Minningarstund fyrir Birnu Brjánsdóttur
Minningarstund fyrir Birnu Brjánsdóttur verður í Egilsstaðakirkju laugardaginn 28. janúar kl. 16. Þau sem vilja minnast Birnu og sýna samhug eru hvött til að mæta.
Sunnudagur 29. janúar
Egilsstaðakirkja
Sunnudagaskóli kl. 10:30
Leiðtogarnir, presturinn, organistinn og brúðurnar eru spennt að hitta káta krakka. Söngur og sögur, djús og dund eftir stundina. Verið velkomin!
Messa kl. 20
Séra Vigfús Ingvar Ingvarsson prédikar og þjónar fyrir altari. Kór Egilsstaðakirkju syngur undir stjórn Torvalds Gjerde organista.
Seyðisfjarðarkirkja
Messa kl. 11
Séra Sigríður Rún Tryggvadóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Tryggvi Hermannson, kór Seyðisfjarðarkirkju syngur. Orgelið mun leika stórt hlutverk í messunni, en eftir umfangsmikla hreinsun er það eins og nýtt.
Verið velkomin til messu!
Egilsstaðakirkja 21.-22. janúar
Ýmislegt um að vera um helgina í Egilsstaðakirkju:
Laugardaginn 21. janúar kl. 11:00-13:30 mun Arnaldur Máni Finnsson guðfræðingur kynna Kyrrðarbæn (Centering Prayer), sem er aldagömul aðferð til að kyrra eigin hugsanir og dýpka sambandið við Guð, sjálfan sig og hið heilaga í lífinu. Aðferðin var kynnt af sr. Guðrúnu Eggertsdóttur í Egilsstaðakirkju í september, góður hópur tók þátt og síðan var kyrrðarbæn iðkuð vikulega í kirkjunni fram á aðventuna. Nú tökum við þráðinn upp aftur með þessari laugardagssamveru, nýir og áhugasamir eru sérstaklega boðnir velkomnir en þeir sem áður hafa iðkað eru hvattir til að koma, rifja upp og taka þátt og njóta þagnarinnar. Hressing í hádeginu. Allir velkomnir og aðgangur ókeypis. (Vakin er athygli á að vikulegar kyrrðarbænarstundir hefjast svo aftur í framhaldinu – miðvikudaginn 25. janúar kl. 17:00-17:30 í kirkjunni (gengið inn um hliðarinngang) – opið hús frá kl. 16:30.)
Sunnudaginn 22. janúar kl. 10:30: Sunnudagaskólinn á sínum stað. Sr. Vigfús Ingvar, leiðtogarnir, brúðurnar og Torvald við flygilinn sjá um stundina.
Sunnudaginn 22. janúar kl. 17:00: Orgeltónleikar í kirkjunni. Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti í Akureyrarkirkju, leikur orgelverk samin af konum. Í jafnréttissamfélagi okkar þykir það kannski ekki tiltökumál að kona semji tónlist fyrir orgel en staðreyndin er sú að konur eru skráðar fyrir mjög fáum prósentum orgelverka. Í Danmörku er hlutfallið 1%. Ástæðan er ekki sú að konur kunni ekki eða vilji ekki semja fyrir orgel. Þær semja yndislega tónlist og sýnishorn af henni má heyra á tónleikunum sem verða klukkustundar langir og er aðgangur ókeypis. Tónskáldin sem hljóma eru Hildigunnur Rúnarsdóttir, Bára Grímsdóttir, Fanny Mendelssohn, Emma Lou Diemer ofl. Sigrún Magna er með kantorspróf úr Tónskóla þjóðkirkjunar og meistarapróf úr Háskólanum í Kaupmannahöfn og hefur komið fram á tónlistarstundum hér á Egilsstöðum með metnaðarfullt prógramm áður.
Sunnudagaskólinn byrjar aftur í Egilsstaðakirkju
Fyrsti sunnudagaskóli ársins 2017 í Egilsstaðakirkju verður á sunnudaginn, 8. janúar kl. 10:30. Öystein Magnús mætir með gítarinn, leiðtogarnir, presturinn og brúðurnar á sínum stað og við munum eiga bæði fjöruga og innihaldsríka stund. Það er orðin hefð hjá okkur í sunnudagaskólanum að fagna nýju ári með vöfflupartýi og rjóminn mun flæða í lok samverunnar á sunnudaginn. Verum öll velkomin og vinsamlega látið berast því það kemur engin Dagskrá út í vikunni! (Athugið að Stjörnustund hefst aftur 16. janúar og Bíbí 17. janúar.)
Aftansöngur á gamlársdag í Egilsstaðakirkju
Verið velkomin í aftansöng í Egilsstaðakirkju á síðasta degi ársins kl. 16.
Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn organistans, Torvald Gjerde.
Prestur er sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari Ásta Sigfúsdóttir.

Mynd af ruv.is
Hátíðarguðsþjónusta á nýársdag í Bakkagerðiskirkju
Við fögnum nýju ári með hátíðarguðsþjónustu í Bakkagerðiskirkju á nýársdag kl.14.00. Bakkasystur syngja og leiða almennan safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er Torvald Gjerde. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir og meðhjálpari er Kristjana Björnsdóttir. 
27. desember: Hátíðarguðsþjónustu í Hofteigskirkju aflýst!
Hátíðarguðsþjónustu sem vera átti í Hofteigskirkju í dag, 27. desember kl. 14, er aflýst vegna hálku.
Helgihald um jól og áramót
Seyðisfjarðarkirkja: Friðarganga kl. 16:30, gengið frá spítalanum að kirkjunni.
Egilsstaðakirkja: Jólatónar – Torvald Gjerde organisti og gestir leika kl. 22:00-23:00, hægt að koma og fara að vild. Ókeypis aðgangur.
- desember, aðfangadagur jóla:
Egilsstaðakirkja: Jólastund barnanna kl. 14:00. Sr. Þorgeir, Torvald, Rebbi refur og leiðtogar barnastarfsins. – Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. – Náttsöngur kl. 23:00. Sr. Vigfús Ingvar Ingvarsson. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju. Einsöngur Árni Friðriksson.
Seyðisfjarðarkirkja: Aftansöngur kl. 18:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Tryggvi Hermannsson. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Eiðakirkja: Náttsöngur kl. 23:00. Sr. Þorgeir Arason. Organisti Leif Kristján Gjerde. Kór Eiðakirkju.
Kirkjuselið í Fellabæ: Helgistund kl. 23:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir.
- desember, jóladagur:
Áskirkja í Fellum: Hátíðarguðsþjónusta kl. 13:00 (ath. tímann). Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Áskirkju.
Seyðisfjarðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 – Sjúkrahús Seyðisfjarðar kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Tryggvi Hermannsson. Kór Seyðisfjarðarkirkju.
Þingmúlakirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Vallanes- og Þingmúlasóknir). Sr. Þorgeir Arason. Organisti Torvald Gjerde. Kór Vallaness og Þingmúla.
Valþjófsstaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 15:00 (ath. tímann). Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Drífa Sigurðardóttir. Kór Valþjófsstaðarkirkju.
- desember, annar í jólum:
Egilsstaðakirkja: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00 – Hjúkrunarheimilið Dyngja kl. 15:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Barnakór Egilsstaðakirkju. Fermingarbörn flytja ljósaþátt.
Hjaltastaðarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Þorgeir Arason. Tónlist leiðir Sigríður Laufey Sigurjónsdóttir. Þverflauta og einsöngur Sigurlaug Björnsdóttir. Frumfluttur nýr jólasálmur Arnars Sigbjörnssonar við lag Sigríðar.
Kirkjubæjarkirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00 (sameiginleg fyrir Kirkjubæjar- og Sleðbrjótssóknir). Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Leif Kristján Gjerde. Kór Kirkjubæjar- og Sleðbrjótskirkna.
- desember, þriðji í jólum:
Hofteigskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Ólöf Margrét Snorradóttir. Organisti Leif Kristján Gjerde.
- desember, gamlársdagur:
Egilsstaðakirkja: Aftansöngur kl. 16:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Kór Egilsstaðakirkju.
- janúar, nýársdagur:
Bakkagerðiskirkja: Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:00. Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir. Organisti Torvald Gjerde. Bakkasystur syngja.
- janúar, mánudagur:
Egilsstaðakirkja: Jólatónleikar kirkjunnar kl. 20:00. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
Aðventukvöld í Bakkagerðiskirkju
Aðventukvöld í Bakkagerðiskirkju þriðjudaginn 13. desember kl. 20:00.
Bakkasystur syngja aðventu- og jólasálma – Kirkjuskólabörnin syngja nokkur lög – Júlíu
s Geir og Páll lesa jólasögur – Hugvekja o.fl.
Organisti: Torvald Gjerde – Gítar: Freyja Jónsdóttir
Fyrir stundina eða kl. 18:00 mun sóknarnefnd að þessu sinni bjóða upp á kjötsúpu og köku í Vinaminni. Tilefnið er að þakka Kristjáni Gissurarsyni fyrir áralangt starf hans sem organisti og kórstjóri Bakkagerðiskirkju.
Allir eru hjartanlega velkomnir, bæði í Vinaminni og kirkjuna

