Author Archives: egilsstadakirkja
Starf organista laust til umsóknar
Organisti og kórstjórnandi við Egilsstaða-, Þingmúla- og Vallanessóknir
Sóknarnefndir í Egilsstaða-, Þingmúla- og Vallanessóknum auglýsa laust til umsóknar starf organista og kórstjórnanda við sóknirnar frá og með 1. ágúst 2022. Um er að ræða 100% starf, þ.e. 85% starfshlutfall við Egilsstaðasókn og 15% við Þingmúla- og Vallanessóknir.

Organisti hefur umsjón með hljóðfæraleik við athafnir í sóknunum og stýrir blómlegu kórastarfi á svæðinu. Tónlist skipar stóran sess við allt helgihald og kirkjustarf í sóknunum. Við kirkjurnar þrjár starfa nú tveir kirkjukórar, barnakór og kammerkór. Áhersla er lögð á að hlúa að og efla kórastarfið. Sóknirnar þrjár tilheyra Egilsstaðaprestakalli og mun organisti starfa náið með prestum, sóknarnefndum og meðhjálpurum ásamt sjálfboðaliðum í kirkjustarfinu.
Ábyrgðarsvið:
- Stýra tónlistarstarfi safnaðanna í samráði við presta, sóknarnefndir og annað starfsfólk
- Hljóðfæraleikur við athafnir, helgihald og annað kirkjustarf
- Stjórn kórastarfs við sóknirnar
- Umsjón með hljóðfærum í eigu safnaðanna
Hæfnikröfur:
- Kirkjutónlistarmenntun frá Tónskóla þjóðkirkjunnar eða sambærilegt nám
- Reynsla af flutningi tónlistar við helgihald
- Metnaður og áhugi fyrir öflugu kórastarfi
- Listfengi og hugmyndaauðgi
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að starfa sjálfstætt
Launakjör eru samkvæmt samningum Félags íslenskra organista (FÍO) og Þjóðkirkjunnar.
Umsóknarfrestur um starfið er til 15. febrúar 2022 og með umsóknum skulu fylgja afrit af prófskírteinum og ferilskrá. Umsókninni skal fylgja stutt greinargerð um framtíðarsýn og væntingar og samþykki um öflun upplýsinga úr sakaskrá. Umsóknum skal skilað á netfangið: egilsstadakirkja@gmail.com. Nánari upplýsingar um starfið veitir Þorgeir Arason sóknarprestur í s. 847 9289 og á thorgeir.arason@kirkjan.is.
Áramótakveðja
Aftansöngur jóla í Egilsstaðakirkju
Aftansöng jóla í Egilsstaðakirkju 2021
má finna hér á Facebook-síðu prestakallsins
og líka hér á Youtube-rás kirkjunnar.

Aftansöngurinn er aðeins á vefnum þetta árið vegna aðstæðna í samfélaginu. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Torvalds Gjerde organista. Øystein Magnús Gjerde syngur einsöng í „Ó, helga nótt.“ Prestur er Þorgeir Arason. Lesarar Auður Anna Ingólfsdóttir og Jónas Þór Jóhannsson. Myndatöku, hljóð og tæknivinnslu önnuðust Heiður Ósk Helgadóttir og Hjalti Stefánsson hjá HS Tókatækni. – Verður aðgengilegt öll jólin.
Minnum einnig á „Opna jólakirkju“ í Egilsstaðakirkju og Seyðisfjarðarkirkju kl. 16:00-18:00 á aðfangadag. Jólatónar leiknir, á 15 mín. fresti verður flutt jólaguðspjall eða örhugvekja. Hægt að koma og fara að vild. Verið velkomin – Öllum sóttvarnareglum fylgt. Hátíðin hringd inn kl. 18:00.
Jólin 2021 í Egilsstaðaprestakalli
Öllum fyrirhuguðum guðsþjónustum um jólin í kirkjum Þjóðkirkjunnar á Fljótsdalshéraði er aflýst vegna sóttvarnaráðstafana.
Aftansöngur jóla í Egilsstaðakirkju birtist hér á vefnum á aðfangadag og verður aðgengilegur yfir hátíðirnar.

„Opin jólakirkja‟ verður í Egilsstaðakirkju og Seyðisfjarðarkirkju milli kl. 16-18 á aðfangadag, 24. desember.
Organisti leikur þá jólatóna, á um 15 mín. fresti verður flutt guðspjall eða örhugvekja og hægt verður að kveikja á kerti. Hægt að koma og fara að vild. Grímuskylda, gætt að fjölda í kirkju og öðrum sóttvarnareglum fylgt. Verið velkomin.
Gleðileg jól!
Aðventustund Eiða- og Hjaltastaðarsókna
Á fjórða sunnudegi í aðventu bjóðum við upp á aðventustund frá Eiða- og Hjaltastaðasóknum sem tekin var upp í Eiðakirkju. Organisti er Jón Ólafur SIgurðsson, kór Eiðakirkju syngur ásamt barnakór Hjaltastaðarsóknar. Kórstjóri barnakórs er Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir. Heiður Ósk Helgadóttir syngur einsöng. Prestur er Sigríður Rún Tryggvadóttir.
Fjórði sunnudagur í aðventu

