Sunnudagaskólinn og upphaf fermingarstarfanna 13. september

EGILSSTAÐAKIRKJA
sunnudagur 13. september Sunnudagskólinn hefst aftur að loknu sumarfríi. Góð stund í kirkjunni fyrir alla fjölskylduna kl. 10.30. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir leiðir stundina ásamt leiðtogum. Tónlist í höndum Torvald Gjerde.
Guðsþjóðnusta kl. 20 og upphaf fermingarstarfanna á Héraði. Fermingarbörn næsta vors og fjölskyldur þeirra sérstaklega boðin velkomin. Prestar kirkjunnar leiða helgihaldið, kór Egilsstaðakirkju leiðir sönginn og Torvald Gjerde er organisti.
Eftir guðsþjónustu er fundur með fermingarbörnum og foreldrum/forráðafólki.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Upphaf fermingarstarfanna. Fermingarbörn boðin velkomin ásamt sínum fjölskyldum. Fundur vegna fermingarfræðslu og fermingar eftir guðsþjónustu.
SKRÁNING Í FERMINGARFRÆÐSLU ER NÚ RAFRÆN OG FER FRAM hér
Verið öll velkomin.
Posted on 07/09/2020, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0