Færslusafn
Dymbilvika og páskar
2. apríl – SKÍRDAGUR:
Egilsstaðakirkja: Fermingarmessa kl. 10:30. sr. Jarþrúður Árnadóttir og sr. Þorgeir Arason þjóna. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándors Kerekes.
Helgistund með máltíð kl. 18. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar og Sándor Kerekes leikur undir almennan safnaðarsöng. Við minnumst síðustu kvöldmáltíðarinnar með helgihaldi við langborð í kirkjunni og borðum saman kjötsúpumáltíð (kr. 2000, reiðufé eða millifærsla).
Seyðisfjarðarkirkja – Fermingarmessa kl. 11. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar og Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur undir stjórn Hlínar Pétursdóttur Behrens.
Áskirkja – Fermingarmessa kl. 14. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar og Kór Áskirkju syngur undir stjórn Drífu Sigurðardóttur.
3. apríl – FÖSTUDAGURINN LANGI:
Egilsstaðakirkja – Kvöldmessa kl. 20. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina. Sönghópur karla syngur undir stjórn Sándors Kerekes.
4. apríl – LAUGARDAGURINN KYRRI:
Valþjófsstaðarkirkja – Náðarganga í Fljótsdal kl. 11. Gengið frá Valþjófsstað í Skriðuklaustur með stuttu helgihaldi í upphafi, lokin og á tveimur áningarstöðum á leiðinni. Lesið úr Passíusálmum o.fl. Sr. Þorgeir Arason og Oddný Eir Ævarsdóttir forstöðumaður Gunnarsstofnunar leiða gönguna. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
5. apríl – PÁSKADAGUR:
Egilsstaðakirkja: Hátíðarmessa kl. 8 árdegis. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina og Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Sándors Kerekes.
Seyðisfjarðarkirkja – Hátíðarmessa kl. 9 árdegis. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar og Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur undir stjórn Hlínar Pétursdóttur Behrens.
Hjúkrunarheimilið Fossahlíð á Seyðisfirði – Páskamessa kl. 11. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar og Kór Seyðisfjarðarkirkju syngur undir stjórn Hlínar Pétursdóttur Behrens.
Sleðbrjótskirkja – Hátíðarmessa kl. 11. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar og Kór Kirkjubæjar og Sleðbrjótssókna syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar.
Eiðakirkja – Fermingarmessa kl. 14. Sr. Sveinbjörn Dagnýjarson þjónar og Kór Eiðakirkju syngur undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar.
Þingmúlakirkja – Hátíðarmessa kl. 14. Sr. Jarþrúður Árnadóttir þjónar og Kór Vallaness og Þingmúla syngur undir stjórn Sándors Kerekes.
6. apríl – ANNAR Í PÁSKUM:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarmessa kl. 14. Sr. Þorgeir Arason þjónar og Bakkasystur syngja undir stjórn Jóns Ólafs Sigurðssonar.
Hjúkrunarheimilið Dyngja – Páskamessa kl. 17. Sr. Þorgeir Arason þjónar og Kór Vallaness og Þingmúla syngur undir stjórn Sándors Kerekes.
Jól í skókassa
„Jól í skókassa“ er alþjóðlegt verkefni sem felst í því að fá börn jafnt sem fullorðna til þess að gleðja önnur börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika með því að gefa þeim jólagjafir. Með slíkum gjöfum er þeim sýndur kærleikur Guðs í verki. Gjafirnar eru settar í skókassa og til þess að tryggja að öll börnin fái svipaða jólagjöf er mælst til þess að ákveðnir hlutir séu í hverjum kassa. Gjafirnar frá Íslandi eru sendar til barna sem dvelja við erfiðar aðstæður í hinni stríðshrjáðu Úkraínu.

Móttaka skókassa á Egilsstöðum verður í Safnaðarheimili Egilsstaðakirkju laugardaginn 26. október milli kl. 10:00-14:00. Hafa má samband við Þorgeir (847-9289/ thorgeir.arason@kirkjan.is) ef koma þarf kössum til skila á öðrum tíma. Tengiliðir verkefnisins á Egilsstöðum eru Guðný Jónsdóttir, Guðrún Helga Elvarsdóttir, Hlín Stefánsdóttir og Linda Fransson.
~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~~
HVERNIG Á AÐ GANGA FRÁ SKÓKASSANUM?
1. Finnið tóman skókassa og pakkið honum inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann.
2. Ákveðið hvort gjöfin sé ætluð fyrir strák eða stelpu og fyrir hvaða aldur: (3-6), (7-10), (11-14) eða (15-18). Merkiði kassann með kyni og aldri.
3. Setjið 500-1.000 krónur í umslag og leggið efst í kassann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu.
4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann
GJAFIR Í SKÓKASSANA
Í kassann skal setja a.m.k. einn hlut úr hverjum eftirtalinna flokka:
• Leikföng, t.d. litla bíla, bolta, dúkku, bangsa eða jó-jó. Athugið að láta auka rafhlöður fylgja rafknúnum leikföngum.
• Skóladót, t.d. penna, blýanta, yddara, strokleður, skrifbækur, liti, litabækur eða vasareikni.
• Hreinlætisvörur. Óskað er eftir því að allir láti tannbursta, tannkrem og sápustykki í kassann sinn. Einnig má setja greiðu, þvottapoka eða hárskraut.
• Sælgæti, t.d. sleikjó, brjóstsykur, pez, tyggjó eða karamellur.
• Föt, t.d. húfu, vettlinga, sokka, trefil, bol eða peysu.
HVAÐ MÁ EKKI FARA Í SKÓKASSANA?
• Mikið notaðir eða illa farnir hlutir.
• Matvara.
• Stríðsdót, t.d. leikfangabyssur, leikfangahermenn eða hnífar.
• Vökvar, t.d. sjampó, krem eða sápukúlur.
• Lyf, t.d. vítamín, hálsbrjóstsykur eða smyrsl.
• Brothættir hlutir, t.d. speglar eða postulínsdúkkur.
• Spilastokkar. Þar sem spilastokkar eru tengdir fjárhættuspilum í Úkraínu, óskum við eftir að þeir séu ekki gefnir í skókassana.
Barnakór og Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju
Barnakór og Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju eru nú að byrja vetrarstarf sitt!
Barnakórinn:
Yngri hópur æfir sunnudaga kl. 10.00-10.20 (á undan sunnudagaskólanum), byrjar 6. október. Þar eru engin aldurstakmörk en gott að yngstu börnin hafi foreldra sína með.
Eldri hópur barnakórsins (2.-6. bekkur) æfir fimmtudaga kl. 17:30-18:15 í kirkjunni, byrjar 3. október. Kórinn syngur fjölbreytta tónlist og byrjar fljótlega að æfa aðventu- og jólalögin.
Barnahljómsveit Egilsstaðakirkju
æfir miðvikudaga kl. 15:30-16:15 í kirkjunni, byrjar 2. október. Þangað eru öll börn velkomin sem eru að læra á (eða kunna eitthvað á) hljóðfæri og vilja spila í hljómsveit.
Þátttaka í kórnum eða hljómsveitinni kostar ekkert en nauðsynlegt er að skrá börnin.
Stjórnandi Barnakórs og Barnahljómsveitar er Sándor Kerekes. Nánari upplýsingar: sandrj@freemail.hu eða bara með því að mæta á næstu æfingu.


