu. Að erindi loknu bíður Hjalti uppá umræður og veitir góð ráð eftir því sem þess er óskað.
HSA – Fljótsdalshérað – Þjóðkirkjan á Austurlandi
 

Blessandi samfélag – námskeið hjá Téo van der Weele 11.-12. febrúar

Blessandi samfélag

Hollenski guðfræðingurinn Téo van der Weele [frb. Veile] verður hérlendis í febrúar í einum af sínum teo-vd-weelemörgu Íslandsheimsóknum. Hann er mörgum Íslendingum kunnur sem andlegur leiðbeinandi og fagmaður á sviði sálgæslu eftir áratuga þjónustu.

Hugtökin friður og blessun koma mikið fyrir í kennslu og sálgæslu hjá Téo. Þá er um að ræða virkan veruleika, áhrifaafl sem vekur kyrrð og öryggi í lífi fólks og hjálpar þeim sem orðið hafa fyrir áföllum að fóta sig að nýju í lífinu.

Téo verður hér eystra um næstu helgi. Fólki býðst að sækja námskeið hjá honum í Safnaðarheimili Egilsstaðkirkju, Hörgsási 4. – kl. 10:00-17:00 laugardaginn 11. febrúar og frá kl. 13.00 sunnudaginn 12. Léttur hádegisverður á laugardaginn.

Skráning og nánari upplýsingar í s. 863 6866 – námskeiðsgjald kr. 3.000,-

Opin samvera verður á sama stað með Téo sunnudagskvöldið 12. febrúar kl. 20:00.

5. febrúar kl. 10:30: Fimm ára börn sérstakir heiðursgestir í fjölskylduguðsþjónustu í Egilsstaðakirkju.

kata-og-oliBrúður, sögur og söngur í fjölskylduguðsþjónustu í Egilsstaðakirkju sunnudaginn 5. febrúar kl. 10:30

Öll 5 ára börn sérstaklega boðin velkomin og hvött til að mæta með fjölskyldunni.
Barnakór Egilsstaðakirkju syngur, stjórnandi er Öystein Magnús Gjerde.
Messukaffi í boði fermingardrengja að lokinni guðsþjónustu.

Sr. Vigfús Ingvar leiðir guðsþjónustuna ásamt leiðtogum sunnudagaskólans, fermingarbörn og messuþjónar aðstoða.
Organisti Torvald Gjerde. Meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.

Verið velkomin í fjölskylduguðsþjónustu!

Minningarstund fyrir Birnu Brjánsdóttur

Minningarstund fyrir Birnu Brjánsdóttur verður í Egilsstaðakirkju laugardaginn 28. janúar kl. 16. Þau sem vilja minnast Birnu og sýna samhug eru hvött til að mæta.

Sunnudagur 29. janúar

Egilsstaðakirkja

Sunnudagaskóli kl. 10:30
Leiðtogarnir, presturinn, organistinn og brúðurnar eru spennt að hitta káta krakka. Söngur og sögur, djús og dund eftir stundina. Verið velkomin!

Messa kl. 20
Séra Vigfús Ingvar Ingvarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Torvalds Gjerde organista.

Seyðisfjarðarkirkja

Messa kl. 11
Séra Sigríður Rún Tryggvadóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Tryggvi Hermannson, kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Orgelið mun leika stórt hlutverk í messunni, en eftir umfangsmikla hreinsun er það eins og nýtt.

Verið velkomin til messu!