Egilsstaðakirkja: Að kvöldi fjórða sunnudags í aðventu, 19. desember, verður helgistund í Egilsstaðakirkju kl. 20:00. Altarisganga. Sr. Þorgeir Arason þjónar og flytur hugvekju. Organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur. Verið velkomin!
Athugið að sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er nú kominn í jólafrí en minnt er á jólastund barnanna kl. 14.00 á aðfangadag. Sunnudagaskólinn hefst aftur á nýju ári þann 9. janúar kl. 10.30.
Aðventustund í Egilsstaðakirkju
Aðventustund Egilsstaðakirkju 2021 birtist hér að ofan. Jódís Skúladóttir alþingismaður flytur hugvekju. Guðbjörg Gunnarsdóttir segir frá átaki Soroptimista „Roðagyllum heiminn“. Barnakór og Kirkjukór Egilsstaðakirkju syngja, einsöngvarar eru Hlín Pétursdóttir Behrens og Þórhildur Vigfúsdóttir. Organisti og kórstjóri er Torvald Gjerde. Prestur er Þorgeir Arason.
Aðventustund í Sleðbrjótskirkju
Bak við þennan tengil má finna aðventustund sem tekin var upp í Sleðbrjótskirkju í Jökulsárhlíð fyrir örfáum dögum.
Vegna aðstæðna kemur hún í stað hefðbundins aðventukvölds í Sleðbrjóts- og Kirkjubæjarsóknum þetta árið. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssókna syngur fallega aðventu- og jólasálma undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar organista. Kristján Ketill Stefánsson syngur einsöng. Stefanía Malen Stefánsdóttir, formaður sóknarnefndar Sleðbrjótskirkju, flytur ávarp. Þorgeir Arason sóknarprestur flytur hugvekju og leiðir bæn. Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar meðhjálpari les ljóðið Aðventu eftir Hákon Aðalsteinsson. Um upptökuna sáu Heiður Ósk Helgadóttir og Hjalti Stefánsson hjá HS Tókatækni. – Á næstu dögum verða einnig birtar á vef Egilsstaðaprestakalls aðventustundir frá Egilsstaðakirkju og frá Eiða- og Hjaltastaðarsóknum.
Á döfinni

Viðburðir á döfinni í Egilsstaðaprestakalli:
19. desember, fjórði sunnudagur í aðventu:
Egilsstaðakirkja: Helgistund með altarisgöngu kl. 20:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Almennur söngur.
23. desember, Þorláksmessa:
Egilsstaðakirkja: Jólatónar kl. 22:00-23:00. Organisti og gestir koma fram. Hægt að koma og fara að vild.
24. desember, aðfangadagur:
Egilsstaðakirkja:
Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Þorgeir, Torvald og leiðtogar sunnudagaskólans. Leynigestur ofan af fjöllum.
Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
Ath! Ef áfram verða samkomutakmarkanir verður aftansöngur bæði kl. 17:00 og kl. 18:00 á aðfangadag og beðið um skráningu fyrir fram. Nánari upplýsingar hér á síðunni þegar nær dregur.
Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir og sr. Vigfús I. Ingvarsson. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur.
Eiðakirkja: Jólanæturguðsþjónusta kl. 23:00. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Eiðakirkju. Einsöngur Heiður Ósk Helgadóttir.
Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur jóla kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
25. desember, jóladagur:
Áskirkja í Fellum: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Dagur Fannar Magnússon. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.
Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:00 (ath. tímann). Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna. Einsöngur Margrét Dögg Guðgeirsdóttir Hjarðar.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Hjúkrunarheimilið Fossahlíð, Seyðisfirði: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Rusa Petriashvili. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 15:30 (ath. tímann). Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Valþjófsstaðarkirkju. Einsöngur Einar Sveinn Friðriksson.
Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Erla Björk Jónsdóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallaness og Þingmúla.
26. desember, annar dagur jóla:
Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir. Organisti Torvald Gjerde. Barnakór Egilsstaðakirkju.
Hjúkrunarheimilið Dyngja, Egilsstöðum: Jólaguðsþjónusta kl. 15:00. Sr. Brynhildur Óla Elínardóttir. Organisti Torvald Gjerde. Barnakór Egilsstaðakirkju.
Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir og söngfuglar leiða tónlist.
28. desember, fjórði dagur jóla:
Arnhólsstaðir í Skriðdal: Jólastund Vallanes- og Þingmúlasókna kl. 18:00. Kórsöngur, kaffiveitingar, jólasaga o.fl. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde.
31. desember, gamlársdagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
1. janúar, nýársdagur:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Bakkasystur syngja. Einsöngur Tinna Jóhanna Magnusson.
2. janúar, sunnudagur:
Egilsstaðakirkja: Jólatónleikar kirkjunnar kl. 17:00. Kirkjukór, Barnakór og Kammerkór Egilsstaðakirkju og Kór Vallaness og Þingmúla syngja. Einsöngur og hljóðfæraleikur. Stjórnandi Torvald Gjerde. Aðgangur ókeypis.




