Helgihald 11.-12. júlí

ÚTIMESSA
Hin árlega útimessa í dreifbýli Egilsstaðaprestakalls fer að þessu sinni fram á flötinni við Geirsstaðakirkju í landi Litla-Bakka í Hróarstungu (við Tunguveg nr. 925) sunnudaginn 12. júlí kl. 16:00.
Prestur er Þorgeir Arason og Torvald Gjerde leikur á harmoniku undir sálmasöng. Skúli Björn Gunnarsson segir frá Geirsstaðakirkju og tilgátunum að baki byggingunni.
Gott er að taka með sér til messunnar eitthvað til að sitja á og ekki spillir nestisbiti svo hægt sé að sameinast í messukaffi í lokin. Allir velkomnir.
SLEÐBRJÓTSKIRKJA Í JÖKULSÁRHLÍÐ
Messa sunnudaginn 12. júlí kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna syngur. Allir velkomnir.
VALLANESKIRKJA
Messa laugardaginn 11. júlí kl. 14:00 – Ferming. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallaness og Þingmúla syngur. Allir velkomnir.
Posted on 06/07/2020, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0