12 sporin á Seyðisfirði
Sjálfstyrkingarnámskeiðið Tólf sporin – andlegt ferðalag verður einnig í boði á vegum Seyðisfjarðarkirkju í vetur.
Starfið fer fram í Öldutúni (húsi Framtíðarinnar,
félagi eldri borgara á Seyðisfirði).
Opnir kynningarfundir verða mánudagana 3. og 10. október kl. 19 þar sem færi gefst á að kynna sér starfið. Á þriðja fundinum verður hópunum lokað og sporavinnan hefst. Vinnan fer fram í litlum lokuðum hópum og byggist á heimavinnu fyrir hvern fund, með því að svara spurningum tengdum hverju spori. Hópurinn hittist vikulega og fer yfir efni hvers fundar.
Unnið er með bókina Tólf sporin – Andlegt ferðalag.
Tólf spora vinna hentar öllum þeim sem í einlægni vilja vinna með tilfinningar sínar í þeim tilgangi að öðlast betri líðan og meiri lífsfyllingu þar sem leitað er styrks í kristinni trú.
Ekkert þátttökugjald er, annað en efniskostnaður fyrir bókina.Vinir í bata er hópur fólks sem hefur tileinkað sér tólf sporin sem lífstíl. Á heimasíðu þeirra má finna frekari upplýsingar um tólf sporin sem og lesa reynslusögu margra sem eru á hinu andlega ferðalagi sem tólf sporin eru.
Vertu velkominn á kynningarfund þann 3. eða 10. október.
Posted on 28/09/2016, in Uncategorized. Bookmark the permalink. Færðu inn athugasemd.
Færðu inn athugasemd
Comments 0