Author Archives: egilsstadakirkja
Bleikri messu frestað vegna veðurs
Þar sem rauð veðurviðvörun tekur senn gildi fyrir Austurland að Glettingi og íbúum ráðlagt að halda sig heima, er bleiku messunni sem vera átti í Egilsstaðakirkju í kvöld frestað. Bleika messan er nú áætluð 23. október kl. 20:00.
Útför sr. Jóhönnu I. Sigmarsdóttur
Sr. Jóhanna Ingibjörg Sigmarsdóttir, fv. sóknarprestur Egilsstaðaprestakalls og prófastur, sem lést á Akureyri þann 26. september síðast liðinn, verður jarðsungin frá Egilsstaðakirkju í dag, laugardaginn 8. október.
Sr. Kristján Valur Ingólfsson, fv. vígslubiskup í Skálholti, jarðsyngur. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándors Kerekes organista. Hlín Pétursdóttir Behrens syngur einsöng. Jarðsett verður í Egilsstaðakirkjugarði.
Sunnudagurinn 9. október
Seyðisfjarðarkirkja:
Sunnudagaskóli kl 11. Umsjón hefur Gunnfríður Katrín Tómasdóttir ásamt aðstoðarleiðtogum. Litablöð og djús í safnaðarheimili eftir skóla.
Egilsstaðakirkja:
Sunnudagaskóli kl. 10:30. Þorgeir, Sándor, Elísa og Guðný taka vel á móti börnum á öllum aldri. Litablöð og hressing í lokin.
Bleik messa kl. 20:00
Kvöldmessa í léttum dúr með alvarlegum undirtóni þar sem stundin er tileinkuð árvekniátaki Krabbameinsfélagsins, Bleikum október.
Haraldur Geir Eðvaldsson flytur reynslusögu sem aðstandandi.
Prestur Þorgeir Arason. Sándor Kerekes organisti og Kór Egilsstaðakirkju leiða tónlistina. Kaffisopi eftir messu.
2. október
Áður auglýstri guðsþjónustu sem vera átti í Valþjófsstaðarkirkju þann 2. október nk. er frestað um óákveðinn tíma, vegna frestunar Leikmannastefnu þjóðkirkjunnar.
Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju er á sínum stað 2. október kl. 10:30.
Sunnudagaskóli fellur niður 25. sept. vegna veðurs
Sunnudagaskólinn í Egilsstaðakirkju fellur niður á morgun 25.9. vegna veðurs. Nú er best að festa lausamunina, hita svo bara kakó á morgun og vera inni að horfa á Daginn í dag
Sjáumst hress eftir viku!
Leikmannastefna 2022
Leikmannastefnan 2022 verður haldin á Austurlandi og það er sóknarnefnd Egilsstaðakirkju sem hefur veg og vanda að undirbúningi hennar. Föstudaginn 30. september koma saman fulltrúar frá öllu landinu og eiga heila helgi saman þar sem málefni kirkju og kristni verða rædd, auk þess sem lista og skemmtunar frá Austurlandi verður notið í góðum félagsskap.
Leikmannastefna verður sett með guðsþjónustu í Egilsstaðakirkju og verður slitið með helgistund í Valþjófsstaðarkirkju. Ráðstefnan sjálf er haldin á Hallormsstað í dásamlegri náttúru Fljótsdalshéraðs.
Í gær fór undirbúningshópur frá Egilsstaðakirkju í vettvangsferð í Hallormsstað og er myndin tekin við það tilefni fyrir framan tjaldið góða sem Heiðrún hótelstýra sýndi.

Sunnudagurinn 18. september
Egilsstaðakirkja:
Sunnudagaskólinn byrjar vetrarstarf sitt kl. 10:30!
Mikill söngur og hreyfingar, brúður og góður boðskapur. Hressing og litamynd í lokin. Börn á öllum aldri velkomin! Umsjón: Þorgeir, Elísa, Ragnheiður, Guðný og Sándor við píanóið.
Messa á Ormsteiti kl. 14:00
Nýr organisti kirkjunnar, Sándor Kerekes, verður settur inn í starf sitt við þetta tilefni og því mikið um fallega tónlist í messunni. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Prestur Þorgeir Arason. Kaffi eftir messu.
Messa á hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 15:20.
Seyðisfjarðarkirkja:
Sunnudagaskóli kl. 11:00.





