Sr. Jarþrúður Árnadóttir nýr prestur í Egilsstaðaprestakalli

Sr. Jarþrúður Árnadóttir verður nýr prestur hér í Egilsstaðaprestakalli. Við bjóðum hana innilega velkomna til starfa og væntum góðs af þjónustu hennar í prestakallinu!

Jarþrúður, sem er fædd 1988, vígðist til Langanes- og Skinnastaðarprestakalls árið 2019 og hefur þjónað þar síðan, með aðsetur og meginstarfsskyldur á Þórshöfn. Undanfarið ár hefur hún einnig þjónað Hofsprestakalli í Vopnafirði í afleysingum. Nánar má lesa um ráðningu sr. Jarþrúðar hér á heimasíðu Þjóðkirkjunnar.

Í Egilsstaðaprestakalli starfa sem fyrr þrír prestar og mun Jarþrúður starfa við hlið Sigríðar Rúnar Tryggvadóttur og Þorgeirs Arasonar. Hún verður með starfsstöð í Kirkjuselinu í Fellabæ en starfið var auglýst með sérstakar skyldur við Ássókn þó að allir prestarnir þjóni í sameiningu öllum sóknum prestakallsins. Sr. Jarþrúður tekur við af sr. Kristínu Þórunni Tómasdóttur, sem flutti sig nýlega til í starfi.

Posted on 10/10/2024, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.

Færðu inn athugasemd