Egilsstaðakirkja 21.-22. janúar

EgskirkjaÝmislegt um að vera um helgina í Egilsstaðakirkju:

Laugardaginn 21. janúar kl. 11:00-13:30 mun Arnaldur Máni Finnsson guðfræðingur kynna Kyrrðarbæn (Centering Prayer), sem er aldagömul aðferð til að kyrra eigin hugsanir og dýpka sambandið við Guð, sjálfan sig og hið heilaga í lífinu. Aðferðin var kynnt af sr. Guðrúnu Eggertsdóttur í Egilsstaðakirkju í september, góður hópur tók þátt og síðan var kyrrðarbæn iðkuð vikulega í kirkjunni fram á aðventuna. Nú tökum við þráðinn upp aftur með þessari laugardagssamveru, nýir og áhugasamir eru sérstaklega boðnir velkomnir en þeir sem áður hafa iðkað eru hvattir til að koma, rifja upp og taka þátt og njóta þagnarinnar. Hressing í hádeginu. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. (Vakin er athygli á að vikulegar kyrrðarbænarstundir hefjast svo aftur í framhaldinu – miðvikudaginn 25. janúar kl. 17:00-17:30 í kirkjunni (gengið inn um hliðarinngang) – opið hús frá kl. 16:30.)

Sunnudaginn 22. janúar kl. 10:30: Sunnudagaskólinn á sínum stað. Sr. Vigfús Ingvar, leiðtogarnir, brúðurnar og Torvald við flygilinn sjá um stundina.

Sunnudaginn 22. janúar kl. 17:00: Orgeltónleikar í kirkjunni. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti í Akureyrarkirkju, leikur orgelverk samin af konum. Í jafnréttissamfélagi okkar þykir það kannski ekki tiltökumál að kona semji tónlist fyrir orgel en staðreyndin er sú að konur eru skráðar fyrir mjög fáum prósentum orgelverka. Í Danmörku er hlutfallið 1%. Ástæðan er ekki sú að  konur kunni ekki eða vilji ekki semja fyrir orgel. Þær semja yndislega tónlist og sýnishorn af henni má heyra á tónleikunum sem verða klukkustundar langir og er aðgangur ókeypis. Tónskáldin sem hljóma eru Hildigunnur Rúnarsdóttir, Bára Grímsdóttir, Fanny Mendelssohn, Emma Lou Diemer ofl. Sigrún Magna er með kantorspróf úr Tónskóla þjóðkirkjunar og meistarapróf úr Háskólanum í Kaupmannahöfn og hefur komið fram á tónlistarstundum hér á Egilsstöðum með metnaðarfullt prógramm áður.

Sunnudagaskólinn byrjar aftur í Egilsstaðakirkju

0800eddffd509138e2837b996b51af8b_celebrate-cadworxlive-clip-art-celebration-clipart-black-and-white_300-300Fyrsti sunnudagaskóli ársins 2017 í Egilsstaðakirkju verður á sunnudaginn, 8. janúar kl. 10:30. Öystein Magnús mætir með gítarinn, leiðtogarnir, presturinn og brúðurnar á sínum stað og við munum eiga bæði fjöruga og innihaldsríka stund. Það er orðin hefð hjá okkur í sunnudagaskólanum að fagna nýju ári með vöfflupartýi og rjóminn mun flæða í lok samverunnar á sunnudaginn. Verum öll velkomin og vinsamlega látið berast því það kemur engin Dagskrá út í vikunni! (Athugið að Stjörnustund hefst aftur 16. janúar og Bíbí 17. janúar.)

Aftansöngur á gamlársdag í Egilsstaðakirkju

Verið velkomin í aftansöng í Egilsstaðakirkju á síðasta degi ársins kl. 16.

Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn organistans, Torvald Gjerde.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.

gamlarskvold

Mynd af ruv.is

Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag í Bakkagerðiskirkju

Við fögnum nýju ári með hátíðarguðsþjónustu í Bakkagerðiskirkju á nýársdag kl.14.00. Bakkasystur syngja og leiða almennan safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Torvald Gjerde. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir. Bakkagerðiskirkja-1-500x333

27. desember: Hátíðarguðsþjónustu í Hofteigskirkju aflýst!

Hátíðarguðsþjónustu sem vera átti í Hofteigskirkju í dag, 27. desember kl. 14, er aflýst vegna hálku.